Skipstjóri dæmdur fyrir að vigta ekki afla
Skipstjóri í Vestmannaeyjum var dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir brot á lögum um umgengni um nytjastofna sjávar og fyrir brot á lögum um stjórn fiskveiða. Hann var ákærður fyrir að hafa í júní 2008, eftir að vigtun var lokið úr skipinu eftir veiðiferð, sett óvigtað fiskikar sem innihélt 243 kíló af slitnum humri og 20 […]
Aukin verðmæti og fjölbreyttari veiðar á makríl

Makríllinn er flökkustofn sem hefur á síðustu árum komið tímabundið í miklu magni inn í íslenska lögusögu. Svo ótrúlegt sem það kann að sýnast hafa ýmsir hafa velt því fyrir sér hvort hægt sé að stýra veiðum á makríl utan gildandi laga en því fer víðsfjarri. Gildandi lög kveða á um um stjórn veiða úr […]
Dufþekja eða Duftþekja?
Saga Dufþaks kemur fram í sögunni um landnám Vestmannaeyja, þar sem segir frá því að Ingólfur Arnarson hafi elt hann ásamt fleiri Írskum þrælum til Eyja árið 920, vegna þess að þeir höfðu drepið fóstbróður hans. Þessi saga hefur oft verið í huga mér, vegna þess að sennilega eru fáir núlifandi Eyjamenn sem hafa farið […]
Leik ÍBV og Víkings frestað um einn dag

Leikur ÍBV og Víkings í lokaumferð 1. deildar karla hefur verið færður um einn dag. Leikurinn átti upphaflega að fara fram á morgun, miðvikudag en hefur verið færður til fimmtudags. Leikurinn hefst klukkan 19:30. Leikurinn skiptir engu máli fyrir lokastöðu liðanna, Eyjamenn eru öruggir með þriðja sætið og Víkingar með það fjórða. (meira…)
Dyravörður sleginn í Höllinni
Það var í mörg horn að líta hjá lögreglu í sl. viku og um Páskahelgina, enda töluvert um skemmtanir á skemmtistöðum bæjarins. Nokkuð var um pústra á og við skemmtistaði og voru tvær líkamsárásir kærðar til lögreglu. Þá var eitthvað um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum auk þess sem aðstoða þurfti fólk vegna hinna ýmsu […]
Aðgengi þarf að vera betra og ökumenn þurfa að vera tillitssamari

Óskar Elías Óskarsson fór með Herjólfi frá Eyjum síðdegis 31. mars síðastaliðinn. Hann sendi ritstjórn Eyjafrétta nokkrar línur því honum finnst aðkoma bíla að ferjunni ekki nógu góður. Auk þess telur hann skorta verulega á tillitsemi ökumanna sem eru á leið í skipið og að ökumenn virði þær merkingar sem eru á planinu við skipið. […]
Hljómsveitin Dikta sækir Eyjamenn heim

Þann 21. apríl, síðasta vetradag mun vinsælasta band Íslands í dag mæta í Höllina og halda magnaða tónleika fyrir Eyjamenn. Þetta er bandið Dikta sem hefur slegið heldur betur í gegn í ljósvakamiðlum, á þar tvö topplög og er að gera allt vitlaust í bænum. Dikta hélt magnaða tónleika á NASA um daginn og komust […]
Hægt að kjósa frá og með deginum í dag
Frá og með deginum í dag, þriðjudaginn 6. apríl verður hægt að kjósa utan kjörfundar í sveitastjórnarkosningum. Kosið verður 29. maí næstkomandi en frestur til að skila inn framboðslista rennur út 8. maí næstkomandi. Og þá vandast málið. Hvað á að kjósa? Eins og staðan er í dag liggur ekki ljóst fyrir hvaða framboð hægt […]
Sjóvá styrkir barna- og unglingastarf ÍBV næstu árin

ÍBV-íþróttafélag og tryggingafélagið Sjóvá skrifuðu um helgina undir samning þess efnis að Sjóvá kemur myndarlega að barna- og unglingastarfi ÍBV næstu þrjú árin. ÍBV-íþróttafélag er mjög ánægt með að ná samningum við Sjóvá með áherslu á yngri flokka félagsins. Sigurjón Andrésson markaðstjóri Sjóvá og Sigurður Bragason þjónustustjóri Sjóvá í Vestmannaeyjum skrifuðu undir samninginn fyrir hönd […]
Engin hætta á ferðum þegar landfestar Álseyjar VE slitnuðu
Mikið rok er nú í Eyjum en klukkan 7.00 í morgun mældist meðalvindhraði 30 metrar á sekúndu og í nótt fóru mestu hviðurnar upp í 37 metra á sekúndu. Landfestar uppsjávarskipsins Álseyjar VE slitnuðu í morgun en Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri hjá Ísfélaginu, sem á og rekur skipið, segir enga hættu hafa verið á ferðinni. (meira…)
Dýpkun Landeyjahafnar hófst um helgina

