Fyrsta lundaballið var haldið 1924
Marinó Sigursteinsson, pípulagningameistari, Mari pípari, hefur lagst í könnun á skrifum Árna Árnasonar, símritara, um lundaveiði í Eyjum. Þetta eru gagnmerkar heimildir um lundaveiði í Vestmannaeyjum og mannlíf í kringum hana frá upphafi síðustu aldar og fram yfir 1960. „Samkvæmt því sem kemur fram hjá Árna var fyrsta lundaballið haldið árið 1924. Á tímabilinu frá […]
�?að glæsilegasta frá upphafi

„Það er ekki efi í okkar huga að lundaballið á laugardaginn verður það flottasta frá upphafi. Eina ballið sem stenst einhvern samjöfnuð er ballið fyrir sjö árum sem var líka í okkar umsjón. Erum við þá ekki að monta okkur,“ sögðu Halldór og Einar Hallgrímssynir, talsmenn félaga í Ystakletti sem heldur Lundaballið í ár. (meira…)
Fimm stuðningsmönnum ÍBV bannað að fara með í hópferð

Forráðamenn knattspyrnudeildar ÍBV hafa bannað fimm stuðningsmönnum liðsins að fara með í hópferð á leik liðsins gegn Keflavík í lokaumferð Pepsi-deildar karla um helgina. Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar. ÍBV var í vikunni sektað af Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ um 25 þúsund krónur vegna hegðunar stuðningsmanna liðsins á leik þess gegn Stjörnunni um síðustu […]
Allir jafnir nema �?li Týr

Á dögunum var farið út í Suðurey í smölun en í Vestmannaeyjum er fé í úteyjum. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta.is slóst með í för nokkurra kappa sem sóttu féð fyrir veturinn. Auk þess þurfti að bólusetja féð sem verður í eyjunni í vetur. Hópur smalamanna samanstóð af mönnum frá 16 ára og upp í […]
25 þúsundkall í sekt
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur sektað knattspyrnudeild ÍBV um 25 þúsund krónur vegna ósæmilegrar hegðunar nokkurra stuðningsmanna liðsins á leik ÍBV og Stjörnunnar um síðustu helgi. Þar varð Halldór Orri Björnsson fyrir aðkasti að mati dómarans, Magnúsar Þórssonar, sem gerði athugasemd í leikskýrslu sína vegna þessa. (meira…)
Allt gert til að halda Landeyjahöfn opinni

Á morgun, föstudag, leggur samgönguráðherra fram tillögu í ríkisstjórn þar sem gert er ráð fyrir viðbótar fjárframlagi til að halda Landeyjahöfn opinni í vetur. Er stefna ráðherra að Landeyjahöfn verði aðalhöfn Herjólfs en siglt verði til Þorlákshafnar ef ófært er í Bakkafjöru. Til að mæta kostnaði gerir hann ráð fyrir að fargjöld verði hugsanlega hækkuð […]
Leikfélag Vestmannaeyja opnar nýja heimasíðu

Leikfélag Vestmannaeyja opnaði nú fyrir skömmu nýja heimasíðu félagsins. Leikfélagið fagnar í ár 100 ára afmæli sínu og af því tilefni var ákveðið að ráðast í gerð nýrrar heimasíðu þar sem hægt verður að finna allar helstu upplýsingar um félagið. Síðan er enn í vinnslu en hægt er að kíkja á hana með því að […]
Hópferð til Keflavíkur

ÍBV mun bjóða upp á hópferð á leik Keflavíkur og ÍBV í síðustu umferð Íslandsmótsins en mikil spenna er fyrir síðustu umferðina því þrjú lið eiga enn möguleika á titlinum eftirsótta. Allir leikir síðustu umferðarinnar fara fram á laugardaginn klukkan 14:00 en nánari útlistun á ferðatilhögun og skráningu í ferðina má sjá hér að neðan. […]
Finnur og Tryggvi í leikbanni gegn Keflavík

Finnur Ólafsson og Tryggvi Guðmundsson, leikmenn ÍBV taka báðir út leikbann í síðustu umferð Íslandsmótsins þegar ÍBV sækir Keflavík heim. Eyjamenn eiga enn möguleika á Íslandsmeistaratitli en verða að treysta á að Breiðablik misstígi sig þar sem stigi munar á liðunum. Ekkert nema sigur kemur til greina þar sem Breiðablik er með mun hagstæðara markahlutfall. […]
Um sjósetningarbúnað björgunarbáta Herjólfs

