Vilja bara kippa undan grunni sjávarútvegs og ESB

„Þverrandi lífsorka núverandi ríkisstjórnar fer nú öll í að viðhalda sjálfri sér. Á meðan flæðir undan fylgi hennar bæði hjá þingi og þjóð. Traust þjóðarinnar á forsætisráðherra og formanni Samfylkingarinnar var hrunið áður en hún gerðist ber að því að brjóta jafnréttislög – og ábyrgðinni á því reynir hún síðan að koma yfir á aðra […]

Sjöund rifjar upp gamla takta í Hallarlundi

Hljómsveitin Sjöund verður í Hall­ar­lundi um helgina en þá verður skemmtistaðurinn opnaður form­lega. Sjöund spilaði síðast í Eyjum fyrir um tuttugu árum og ætlar að standa fyrir rólegri pöbbastemmn­ingu á föstudagskvöldinu og svo verður alvöru ball á laugardags­kvöldinu. (meira…)

Hemmi barði af sér fimm landsliðsfélaga

Það þarf greinilega meira en fimm fílhrausta karlmenn til að yfirbuga landsliðsfyrirliðann Hermann Hreiðarsson. Hermann var í viðtali hjá Arnari Björnssyni á Kýpur þegar að skyndilega koma fimm félagar hans úr landsliðinu og ætla greinilega að reyna að henda honum út í sundlaug. (meira…)

Tanndráttur þeirra fátæku

Þegar menn búa við þær aðstæður að tannlæknir er ekki til staðar, eru góð ráð dýr, og sjálfsagt líka sársaukafull eins og myndbandið sem hér fylgir sýnir. En aðferðin er einföld og ódýr og það er kannski málið, – eða hvað? (meira…)

Sighvatur kaupir mótorhjól og ætlar að keyra til Nepal

Sighvatur Bjarnason heldur áfram ferð sinni umhverfis jörðina á 80 dögum til styrktar Umhyggju. Sighvatur finnur sér vélhjól í Delhí og keyrir yfir til Katmandu í Nepal. Hann lendir í vandræðum með að komast út úr Delhí en þar kemur snjallsíminn hans til bjargar. Sighvatur er einnig hæstánægður með nýja hjólið enda sannkallaður kostagripur á […]

Endurbygging skipalyftunnar tefst hugsanlega um 3-4 vikur

Þil sem rammar inn stæði skipalyftunnar, sem senn á að endurbyggja, gaf sig í vikunni þegar dæluskipið Skandia var við dýpkunarframkvæmdir. Allt bendir til þess að dýpkað hafi verið of mikið þannig að þilið gaf sig. Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri Umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar segir að þrátt fyrir það, tefjist endurbygging skipalyftunnar í mesta lagi […]

Ernir fljúga fjórum sinnum í dag

Flugfélagið Ernir hefur bætt við fjórðu ferðinni milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur í dag en farið verður frá Reykjavík klukkan 14:30 og frá Vestmannaeyjum klukkan 15:15. Aðeins eru örfá sæti laus en í tilkynningu frá félaginu kemur fram að þrátt fyrir aukaflug á morgun, laugardag, þá sé sömu sögu að segja þann daginn, aðeins örfá sæti […]

Verða af 1200 milljónum

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu­neytið hefur gefið út reglugerð um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2011. Samtals er makrílkvótinn 154.825 tonn og vekur athygli að fimmtungur kvótans fer til frystitogara og með því gengið fram hjá útgerðum sem hafa lagt grunninn að makrílveiðum Íslendinga á undanförnum árum. Kemur þetta illa niður á Vestmannaeyjum og er þessi ákvörðun […]

Sonurinn til fjölskyldu sinnar í Eyjum

Heidi Thisland Jensen, sem bjó í Vest­mannaeyjum fyrir nokkrum árum, var myrt í heimabæ sínum, Mandal í Noregi aðfaranótt sunnu­dags. Morðið var mjög hrottalegt og var Heidi margstungin. Kærasti Heidiar hefur verið handtekinn og er hann búinn að viðurkenna morðið. (meira…)

Styrktarsíða opnuð fyrir Hófí og Styrmi

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarið, misstu þau Styrmir Gíslason og Hólm­fríður Á. Sigurpálsdóttir heimili sitt í vetur. Sökudólgurinn voru veggjatítlur, sem talið er að hafi jafnvel verið í húsinu frá upphafi með þessum afleiðingum. Tjónið verður ekki bætt með tryggingum en það kom í ljós þegar umfangsmiklar endurbætur voru að hefjast. Búið […]

