ÍBV og Vodafone taka upp samstarf

ÍBV Íþróttafélag og Vodafone skrifuðu í dag undir samstarfssamning sín á milli. Vodafone mun vera sýnilegt hjá félaginu, bæði í blaðaútgáfu á vegum félagsins og við helstu íþróttaviðburði félagsins. ÍBV mun einnig nýta sér úrvals internet og símaþjónustu Vodafone sem þjónustuð er af Eyjatölvum hér í bæ. (meira…)

Vatn flæðir um rennibrautirnar

Nú hafa rennibrautir á útisvæði sundlaugar verið opnar. Vorið er komið með hækkandi hitastigi og því líklegt að hægt verði að hafa brautirnar opnar fram á haustið. Vestmannaeyingar eru hvattir til að kíkja í sund og njóta samverustunda í heitum pottum á meðan börnin eru við leik. (meira…)

Tíu ára markaðsvinna í súginn

„Við vorum í tíu ár að markaðssetja okkur í jaðarferðaþjónustu og feng­um hópa fyrir og eftir sumarið til að lengja tímabilið. Við fengum breska skólahópa sem komu í lok febrúar, mars og apríl og svo eftir sumarið í október og nóvember. Í fyrra voru fjörutíu hópar bókaðir en enginn í ár – þeir eru uppi […]

Sólveig Unnur í fyrsta sinn á leiksviði

Söngkonan Sólveig Unnur Ragnarsdóttir hefur yljað Eyjamönnum með fögrum söng undanfarin misseri en hún bætir nú um betur og stígur á leiksvið í fyrsta sinn. Sólveig Unnur leikur eitt af aðalhlutverkunum í uppsetningu Leikfélags Vestmannaeyja á ABBA söngleiknum Mamma Mia! en Sólveig segir að þetta sé í fyrsta sinn sem hún tekur að sér svona […]

Megum ekki láta deigan síga og verðum að halda áfram

Eyjamenn klóra sér í hausnum þessa dagana. Upphaflega þegar dæluskipið Skandia var fengið til dýpkunarframkvæmda gaf Siglingastofnun út að einn dag, í mesta lagi þyrfti tvo, til að opna höfnina. Síðar breyttust þessir tveir dagar í 4-5 daga og nú, eftir að ölduhæð við Landeyjahöfn hefur verið undir tveimur metrum í rúma sjö sólarhringa, er […]

Hættu að dæla í gærkvöldi

Dýpkun í Landeyjahöfn hefur ekki gengið eins og vonast var til og í gærkvöldi hætti verktaki dýpkun á dæluskipinu Skandia. Því er ljóst að Landeyjahöfn opnar ekki fyrir helgi eins og vonast var til. Þetta kemur fram á vef Siglingastofnunar en jafnframt er sagt að ölduspá næstu daga gefi ekki tilefni til bjartsýni. (meira…)

Herjólfur fer ekki upp í Landeyjahöfn á föstudag

Nú er orðið ljóst að Herjólfur mun ekki sigla upp í Landeyjahöfn á föstudaginn. Vonir stóðu til að hægt yrði að opna höfnina næsta föstudag en Siglingastofnun ætlaði að gefa út tilkynningu hvort það væri hægt eða ekki, síðdegis í dag. Eimskip tók hins vegar ómakið af þeim en þeim farþegum sem áttu pantað með […]

Mamma Mia! frumsýnt í Bæjarleikhúsinu á laugardag

Söngleikurinn Mamma Mia! verður frumsýndur hjá Leikfélagi Vestmannaeyja á laugardaginn. Æfingar hafa staðið yfir streitulaust síðustu tvo mánuði og miðað við það sem blaðamaður Eyjafrétta sá í gærkvöldi, þá verður uppskeran ríkuleg. Tónlistin er aðalatriðið í verkinu og þar er valinn maður í hverju rúmi, rjóminn af tónlistarflórunni í Eyjum má segja. Með fréttinni fylgir […]

Hoffman læðist upp listann

Eyjarokksveitin Hoffman er með nýtt lag á vinsældarlista Rásar tvö sem var birtur á laugardaginn. Lagið heitir Royal face og kemur inn í 25. sæti listans en lagið er melódískt rokklag af bestu gerð. Hægt er að kjósa lagið á heimasíðu Vinsældarlista Rásar 2 í vikulegri kosningu um bestu lögin á Íslandi í hverri viku. […]

Guðbjörg í úrvalsliði N1 deildarinnar

Guðbjörg Guðmannsdóttir, handknattleikskona úr ÍBV er í úrvalsliði síðari umferðar N1 deildarinnar. Guðbjörg var einnig í úrvalsliðinu fyrir fyrri umferðina enda einn besti hornamaður deildarinnar og mikil íþróttakona. Bikarmeistarar Fram eiga þrjá fulltrúa í úrvalsliðinu, Íslandsmeistarar Vals tvo og ÍBV og HK sitt hvorn leikmanninn. Þá var Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, línumaður Vals valin best og […]

