Jón Kristinn Íslandsmeistari í annað sinn

Íslandsmót barna 10 ára og yngri fór fram í Eyjum á sunnudaginn. Jón Kristinn Þorgeirsson, frá Akureyri varð Íslandsmeistari annað árið í röð en Jón Kristinn sigraði alla andstæðinga og hlaut átta vinninga af átta mögulegum. Eyjapeyjarnir Sigurður Arnar Magnússon, Jörgen Freyr Ólafsson og Róbert Aron Eysteinsson röðuðu sér í næstu sæti í þessari röð. […]
Búast má við gæsahúð og blóðnösum fyrir lengra komna

Það verður mikið um dýrðir og háa tóna föstudagskvöldið 4. júní en þá ætla allir helstu rokk- og eðalsöngvarar landsins að koma saman í Höllinni Vestmannaeyjum og fara í gegnum alla „hittarana“ frá sjöunda, áttunda og níunda áratugnum. Sjaldan eða aldrei hafa jafn margar stjörnur komið saman í Höllinni á einu sviði og má búast […]
Stelpurnar taka á móti HK í kvöld

Kvennalið ÍBV tekur á móti HK í handbolta í kvöld klukkan 19.30. Þetta er jafnframt síðasti leikur stelpnanna í deildarkeppni Íslandsmótsins en liðið situr í þriðja sæti með 19 stig, eins og reyndar Fjölnir/Afturelding og FH en FH á leik til góða eins og ÍBV. Sigur í kvöld tryggir ÍBV þriðja sætið og um leið […]
Eyjamenn sterkir á heimavelli

ÍBV hefur sigrað í 10 af síðstu 11 leikjum meistaraflokks karla karla. ÍBV tapaði gegn Selfossi 22. janúar í hörkuleik. ÍBV hefur unnið alla leiki sína heima, nema gegn Selfossi 14. nóv. Sá leikur var spennandi og ÍBV var með sigurinn í hendi þegar annar dómarinn tók leikinn í sínar hendur og rétti Selfossi sigurinn. […]
Anton, Arnór, Gauti og Elías Fannar í KFS á láni

KFS hefur fengið Anton Bjarnason, Arnór Eyvar Ólafsson, Elías Fannar Stefnisson og Gauta Þorvarðarson á láni frá ÍBV. Leikmennirnir eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu sem stendur og þar sem að ÍBV á einungis einn leik eftir í Lengjubikarnum þá hafa þeir fengið að fara á láni í KFS til að komast í betri leikæfingu fyrir Íslandsmótið. […]
�?mmusúkkulaði, pönnukökur og vöfflur á Café Varmó

Nýtt kaffihús, Café Varmó, verður opnað að Kirkjuvegi 10 á skírdag, 1. apríl. Hjónin Aldís Atladóttir og Kristinn Andersen eiga og reka kaffihúsið og Aldís segir nafnið koma frá ættaróðalinu og æskustöðvunum. (meira…)
Hermann með slitna hásin?
Flest bendir til þess að Hermann Hreiðarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, hafi slitið hásin í fæti í leik Portsmouth gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Tottenham, talaði meira um meiðsli Hermanns en sigur sinna manna í leikslok. Hermann var borinn sárþjáður af velli í seinni hálfleiknum á White Hart Lane og þurfti […]
Íslandsmót barn hefst í fyrramálið
Á morgun, sunnudaginn 28. mars fer fram Íslandsmót barna í Vestmannaeyjum. Um er að ræða yngsta aldurshópinn sem tekur þátt í Íslandsmótinu, börn fædd 1999 og síðar en það er Taflfélag Vestmannaeyja sem hefur umsjón með mótinu. Mótið hefst klukkan 9.00 í Tónlistarskólanum við Vesturveg og skora forráðamenn TV á alla krakka á þessum aldri […]
Hermann meiddist illa í dag
Hugsanlegt er að tímabilinu sé lokið hjá Eyjamanninum Hermanni Hreiðarssyni en hann virtist meiðast illa í leik Tottenham og Portstmouth í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hermann var borinn útaf með á 51. mínútu og var með súrefnisgrímu þegar hann var borinn af velli. Svo virðist sem að landsliðsfyrirliðinn hafi misstigið sig svona illa en enginn […]
�?etta var bara snilld

„Þetta var bara snilld, algjör snilld og ég tileinka Jóa Grettis sigurinn en strákurinn á afmæli í dag. En þetta var bara gaman, fullt af fólki og svona vill maður bara hafa þetta, alvöru stuðning. Þeir hafa reyndar verið frábærir í allan vetur en þetta var sérstaklega skemmtilegt í dag,“ sagði Sigurður Bragason, fyrirliði ÍBV […]
Sanngjarn sigur Eyjamanna

Eyjamenn báru sigur úr býtum í Suðurlandsskjálfanum þegar suðurlandsliðin ÍBV og Selfoss áttust við í Eyjum í dag. Eyjamenn voru yfir allan tímann og verður sigur þeirra að teljast nokkuð sanngjarn. Þó var smá spenna undir lok leiksins þegar Selfyssingum tókst að minnka muninn úr 30:25 í 30:28 en Eyjamenn skoruðu síðustu tvö mörk leiksins […]
Hlíf Ungfrú Suðurland

