Á líka að kjósa um kvóta í landbúnaði, um laxveiðiárnar, um leigu landeigenda og fleira?
Ég er einn af þeim sem tel að ýmislegt megi laga og bæta í núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi,en ég kem ekki auga á hvernig eigi að kjósa um málið. Á að spyrja kjósendur, viljið þið taka kvótann af núverandi aðilum sem hafa hann til umráða. Eflaust gætu menn fengið þá niðurstöðu að rétt væri að hirða kvótann […]
Kirkjurnar hressa andann á daginn

Vestmannaeyjabær stendur ekki fyrir gönguferðum eða öðrum uppákomum um páskana eins og undanfarin ár. Kirkjan heldur hins vegar sínu striki enda páskarnir stærsta hátíð kristinna manna. Skemmtistaðir bæjarins láta heldur ekki sitt eftir liggja því og nóg um að vera alla páskana og eldri borgarar verða með þriggja kvölda páskaeggjaspilakeppni í Alþýðuhúsinu næstu þrjú fimmtudagskvöld. […]
�?tisvæðið opnað í dag í tilraunarskyni

Eins og greint var frá í gær, er byrjað að prufukeyra tæki og tól í útisvæði sundlaugarinnar. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að stíga næsta skref og hleypa almenningi í garðinn. Hægt verður að prófa nuddpottinn, aðra af tveimur rennibrautum og vaðlaug, en hún verður þó áfram yfirbyggð vegna lokaframkvæmda. Þá bíða margir spenntir […]
�?væntur gestur væntanlegur á Eyjakvöld á Kaffi kró

Í kvöld verður haldið Eyjakvöld á Kaffi Kró. Eyjakvöldin hafa verið haldin fyrst fimmtudag hvers mánaðar í allan vetur og óhætt að segja að kvöldin hafi slegið rækilega í gegn. Þannig hefur verið fullt út úr húsi síðustu kvöld en á Eyjakvöldunum eru Eyjalögin sígildu rifjuð upp, textunum er varpað upp á skjá þannig að […]
Byrjað að prófa tækin

Nú liggur vorið í loftinu og bærinn breytir um brag og nú styttist í sumarið. Margir bíða spenntir eftir sól og yl og hugsa sér gott til glóðarinnar þegar útisvæðið við sundlaugina verður tilbúið. Þá verður væntanlega hægt að hafa það notalegt á sólbaðsbekkjum eða fylgjast með börnunum leika sér í vatnsrennibrautum og fleira skemmtilegu. […]
Margrét Lára skoraði eitt gegn Króatíu

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði eitt marka íslenska landsliðsins í knattspyrnu sem lagði það króatíska í undankeppni Heimsmeistaramótsins í dag. Þetta var 53. mark Margrétar með A-landsliðinu en hún hefur nú spilað 65 leiki með liðinu. Auk þess að skora nældi hún sér í guld spjald. (meira…)
Vestmannaeyjameistaramótið í FIFA haldið um páskahelgina

Dagana 2. og 3. apríl næstkomandi verður haldið Vestmannaeyjameistaramótið í FIFA en þetta er í annað sinn sem mótið er haldið. Í fyrra tókst mótið með eindæmum vel, 22 spilarar tóku þátt og því var ákveðið að blása til leiks á ný um páskana. Skráning í mótið hófst í gær og fór vel af stað […]
Áfram Ísland, ekkert ESB
Áfram Ísland, ekkert ESB er yfirskrift fundar í Akoges salnum í kvöld, miðvikudaginn 31. mars kl. 20:00. Frummælendur verða Elliði Vignisson bæjarstjóri og Eygló Harðardóttir þingmaður. Fundurinn er í röð funda Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum. Alþingi samþykkti með naumum meirihluta þann 16. júlí 2009 að sækja um aðild að Evrópusambandinu. (meira…)
Styrktarkvöld ÍBV á Spot í Kópavogi í kvöld
Kokkalandslið Eyjanna mun framreiða glæsilega rétti á Styrktarkvöldi ÍBV á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi í kvöld. Búið er að setja upp glæsilega dagskrá og matseðillinn er ekki síðri en kokkar kvöldsins eru þeir Einsi Kaldi, Grímur, Siggi Gísla, Palli Grétars og Kári Fúsa. Eftir kvöldið mun svo stuðbandið Tríkot halda uppi stuðinu fram á rauða […]
Breytingar á reglugerðum um skötuselsveiðar