Friðrik hættur

Besti körfuboltamaður Vestmannaeyja, Friðrik Stefánsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Friðrik hefur lengst af leikið með Njarðvík en hann fór upp í gegnum yngri flokkana hjá körfuknattleiksdeild Týs. Hann náði því aldrei að spila með meistaraflokki ÍBV en auk þess að spila með Njarðvík kom hann við hjá KR, KFÍ og Þór Akureyri […]

�?órarinn Ingi í byrjunarliðinu

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu leikur í kvöld æfingaleik gegn jafnöldrum sínum í Úkraínu en leikurinn fer fram ytra. Tveir leikmenn ÍBV eru í leikmannahópi íslenska liðsins, þeir Þórarinn Ingi Valdimarsson og Eiður Aron Sigurbjörnsson. Þórarinn Ingi er í byrjunarliðinu í stöðu vinstri bakvarðar en Eiður Aron byrjar á bekknum. (meira…)

Sjá fram á gjaldþrot

Hjónin Styrmir Gíslason og Hólm­fríður Á. Sigurpálsdóttir höfðu búið í húsinu Sólvangi við Kirkjuveg í sex ár þegar þau ákváðu að ráðast í endurbætur á þaki og skipta um klæðningu á húsinu. Þau réðu menn í verkið og þegar þeir hófu að rífa af þakinu kom í ljós að veggjatítla hafði búið um sig í […]

Skandia dælir sandi við Landeyjahöfn

Dæluskipið Skandia dælir nú upp sandi við Landeyjahöfn og hefur verið að síðan um hádegi í gær. Erard Justinusen, er skipstjóri um borð en hann tók á dögunum við af landa sínum Sigmari Jacobsen Erard sagði í samtali við Eyjafréttir að sanddælingin gengi vel, búið væri að fylla skipið fimm sinnum en Skandia tekur í […]

Kynnist umferðarmenningu Indverja á mótorfák

Sighvatur Bjarnason er nú kominn til Indlands á leið sinni umhverfis heiminn á 80 dögum. Hann segir það mikinn léttir að komast frá Pakistan, yfir til Indlands en í fyrrnefnda landinu ríkir mikil tortryggni í garð vestrænna ríkja. Nú er hann staddur í Dehli og er búinn að kaupa sér mótorfák. Sighvatur fær því að […]

Gleymdi potti á eldavélinni

Rétt eftir miðnætti í nótt var slökkvilið Vestmannaeyja kallað út að Foldahrauni 38, sem er fjölbýlishús. Mikill reykur var í einni íbúð hússins en síðar kom í ljós að húsráðandi hafði gleymt potti á eldavél. Enginn eldur hafði myndast en reykræsta varð íbúðina. Engin slys urðu á fólki og litlar skemmdir urðu á íbúðinni. (meira…)

Fréttir bornar út á morgun, fimmtudag

Fréttir verða bornar út til áskrifenda á morgun, fimmtudag en ekki í kvöld eins og vanalega. Ástæðan er umfang blaðsins en með stútfullu blaði af Fréttum, fylgir veglegt blað um fermingar og allt sem þeim fylgir. (meira…)

�?lduhæð undir tveimur metrum síðan í gær

Dæluskipið Skandia er enn bundið við bryggju þótt ölduhæð hafi farið undir tvo metra við Landeyjahöfn á ellefta tímanum í gærkvöldi. Klukkan átta í morgun var ölduhæð 1,5 metrar en í dag er spáð norðan átt og ætti því aðstæður að vera hagstæðar til að dæla sandi. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá starfsmönnum Íslenska Gámafélagsins, […]

Danskur leikmaður of dýr fyrir ÍBV

ÍBV leitar þessa stundina að framherja til að fylla skarð Gunnars Heiðars Þorvaldssonar sem gekk í raðir Norrköping í síðustu viku. Eyjamenn fara í æfingaferð til Spánar á föstudag og þeir áttu möguleika á að fá danskan framherja með sér þangað á reynslu. Ekkert verður þó af því þar sem að framherjinn þótti of dýr […]

Hugmyndir um kjarnorkuver í Vestmannaeyjum árið 1959

Í síðasta tölublaði Frétta var fjallað um hugmyndir um að setja upp lítið kjarnorkuver í Vestmannaeyjum árið 1959. „Raforkumálastjóra hefur borist tilboð í lítið kjarnorkuver. Björn Kristinsson, verkfræðingur á Orku­deild raforkumálastjóra, hefur unnið að mati á tilboði General Electric og skrifað ítarlega skýrslu sem nefnist Kjarnorkuver fyrir Vestmanna­eyjar,“ segir í frétt frá árinu 1959 sem […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.