Keppnin Ungfrú Suðurland fór fram í gærkvöldi á Hótel Selfossi. Hlíf Hauksdóttir, leikmaður ÍBV í knattspyrnu, var valin Ungfrú Suðurland en aðrar Eyjastúlkur fengu fjölmörg verðlaun. Birgitta Ósk Valdimarsdóttir varð í öðru sæti og Ragna María Gestsdóttir í því þriðja. Sara Dögg Guðjónsdóttir var valin vinsælust en Thelma Sigurðardóttir var valin ljósmyndafyrirsæta og Sportstúlka. (meira…)
Nýi vegurinn til Vestmannaeyja – Bylting í samgöngumálum
Nýi þjóðvegurinn til Vestmannaeyja er í augsýn. Í fyrradag var auglýst ferðaáætlun og verðskrá, en nýi vegurinn verður tekinn í notkun þann 1. júlí n.k. Þrátt fyrir að Eyjamenn hefðu viljað hafa áætlunina eitthvað öðruvísi verður hér um gífurlega byltingu að ræða í samgöngumálum. Segja má að loksins núna árið 2010 séu Eyjamenn að komast […]
Nemendur ráða fullvel við krefjandi verkefni

Í síðasta tölublaði Frétta mátti finna tvær aðsendar greinar, annars vegar frá Ólafi H. Sigurjónssyni, skólameistara FÍV og hins vegar frá Guðna Frey Sigurðssyni, úr nemendaráði FÍV þar sem þeir lýsa yfir vanþóknun sinni á umfjöllun minni um árshátíð FÍV. Mig langar að nota tækifærið og koma nokkrum hlutum á hreint því mér sýnist ákveðinn […]
Býður Eyjamönnum bíla á Bakkaflugvelli

Hertz bílaleiga er nú með bílaleigu á Bakkaflugvelli. Sigfús Sigfússon, einn eigenda Hertz, hefur áður þjónustað Eyjamenn, hann var um tíma markaðsstjóri Íslandsflugs og var með ALP bílaleigu sem var m.a. með bíla á Bakkaflugvelli. „Ég kynntist mörgum góðum Eyjamönnum þegar ég var markaðsstjóri hjá Íslandsflugi á árunum 1990 til 2000,“ sagði Sigfús. (meira…)
Yngsta sveitin og mæta með þrjú frumsamin lög

Eyjatríóið Dólgarnir spilar á lokakvöldi Músíktilrauna sem fram fer á laugardaginn. Dólgarnir tóku þátt í öðru undankvöldi keppninnar en voru ekki meðal þeirra tveggja sveita sem komust áfram þá. Hins vegar velur dómnefndin aukasveitir eftir á, sem fá tækifæri á lokakvöldinu og voru Dólgarnir ein þriggja sveita sem urðu fyrir valinu. (meira…)
Eyjamenn ætla að tjalda öllu sem þeir eiga

Eins og áður hefur komið fram, verður stórleikur á morgun, laugardag í 1. deild karla þegar Selfyssingar koma í heimsókn. Eyjamenn eiga harma að hefna eftir ósanngjarnt tap fyrir Selfyssingum þegar liðin mættust síðast í Eyjum þar sem dómarapar leiksins var full mikið áberandi. Til að auka stemmninguna hefur ÍBV ákveðið að allir þeir sem […]
Margoft verið varað við ofveiði
Alþingi samþykkti á mánudag frumvarp sjávarútvegsráðherra sem meðal annars heimilar veiðar á skötusel gegn gjaldi. Lögin hafa verið mjög umdeild meðal útvegsmanna ekki síst vegna þess að veiðiheimildir í skötusel voru skertar um 500 tonn á yfirstandandi fiskveiðiári. Nú er ráðherra heimilt að úthluta 2000 tonnum á fiskveiðiárinu 2009 til 2010 og einnig 2010 til […]
Eyjapeyjar eiga harma að hefna gegn Selfossi

Á morgun, laugardag klukkan 13.30 leikur karlalið ÍBV mikilvægasta leik sinn í vetur þegar Selfyssingar koma í heimsókn. Selfoss er í efsta sæti 1. deildar sem gefur sjálfkrafa þátttökurétt í úrvalsdeild að ári. Lið í 2. til 4. sæti leika um eitt laust sæti í efstu deild ásamt liðinu í næstneðsta sæti í úrvalsdeild. Enn […]
Íslandsmót barna haldið í Vestmannaeyjum um helgina

Um helgina var haldið Íslandsmót barnaskólasveita, fyrir börn fædd 1997 og síðar, í Smáralindinni í Reykjavík. Til stóð að senda þrjár sveitir til leiks frá Eyjum en vegna óveðurs sem gekk yfir Eyjarnar á sunnudagsmorguninn, var hætt við að senda börnin með Herjólfi. Hins vegar náðist að smala saman í eina sveit þar sem nokkrir […]