Mætir með SS Sól og Reiðmenn vindanna

Á laugardagskvöldið verður Helgi Björnsson, söngvari og leikari með meiru, í mörgum hlutverkum í Höllinni. Hann ætlar að skemmta matargestum á loðnuslútti Hallar­innar og leika svo á ballinu þar sem hann verður bæði með SS Sól og Reiðmönnum vindanna sem hafa slegið svo eftirminnilega í gegn síðustu ár. (meira…)

Eyjamenn sýnt langlundargeð

„Eyjamenn hafa sýnt gríðarlegt langlundargeð. Þetta er búið að vera djöfullegt en stendur þó til bóta,“ segir Kristín Jóhannsdóttir, markaðsfulltrúi Vestmannaeyja, um ástandið í samgöngumálum fyrir Eyjamenn. Sem kunnugt er hafa siglingar með Herjólfi til Landeyjahafnar gengið brösuglega í vetur. Engin ferð hefur verið farin þangað síðan 12. janúar sl. og Herjólfur hefur orðið að […]

Slæm ölduspá næstu daga

Óvíst er hvort hægt verður að vinna eitthvað við sanddælingu við Landeyjahöfn næstu daga, en spáð er áframhaldandi suðvestan brælu. Sanddæluskipið Skandia hefur ekkert getað unnið síðan á laugardag. Í dag var 3,4 metra ölduhæð á dufli við Landeyjarhöfn, en ölduhæð verður að vera undir 2 metrum til að hægt sé að vinna við sanddælingu. […]

Boltinn í beinni í Hallarlundi í kvöld

Í kvöld átti að vera fundur um ESB í Höllinni en honum hefur verið frestað. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að hafa boltann í beinni í Hallarlundi, efri sal Hallarinnar sem var opnaður með pompi og prakt á dögunum. Tveir stórleikir verða á skjánum í Hallarlundi, Manchester City og Dinamo Kiev og svo […]

�?mögulegt að halda úti sólar­hringsvakt

„Það liggur fyrir að Heilbrigði­s­stofnun hefur sagt upp samningi við lögregluna um sjúkraflutninga í kaupstaðnum og mun sú uppsögn taka gildi frá 1. júní nk. að óbreyttu. Ástandið er grafalvarlegt, ég dreg ekki fjöður yfir það,“ sagði Karl Gauti Hjaltason, sýslu­maður, um þá stöðu sem komin er upp nú þegar allt stefnir í að lögreglan […]

Löngu tímabær fundur um samgöngumál

Um 350 manns sóttu fund um samgöngumál í Höllinni í kvöld. Framsögumenn komu frá Siglingastofnun, Eimskip, Sternu, Flugfélaginu Erni auk þess sem fulltrúi Vegagerðarinnar svaraði fyrirspurnum. Eftir framsögur var tekið við fyrirspurnum fundargesta en fyrirspurnirnar voru fjölmargar og fjölbreyttar. Ekki var annað að sjá en að fundargestir væru ánægðir með þær upplýsingar sem fengust á […]

Fundur um samgöngumál verður í kvöld

Í kvöld klukkan 19:30 verður fundur í Höllinn um samgöngumál. Samgöngur hafa verið mikið í umræðunni í Eyjum undanfarin misseri og þá helst að því sem snýr að Herjólfi og Landeyjahöfn. Fundurinn mun fara fram í kvöld, jafnvel þótt framsögumenn muni ekki komast til Eyja en heimildir Eyjafrétta herma að einhverjir þeirra hafi komið með […]

Rör dæluskipsins brotnaði

Rör dæluskipsins Skandiu brotnaði við dýpkun Landeyjahafnar á laugardag. Rörið fór þó ekki í sundur og var hægt að halda dælingu áfram. Atvikið átti sér stað þegar verið var að bakka dæluskipinu í hafnarmynninu en rörið hangir neðan úr skipinu aftanverðu. (meira…)

�?fing fellur niður hjá 8. flokki

Leiðindafærð er nú í Eyjum, svokölluð þæfingsfærð en í verstu hviðunum er ekkert skyggni og því rétt að fara varlega í umferðinni. Æfing fellur niður hjá yngstu iðkendunum í 8. flokki en æfingin átti að fara fram klukkan 17:30 í dag. Samkvæmt veðurspánni mun heldur bæta í vind þegar líða tekur á daginn og klukkan […]

Hverjir eru bestir?

