Makríllinn er flökkustofn sem hefur á síðustu árum komið tímabundið í miklu magni inn í íslenska lögusögu. Svo ótrúlegt sem það kann að sýnast hafa ýmsir hafa velt því fyrir sér hvort hægt sé að stýra veiðum á makríl utan gildandi laga en því fer víðsfjarri. Gildandi lög kveða á um um stjórn veiða úr deilistofnum sem ekki eru settir í kvóta. Annars vegar er um að ræða ólympískar veiðar, en þá veiða skipin hvert í kapp við annað uns ákveðnu heildarmagni er náð. Hins vegar er um að ræða tímabundna veiðistjórnun.