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, hefur undirritað tvær reglugerðir er snerta veiðar á skötusel. Annars vegar er um að ræða sérstaka úthlutun á 500 tonnum af skötusel á fiskveiðiárinu 2009 til 2010 og hins vegar breytingar á reglugerð varðandi veiðar á skötusel í net. Fréttatilkynningu frá landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytinu má lesa hér að neðan. (meira…)
�??Vil ekki enda ferilinn með þessum hætti�??
„Ég fór í myndatöku í gær og fékk þá niðurstöðu að hásinin á vinstri fætinum er slitin eins og ég vissi. Ég heyrði smellinn og fann strax að hásinin hefði slitnað og því komu þessar fréttir mér ekkert á óvart,“ sagði Hermann Hreiðarsson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Portsmouth og fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, í samtali […]
�?riðja sætið niðurstaðan

ÍBV tapaði fyrir Aftureldingu í kvöld í 1. deild Íslandsmótsins í handbolta en leikur liðanna fór fram í Mosfellsbæ. Eyjamenn þurftu nauðsynlega á sigri að halda ef liðið ætlaði sér að ná í 2. sæti deildarinnar. Sú varð ekki raunin, lokatölur urðu 30:27 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13:11 í hálfleik. Það liggur […]
Aukning aflaheimilda löngu tímabær

Það hefði átt að auka aflaheimildir hér við land strax um leið og kreppan skall á. Hefði slíkum aðgerðum verið stýrt rétt, þá hefði það hefði bjargað miklu; skapað atvinnu og gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið. (meira…)
�?rslitaleikur í kvöld hjá strákunum

Í kvöld, klukkan 19.30 leikur karlalið ÍBV úrslitaleik um 2. sætið í 1. deild Íslandsmótsins í handbolta þegar liðið sækir Aftureldingu heim. Annað sætið er mikilvægt því það gefur heimaleikjarétt í þriðja leik í undanúrslitunum ef til þess kemur. Ekkert nema sigur í kvöld heldur voninni lifandi hjá ÍBV enda munar tveimur stigum á ÍBV […]
Hermann í aðgerð á næstu vikum
Hermann Hreiðarsson leikmaður Portsmouth og fyrirliði íslenska landsliðsins reyndist vera með slitna hásin eins og óttast var þegar hann var borinn af velli í viðureign Portsmouth og Tottenham á laugardag. Hermann staðfesti við mbl.is í morgun að hásinin væri slitin og hann myndi gangast undir aðgerð í næstu viku en hann fór í myndatöku í […]
23 skemmtiferðaskip til Eyja í sumar

23 skemmtiferðaskip hafa bókað komu sína til Vestmannaeyja en fyrsta skipið kemur 24. maí. Af þessum 23 skipum er áætlað að fimm þeirra muni liggja á ytri höfninni vegna stærðar. Til samanburðar þá voru þrettán skipakomur skemmtiferðaskipa til Eyja síðasta sumar og samtals voru það níu skip. (meira…)
Vestmannaeyjar ákjósanlegur staður til að beisla vindorku og sjávarföll

Í síðustu viku bauð Nýsköpunarmiðstöð Íslands Eyjamönnum upp á námskeið sem nefnist Orkubóndinn og fjallar eins og nafnið bendir til um orku og orkunotkun og ekki síst nýjar leiðir til orkuöflunar. Þetta var sjöunda námskeiðið sem Nýsköpunarmiðstöð hefur haldið vítt og breitt um landið og hefur aðsókn að þeim verið afar góð. Sú var einnig […]
Rólegur en áhugaverður leikur

Leikur ÍBV og HK í 2. deild kvenna fer seint í sögubækurnar fyrir áferðarfallegan handbolta eða mikla spennu. Eyjastúlkur höfðu nokkra yfirburði en voru samt í miklum vandræðum með sinn leik, sérstaklega í fyrri hálfleik gegn framliggjandi vörn HK. Sigurinn var þó aldrei í hættu og lokatölur urðu 28:17 en staðan í hálfleik var 10:6. […]
Albert, Yngvi og Ingó skrifuðu undir hjá ÍBV

Þrír knattspyrnumenn skrifuðu undir samning hjá ÍBV í kvöld. Þetta eru reynsluboltarnir Albert Sævarsson, markvörður og miðjumaðurinn Yngvi Borgþórsson en báðir framlengja þeir samningi sínum um eitt ár. Auk þeirra skrifaði hinn ungi Ingólfur Einisson undir tveggja ára samning hjá ÍBV en Ingólfur hefur gengið í gegnum alla yngri flokka ÍBV en er nú að […]
Rólegt hjá löggunni
Það var frekar rólegt hjá lögreglu í vikunni sem leið og engin alvarleg mál sem upp komu. Að vanda fór vinna lögreglu um helgina í að aðstoða fólk vegna ölvunarástands þess en það var þó með minna móti um sl. helgi en undanfarnar helgar. Að morgni sl. föstudags var lögreglu tilkynnt um vinnuslys í fiskvinnslufyrirtækinu […]