Já hefur hleypt af stokkunum verkefninu „Hverjir eru bestir?“ í samstarfi við íþróttafélögin í landinu sem felst í því að einstaklingar geta nú birt merki síns íþróttafélags við hlið skráningar sinnar á Já.is. Stuðningsmenn íþróttafélaga geta þannig lagt félagi sínu lið gegnum Já.is um leið og þeir sýna svo eftir verður tekið hvar hjarta þeirra […]

Sighvatur kominn á Arabíuskagann

Sighvatur Bjarnason heldur heimsreisu sinni áfram en hann ætlar sér að komast umhverfis jörðin á 80 dögum og safna um leið áheitum fyrir Umhyggju, félags langveikra barna. Sighvatur hóf ferðina í Afríku en er nú kominn á Arabíuskagann en lokahnykkur Afríkuferðarinnar var skrautlegur í meira lagi. (meira…)

Djúpið sýnt í Eyjum á föstudag

Leiksýningin Djúpið verður sýnd í Bæjarleikhúsinu næstkomandi föstudag. Sýningin hefur hlotið góða dóma, m.a. fimm stjörnur bæði í Fréttablaðinu og DV en sýningin hefst klukkan 20:00. Ingvar E. Sigurðsson leikur eina hlutverkið, handritið skrifaði Jón Atli Jónasson en sá hinn sami leikstýrir einnig verkinu. (meira…)

�?órarinn Ingi í U-21 árs liðið

Hermann Hreiðarsson er á sínum stað í A-landsliðshópnum sem var tilkynntur í dag. Íslenska liðið mætir Kýpverjum ytra þann 26. mars næstkomandi en Hermann hefur verið að spila vel með liði sínu, Portsmouth í ensku 1. deildinni. Annar Eyjamaður, Þórarinn Ingi Valdimarsson var einnig valinn í U-21 árs landsliðið en liðið leikur gegn Úkraínu ytra […]

Mótmæla harðlega reglugerð um stjórn makrílveiða

Stjórn Útvegsbændafélags Vestmannaeyja mótmælir harðlega reglugerð um stjórn makrílveiða á komandi vertíð. Sérstaklega athygli vekur einróma samþykkt stjórnar LÍÚ, þar sem lagt var til að viðbótarheimildum yrði úthlutað á allar útgerðir, skuli algjörlega hundsuð. (meira…)

ÍBV komið með þátttökuleyfi

Í gær fundaði Leyfisráð KSÍ en fyrir fundinum lágu fyrir gögn frá nokkrum félögum þar sem sótt er um þátttökuleyfi fyrir sumarið. Þrettán félögum hafði verið veitt leyfi í byrjun mánaðarins en sjö fengu leyfi nú, m.a. ÍBV. Félagið, ásamt Keflavík og Fjölni uppfylla hins vegar ekki kröfu um menntun þjálfara yngri flokka og gerir […]

Helmingslíkur á að Gunnar semji við Nörrköping

Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur greinilega náð að heilla forráðamenn sænska úrvalsdeildarliðsins Nörrköping en Gunnar tók þátt í æfingaferð liðsins til Mallorca í síðustu viku. Gunnar skoraði m.a. eitt mark og lagði upp tvö í æfingaleik með liðinu. Samningaviðræður eru í gangi milli leikmannsins og félagsins en Gunnar segir í samtali við Morgunblaðið í dag að […]

Eyjamenn standa sig vel

Nú er Mottumars rétt tæplega hálfnaður en Mottumars er átak Krabbameinsfélags Íslands þar sem einstaklingar og lið safna skeggi og um leið áheitum. Fjölmargir Eyjamenn eru skráðir til leiks og sem fyrr leiðir Ágúst Sverrir Daníelsson einstaklingskeppni Eyjamanna en Ágúst hefur safnað 55 þúsund krónum, hvorki meira né minna. (meira…)

�?rítugur maður gómaður með kannabisefni

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og fór skemmtanahald helgarinnar ágætlega fram og án teljandi vandræða. Við komu Herjólfs til Vestmannaeyja að kvöldi 9. mars sl. hafði lögreglan afskipti af karlmanni á þrítugsaldri vegna gruns um að hann væri með fíkniefni meðferðis. Við leit í farangri mannsins fundust ætluð fíkniefni sem talin eru vera […]

Loðnuslútt með Eyþóri Inga á Volcano

Um næstu helgi mun rokkarinn Eyþór Ingi spila á Volcano en Eyþór mun rokka upp í Eyjamönnum bæði föstudags- og laugardagskvöld. Væri ekki flott að kíkja við á Volcano Café, skemmta sér með okkur þar. Frítt inn alla helgina. (meira…)

Fundur um samgöngumál á miðvikudaginn

Næstkomandi miðvikudag, klukkan 19:30 verður fundur um samgöngumál í Vestmannaeyjum en verulega hefur reynt á þolrif Eyjamanna hvað varðar Landeyjahöfn í vetur. Höfnin hefur meira og minna verið lokuð en framsögumenn eru m.a. Sigurður Áss Grétarsson, frá Siglingastofnun, Guðmundur Nikulásson, framkvæmdastjóri Eimskip, Óskar Stefánsson, framkvæmdastjóri Bílar og Fólk/Sterna og Hörður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Flugfélagsins Ernir. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.