Framkvæmdir í Landeyjahöfn ganga vel en um Páskana var byrjað að dýpka höfnina. Það er dýpkunarskipið Perla, sem er í eigu fyrirtækisins Björgun hf., sem vinnur verkið en bæði þarf að dýpka innsiglingarrennuna og sjálft hafnarsvæðið. Óskar Elías Óskarsson var einmitt að skoða aðstæður í höfninni þegar dýpkun hófst um helgina og sendi hann Eyjafréttum […]
Eyjamaður kennir skák á Grænlandi

Frá árinu 2003 hefur skákfélagið Hrókurinn farið árlega til Grænlands til að kenna skák. Í ár var farið til bæjarins Ittoqqortoormiit við Scoresbysund á austurströnd Grænlands. Tveir héldu frá Íslandi í þessa mikla ævintýraferð, Hróksmaðurinn Arnar Valgeirsson og Eyjamaðurinn Sverrir Unnarsson. Í bænum búa 500 íbúar og líklega helmingi fleiri sleðahundar en þeir Sverrir og […]
Hefur opnað vefsíðu vegna sveitarstjórnarkosninganna

Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 29. maí næstkomandi. Til upplýsinga fyrir kjósendur hefur Dóms- og mannréttindaráðuneytið opnað vefsíðu www.kosning.is. Þar er að finna ýmsar hagnýtar upplýsingar er lúta að kosningunum. Enn sem komið er hefur enginn í Vestmannaeyjum kynnt framboð sitt og óvíst hversu mörg framboðin verða. (meira…)
Fögur fjallasýn með gufstrókinn af Fimmvörðuhálsi á bakgrunni

Í blíðskaparveðrinu í dag hefur gufustrókurinn frá gosinu á Fimmvörðuhálsi sést vel frá Eyjum. Egill Egilsson var á ferðinni austur á Heimaey og smellti nokkrum myndum í austurátt, þar sem vel mátti sjá gufustrókinn og fjallasýnin var ægifögur. (meira…)
Páskar

Samkvæmt söguhefð gyðinga eiga páskarnir uppruna í útförinni af Egyptalandi (Exodus) er Móses leiddi Ísraelsmenn út úr ánauðinni hjá faraó, gegnum Rauðahafið og eyðimörkina í átt til hins fyrirheitna lands eins og sagt er frá í Biblíunni í 12. kapítula 2. Mósebókar. Þar segir að Guð hafi sagt Móses að hann ætli að „fara um […]
ið á æfingasvæðið sem er 750m. frá æfingasvæðinu. Fyrri æfing dagsins byrjaði ekki vel því Guðjón Orri fékk skurð á hendina og kom

alveg ótrúleg uppákoma (meira…)
Meistaraflokkar ÍBV dvelja á Spáni við knattspyrnuiðkun

Meistaraflokkur karla og kvenna er núna á Spáni í æfingaferð. Æfingaferðin er liður í undirbúningi liðana fyrir átök sumarsins. Strákarnir eru á stað sem heitir Oliva Nova og stelpurnar eru á Benidorm, um 40 km eru á milli staðanna. Liðin koma svo heim fimmtudaginn 8.apríl. (meira…)
Gengið í Páskahelli í dag
Í dag kl. 14.00 verður gengið í Páskahelli, sem er í nýjahrauninu, sunnan Eldfells. Mæting er við útsýnispallinn gengt Sorpu. Margra ára hefð er fyrir þessari páskagöngu, sem gengin er undir leiðsögn fararstjóra og er á vegum Vestmannaeyjabæjar. (meira…)
Starfsfólk óttast að gripið verði til uppsagna þegar siglingar hefjast í Landeyjahöfn
Siglingastofnun hefur samþykkt fækkun í áhöfn Herjólfs úr 14 til 15 í níu eftir að skipið byrjar að sigla í Landeyjahöfn um mitt sumar eins og áætlað er. Mun þetta einkum bitna á þjónustufólki og hásetum. Hvað gengið verður langt í að fækka í áhöfninni liggur ekki fyrir en ljóst er að allt að 20 […]
Ekki er verið að fækka daglegum heildarfjölda farþega
Vegna fréttar um fækkun farþega í Herjólfi sem birtist í nokkrum fjölmiðlum á dögunum vill Siglingastofnun árétta að takmörkun á farþegafjölda skipsins næsta sumar er óviðkomandi djúpristu þess eða þyngd, eins og hefði mátt skilja af fréttinni. (meira…)