Laddi og félagar á leið til Eyja

Laugardagskvöldið 6. nóvember mun hláturinn ráða ríkjum í Eyjum en þá mætir á svæðið landslið grínara til að skemmta okkur Eyjamönnum. Þarna eru allir vinsælustu grínistar landsins og lofa þeir frábærri skemmtun. Þetta er í annað sinn sem Björgvin Rúnars setur svona kvöld upp en í fyrra var fullt út úr dyrum í Höllinni og […]
Hvernig greiddu þingmenn Suðurkjördæmis atkvæði?
Eins og flestum ætti að vera kunnugt um fór fram í gær atkvæðagreiðsla á Alþingi hvort sækja ætti fjóra ráðherra til saka fyrir Landsdómi. Geir H. Haarde var sá eini sem ákveðið var að kæra en fjórir af tíu þingmönnum Suðurkjördæmis vildu kæra alla fjóra ráðherrana. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins vildu ekki kæra neinn af ráðherrunum. Af […]
Albert Sævarsson býst við að taka eitt tímabil í viðbót

Albert Sævarsson, markvörður ÍBV, býst við að leika áfram með Eyjamönnum næsta sumar. „Ég býst við að halda áfram. Ég ætla að fá skrokkinn í lag og sjá svo til, sagði Albert en hann hefur verið að glíma við meiðsli. „Ég er búinn að vera handónýtur í allt sumar. Ég fór í liðþófaaðgerð og er […]
Leita verður allra leiða til að opna Landeyjahöfn sem fyrst

Bæjarráð Vestmannaeyja kom saman í hádeginu en eina fundarefnið var lokun Landeyjahafnar. Bæjarráð vill að allra leiða verði leitað við að opna Landeyjahöfn aftur sem fyrst og minnir á að framkvæmdin var 600 milljón krónum ódýrari og því borð fyrir báru varðandi lokafrágang hafnarinnar. Þá vill bæjarráð að tafarlaust verði ráðist í að hanna og […]
Herjólfur kenndi grunns á háflóði

Landeyjahöfn er ófær og mun Herjólfur sigla til Þorlákshafnar um óákveðinn tíma. Skipstjóri Herjólfs segir að sjórinn sé gruggugur þrjá kílómetra út frá suðurströndinni vegna framburðar úr Markarfljóti. Herjólfur tók niðri í Landeyjahöfn á sunnudag. Í gær sigldi skipið samkvæmt áætlun í nýju höfnina en kenndi þar grunns á háfjöru um hádegisbil. Í gær var […]
Landeyjahöfn lokuð

Eftir morgunferð Herjólfs í Landeyjahöfn í dag er ljóst að hún er ófær. Því verður siglt til Þorlákshafnar frá Vestmannaeyjum í dag kl. 15:15. Ekki er ljóst hversu lengi þarf að sigla til Þorlákshafnar. Áætlun verður frá Vestmannaeyjum klukkan 07:30 og 15:15. Frá Þorlákshöfn 11:15 og 18:45. (meira…)
Fjögur af tólf fallegustu mörkunum komu á Hásteinsvelli

Nú stendur yfir kosning á fallegasta marki sumarsins í Pepsídeild karla á www.ruv.is en valið stendur á milli tólf glæsilegra marka. Fjögur af þessum tólf mörkum komu á Hásteinsvelli og skoruðu Eyjamenn tvö þeirra. Sigurmark Eiðs Arons Sigurbjörnssonar gegn Keflavík í sumar hlýtur að koma sterklega til greina og sömuleiðis þrumufleygur Danien Justin Warlem gegn […]
Leikskólasaga
Rekstur leikskóla er ekki lögbundið skylduverkefni sveitarfélaga. Engu síður er sú þjónusta ein sú mikilvægasta sem veitt er í nútíma sveitarfélögum. Í Vestmannaeyjum er horft til barna sem helstu auðlinda samfélagsins og því mikilvægt að standa vel að þjónustu við þau. Ánægja, líðan og árangur þjónustuþega eru einnig meðal mest notuðu mælikvarða á gæði samfélagsins. […]
�?nnur ferð Herjólfs á morgun fellur niður

Vegna óhagstæðra sjávarfalla mun ferð Herjólfs sem á að fara frá Vestmannaeyjum á morgun kl. 10:30 og frá Landeyjahöfn kl. 12:30 falla niður, samkvæmt upplýsingum frá Eimskip. (meira…)
Stöðvuð með kannabis á leiðinni til Eyja
Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið og þó nokkur erill um helgina enda fjöldi fólks að skemmta sér. Skemmtanahaldið fór reyndar að mestu leiti vel fram en eitthvað var um að menn væru að takast á en engar kærur liggja fyrir. Lögreglu var tilkynnt um svokallað „unglingapartý“ að kvöldi […]
Unnið að lausnum