Fiskistofa biðst afsökunar

Fiskistofa hefur beðist afsökunar á því að stofnunin hafi sent frá sér rangar upplýsingar um landaðan afla frá Vestmannaeyjum. „Í ljós hefur komið að gögn sem Fiskistofa staðfesti til fréttastofunnar voru röng. Sá hluti afla sem landað er í Vestmannaeyjum til endurvigtunar erlendis var ekki talinn til hluta afla sem landað er í Vestmannaeyjum við […]

Keppni í matarinnkaupum, ísbað og falin myndavél

Strákarnir í EyjarTV eru komnir með 6. þáttinn á netið. Í þættinum fara strákarnir í keppni í Vöruval þar sem þeir keppast um að kaupa inn á tíma en sá sem tapaði þurfti að fara í ísbað. Auk þess voru strákarnir með falda myndavél í Krónunni en sjón er sögu ríkari. Sjá má þáttinn hér […]

Spurning hvort Landeyjahöfn opni á föstudag

Nú virðist styttast í að Landeyjahöfn opni að nýju en höfnin hefur verið meira og minna lokuð það sem af er árs. Dýpkunarframkvæmdir um helgina hafa gengið upp og ofan en ekki hefur tekist að dæla nógu miklum sandi til að opna höfnina að svo stöddu. Siglingastofnun metur stöðuna þannig að á miðvikudaginn liggi fyrir […]

Enn ráðist á dyraverði Volcano

Aðra vikuna í röð er ráðist á dyravörð á skemmtistaðnum Volcano Café en í síðustu viku var einn dyravörður skallaður á staðnum.. Atburðurinn átti sér stað aðfaranótt 27. mars en dyraverðirnir höfðu vísað einum af gesti staðarins út. Gestinum mislíkaði það og réðist á einn dyravörð staðarins en áverkarnir voru ekki alvarlegir. Þetta kemur fram […]

Vel skóaðir Eyjamenn æfa á Spáni

Undirbúningur strákanna í meistaraflokki stendur nú sem hæst og eru þeir nú staddir í æfingarbúðum á Oliva Nova á Spáni. Þar munu strákarnir dvelja í rúma viku og æfa við bestu mögulegu aðstæður. Fararstjórar ferðarinnar eru Ágústa og Gaui. Hér kemur smá pistill frá Ágústu. (meira…)

ÍBV með fjóra leikmenn á reynslu á Spáni

ÍBV er með fjóra leikmenn sem æfa með liðinu á reynslu í æfingaferð liðsins á Spáni en þetta staðfesti Tryggvi Guðmundsson leikmaður liðsins í viðtali við Valtý Björn Valtýsson í útvarpþættinum Mín skoðun á X977 rétt í þessu. Tryggvi sagði þar að um væri að ræða fjóra leikmenn um tvítugt sem koma frá Crewe Alexandra, […]

Skýrist í dag hvort höfnin opni á miðvikudag

Á fundi um samgöngumál í Vestmannaeyjum á dögunum sagði Sigurður Áss Grétarsson, frá Siglingastofnun að dæla þyrfti í 4-5 daga til að opna Landeyjahöfn. Um hádegisbil síðasta miðvikudags fór dæluskipið Skandia upp að Landeyjahöfn og hóf að dæla en síðan þá hafa aðstæður verið hagstæðar til dælingar. Það þýðir að í hádeginu í dag eru […]

Drífa valin í úrvalsliðið

Drífa Þorvaldsdóttir var valin í úrvalslið undankeppni U-17 ára landsliða í handbolta sem fór fram í Reykjavík um helgina. Í riðli með Íslandi voru Sviss, Spánn og Króatía en Drífa þótti vera besta örvhenta skyttan í riðlinum. Íslenska liðið vann tvo af þremur leikjum sínum, gegn Sviss og Króatíu en tapaði fyrir Spánverjum. Íslenska liðið […]

Dýpkun Landeyjahafnar gengur vel

Unnið hefur verið að dýpkun Landeyjahafnar alla helgina. Eru aðstæður til þess afar góðar þessa stundina, að sögn Stefáns Stefánssonar hjá Íslenska gámafélaginu, sem gerir dýpkunarskipið Skandia út. (meira…)

Glitnir í mál við Guðbjörgu og vill rifta sölu bréfa

Slitastjórn Glitnis hefur höfðað mál gegn Guðbjörgu Matthíasdóttur útgerðarkonu í Vestmannaeyjum og krefst riftunar á hlutabréfakaupum sem gerð voru þremur dögum fyrir þjóðnýtingu Glitnis. Í september 2007 keypti Glitnir nærri 40 prósenta hlut í Tryggingamiðstöðinni fyrir um 20 milljarða króna af Guðbjörgu Matthíasdóttir og fleiri fjárfestum og seldi bréfin síðan áfram til annarra. Hluti af […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.