Lengi hafa undirritaðir haft áhuga á öryggismálum sjómanna. Og frá árinu 1980, sérstaklega sjósetningarbúnaði gúmmíbjörgunarbáta. Sá fyrsti var settur í Kap II VE 4, 24. febrúar 1981. Síðan höfum við fylgst með öðrum gerðum sjósetningarbúnaðar, hér á landi, eftir því sem tilefni hafa gefist til. Hafa þær ekki náð fótfestu og er sú fyrsta, sem […]
Vestmannaeyjar hættulegasti staður landsins?
Samkvæmt úttekt í DV eru flestar líkamsárásir á landinu í Vestmannaeyjum. Samkvæmt úttektinni voru 82 líkamsárásir sem komu inn á borð lögreglunnar. En í öðru sæti eru Suðurnes með 62 líkamsárásir. Ekki er ólíklegt að þjóðhátíðin skekki myndina svolítið en auk þess er Goslokahátíðin orðin ein af stærri bæjarhátíðum landsins. DV segir að umdæmi Vestmannaeyja […]
Einn fékk gistingu eftir að hafa slegið mann á Lundanum
Lögreglan hafði í þó nokkur horn að líta í vikunni sem leið við hin ýmsu verkefni. Eins og vanalega var erill í kringum skemmtistaði bæjarins um helgin og þurfti að aðstoða fólk sökum ölvunarástand þess. Ein líkamsárás var kærð til lögreglu í vikunni sem leið en hún átti sér stað á veitingastaðnum Lundanum aðfaranótt 15. […]
Bílabúð Benna sýnir sitt besta um helgina

Bílabúð Benna sækir Vestmannaeyjar heim um næstu helgi, 25. og 26. september, með alla nýjustu Chevrolet bílana sína og hinn magnaða Cayenne dísel frá Porsche. Bílasýningin er haldin við Básaskersbryggju, laugardag frá kl. 10-16 og sunnudag frá kl. 12-16. (meira…)
�?líðandi framkoma

Í ljósi atviks sem átti sér stað í leik ÍBV og Stjörnunar í Pepsídeild karla síðastliðin sunnudag. Er rétt að árétta að knattspyrnuráð ÍBV lítur málið mjög alvarlegum augum og mun hafa samband við þá aðila sem áttu hlut að máli. Slík framkoma er með öllu ólíðandi á knattspyrnuvellinum, sem og í samfélaginu yfir höfuð, […]
Bæjarstjórn vill aukna aðstoð við flugið

Bæjarstjórn Vestmannaeyja fór yfir samgöngumál Vestmannaeyja á fundi sínum á fimmtudaginn. Farið var yfir málefni Landeyjahafnar og bókun samþykkt samhljóða þar sem m.a. var ítrekað að þjóðvegurinn til Vestmannaeyja mætti ekki rofna. „Í ljósi þess að líkur eru til að vandkvæði við Landeyjahöfn verði nokkur fyrsta árið hvetur bæjarstjórn mjög eindregið til þess að flugrekstraraðilar […]
Halldór Orri hefur ekki áhuga á að gera Eyjamönnum neinn greiða

„Við eigum Blika þarna í síðasta leik en maður hefur nú svo sem ekki mikinn áhuga á því að vera að gera Eyjamönnum einhvern greiða eftir framkomu stuðningsmanna þeirra í gær,“ segir Halldór Orri Björnsson sem var skotspónn nokkurra einstaklinga í áhorfendahópnum á Hásteinsvelli í leik ÍBV og Stjörnunnar í gær. Halldór kvartar líka yfir […]
Fordómar á Hásteinsvelli inn á borð aganefndar?

Samkvæmt Fótbolta.net var það Halldór Orri Björnsson, leikmaður Stjörnunnar sem varð fyrir kynþáttafordómum á Hásteinsvelli í gær. Einhver úr stúkunni kallaði Halldór Orra albinóa, oftar en einu sinni en í tvígang varð Magnús Þórisson, dómari leiksins að biðja vallarþul á Hásteinsvelli að minna áhorfendur á sýna háttvísi og láta af fordómum í garð leikmanna. (meira…)
�?lgerðin og ÍBV halda samstarfinu áfram

Í hálfleik í leik ÍBV og Stjörnunnar var undirritaður nýr fimm ára samningur milli Ölgerðarinnar og ÍBV-íþróttafélags. Samstarfið hefur varað í átta ár en Ölgerðin er stærsti styrktaraðili félagsins. Þótt enn séu tvö ár eftir af núgildandi samningi, var vilji beggja aðila til að framlengja samningnum á þessum tímapunkti. (meira…)
�??�?g las leikinn en það gerði dómarinn ekki�??

Tryggvi Guðmundsson bar fyrirliðabandið í dag en hann leikur ekki meira með ÍBV í sumar þar sem hann fékk gult spjald og verður í leikbanni í síðustu umferðinni. Tryggvi var alls kostar ekki sáttur við spjaldið. (meira…)
Enn er von

ÍBV heldur enn í vonina um Íslandsmeistaratitil eftir að næst síðustu umferð Íslandsmótsins lauk nú undir kvöld. Eyjamenn lögðu Stjörnuna að velli á Hásteinsvellinum 2:1 í spennandi leik en Eyjamönnum gekk illa að skora þriðja markið og á meðan náðu gestirnir úr Garðabænum að ógna marki ÍBV nokkrum sinnum. En í heildina er sigurinn þó […]