Gosefnið úr Eyjafjallajökli gerði fleira en safnast upp fyrir mynni Landeyjahafnar og hamla þar með siglingum í höfnina. Í ofanálag smaug það inn í legur í skrúfubúnaði dýpkunarskipsins Perlunnar svo nauðsynlegt reyndist að endurnýja hluta búnaðarins. Perlan er því í slipp og mun viðgerð væntanlega ljúka í lok vikunnar. Verður þá þegar hafist handa við […]
ÍBV spáð 2. sæti í 1. deild

Í hádeginu í dag var árlegur kynningafundur vegna handboltatímabilsins sem hefst um næstu helgi. Hápunktur fundarins er þegar spár formanna, fyrirliða og þjálfara fyrir veturinn eru gerðar opinberar. Karlalið ÍBV leikur í 1. deild en liðinu er spáð góðu gengi í vetur og telja fyrrnefndir aðilar að Eyjamenn eigi eftir að lenda í 2. sæti. […]
Aska skemmdi skrúfu dýpkunarskips

Fíngerð aska í Landeyjahöfn hefur skemmt skrúfubúnað dýpkunarskipsins Perlu. Ekki er búist við að viðgerð ljúki fyrr en um næstu helgi. Tvær síðustu ferðir Herjólfs féllu niður í gær vegna veðurs og sjólags í Landeyjahöfn. Skipið kenndi þar grunns tvisvar í gær. Skipstjóri á Herjólfi segir að vel hafi gengið að sigla um nýju höfnina […]
Tökur seinkuðu Herjólfi

Á mbl.is er sagt frá því að Herjólfi hafi seinkað í morgunferðinni en tökur á kvikmynd í Vestmannaeyjum hafi sett strik í reikningin í ferðum skipsins. Verið var að taka upp atriði þar sem líkfylgd kemur út úr Herjólfi en tökurnar seinkuðu brottför um 20 til 25 mínútur. Ekki fengust upplýsingar um hvaða kvikmynd er […]
Babb í bátinn

Tvær ferðir Herjólfs voru felldar niður í gær vegna veðurs. Skipið sigldi ekki klukkan 15:00 frá Eyjum og ekki heldur klukkan 21:00. Ölduhæð klukkan 15:00 var 3,5 metrar en 3,9 metrar klukkan 21:00. Farþegar sem komust með skipinu til Eyja fullyrða að Herjólfur hafi tekið niðri. Atvikinu er lýst þannig að farþegar hafi mjög greinilega […]
Ísbíltúr til Vestmannaeyja

Ég er einn af þeim sem fagnaði því mjög þegar ljóst var að Landeyjahöfn yrði að veruleika og sá fyrir mér að ferðum mínum til Eyja myndi fjölga verulega, hef þegar skotist í ísbíltúr með samferðafólki sem aldrei hefði farið með Herjólfi frá Þorlákshöfn. (meira…)
Eitt af þremur lélegustu liðum seinni umferðarinnar

Andri Ólafsson, fyrirliði ÍBV var að vonum ekki kátur í leikslok í viðtali á Fótbolti.net. Andri sagði m.a. í viðtalinu að ÍBV hefði verið eitt af þremur lélegustu liðunum í deildinni í seinni umferð Íslandsmótsins og að liðið hefði spilað lélegan fótbolta. Hann var líka ósáttur við leik liðsins gegn Keflavík í dag en hægt […]
ÍBV endaði í þriðja sæti

ÍBV endaði Íslandsmótið í þriðja sæti. Árangurinn er betri en bjartsýnustu menn þorðu að vona og markmiðinu, Evrópukeppninni var náð en margir brostu út í annað þegar Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV tilkynnti landi og þjóð það markmið sitt. Engu að síður er ekki laust við vonbrigði eftir leiki dagsins því ÍBV hefði getað með sigri […]
Karlakórinn �?restir með tónleika:
Nú í lok september heldur Karlakórinn Þrestir tónleika til styrktar Krýsuvíkursamtökunum. Einir tónleikar verða í Eyjum, í Hvítasunnukirkjunni Á undanförnum árum hefir sú hefð skapast að kórinn byrjar vetrarstarfið með styrktartónleikum til góðgerðarsamtaka. (meira…)
Meira vöruúrval og gott verð

Verslunin Jazz tískuverslun og Markaðstorg Kringlunnar eru komin í samstarf. Áslaug Bjarnhéðinsdóttir hefur rekið Jazz um árabil og mun gera það áfram. Þegar Jazz opnaði á þriðjudag var verslunin troðfull af nýjum og spennandi vörum í dömu- herra-, barna- og unglingafatnaði. „Jazz hefur boðið upp á mjög góð verð en við ætlum að gera enn […]