Nagladekkin burt á fimmtudaginn

Lögreglan í Vestmannaeyjum bendir eigendum ökutækja að 15. apríl er síðasti dagur sem heimilt er að aka um á nagladekkjum og eru eigendur ökutækja því hvattir til að huga að því að skipta yfir á sumardekkin. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu lögreglunnar en lögreglan mun hins vegar ekki beita viðurlögum strax og verður gefin út […]

Magnús og Lóa skulduðu tæpa 60 milljarða í lok árs 2007

Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er birtur listi yfir 100 stærstu skuldara en tölurnar miðast við lok árs 2007. Vegið er út frá eignarhlut í fyrirtækjum en um er að ræða samanlögð útlán íslensku bankanna. Hjónin Magnús Kristinsson og Lóa Skarphéðinsdóttir eru í 14. og 15 sæti listans, Magnús skuldaði 31,4 milljarða og Lóa 28,4 eða […]

Kári og félagar töpuðu í úrslitum bikarsins

Kári Kristján Kristjánsson og samherjar hans í Amicitia Zürich töpuðu fyrir Pfadi Winterthur, 26:23, í úrslitum svissnesku bikarkeppninnar í handknattleik á síðasta laugardag. Kári Kristján skoraði fjögur mörk í leiknum. Pfadi Winterthur var yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda og var m.a. sex marka forskot í hálfleik, 14:8. (meira…)

Síðustu forsölumiðarnir á Dikta seldir í dag

Miðvikudaginn 21. apríl, síðasta vetrardag, mun ein vinsælasta hljómsveit dagsins halda tónleika í Höllinni. Lag sveitarinnar, Thank you hefur verið vinsælasta lag landsins síðustu vikur en forsölu á tónleikana lýkur í dag á Volcano Café. Miðaverð í forsölu er 2000 kr en miðaverð er 3000 kr. (meira…)

Skýrsla Rannsóknarnefndar komin á netið

Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis er komin út en í skýrslunni er fjallað um aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna. Hægt er að nálgast eintak skýrslunnar hér að neðan en auk þess verður hægt að kaupa skýrsluna í prentaðri útgáfu í bókabúðum. Prentaða eintakið kostar sex þúsund krónur en vefútgáfa skýrslunnar er öllu ítarlegri eða á þriðja […]

Rósa Guðmunds spilar fyrir lykilfólk hjá Sony

Eyjakonan Rósa Guðmundsdóttir hefur undanfarin ár búið í bandarísku stórborginni New York þar sem hún hefur unnið að tónlist sinni. Rósa & Tthe Ultratight heitir bandið hennar en Rósa á í viðræðum við plötuútgáfuna Jive, sem er dótturfyrirtæki Sony og gefur meðal annars út Britney Spears og Justin Timberlake. „Næst á dagskrá er að koma […]

Frjálslyndir ekki í samstarf með öðrum flokkum

Frjálslyndi flokkurinn hefur útilokað framboð með öðrum flokkum í Vestmannaeyjum í sveitastjórnarkosningunum 29. maí. Georg Eiður Arnarson skrifar á bloggsíðu sinni um málið en hann segir að ýmsar þreifingar hafi átt sér stað síðustu vikur sem hafi ekki skilað viðunandi árangri. „Staðan er því þannig að við Frjálslynd munum gefa okkur a.m.k. eina viku til […]

Sparisjóður höfðar mál á hendur ábyrgðarmönnum

Sparisjóður Vestmannaeyja hefur höfðað dómsmál á hendur tveimur ábyrgðarmönnum konu sem fór í greiðsluaðlögun. Sparisjóðurinn krefst þess að ábyrgðarmennirnir greiði skuldir hennar þrátt fyrir að það sé bannað samkvæmt lögum. Sjóðurinn telur ákvæðin í nýlegum ábyrgðamannalögum andstæð stjórnarskrá. (meira…)

Var með lagið í rassvasanum

Söngkeppni framhaldsskólanna fer fram á laugardaginn og verður í íþróttahöllinni á Akureyri eins og undanfarin ár. Landsmenn þurfa ekki að örvænta því keppnin verður í beinni útsendingu Stöðvar 2 og það sem meira er, útsendingin er í opinni dagskrá. Fulltrúi Fram­halds­skólans í Vestmannaeyjum er söngkonan Silja Elsabet Brynjars­dóttir en þetta er í annað sinn sem […]

�?skar myndaði eldgosið

Óskar Pétur Friðriksson fór í síðstu viku að gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi. Óskar og ferðafélagar hans lentu heldur betur í ævintýraför því á seinni degi ferðarinnar sáu þeir jörðina rifna og nýju gossprunguna koma í ljós. Óskar myndaði auðvitað það sem fyrir augu bar og má sjá fleiri myndir hér að neðan. (meira…)

Nýir tímar með Landeyjahöfn

Með opnun Land­eyjahafnar í sumar verður bylting í sam­göngumálum Eyja­manna. Til þessa hafa menn einkum einblínt á þær breytingar sem hin nýja sigl­ingaleið hef­ur á þá sem þegar ferðast milli lands og Eyja. Breytingarnar sem verða með hinni nýju höfn eru hins vegar miklu víðtækari. Nýir möguleikar opnast í flutningum á fólki og farmi og […]

�?jóðhátíð 2010 – Uppbygging og stækkun

Það eru spennandi tímar framundan hjá ÍBV-íþróttafélagi og reyndar bæjarbúum öllum. Við erum að fá nýja höfn til að sigla í. Þar mun flutningsgetan margfaldast og margir Eyjamenn spyrja sig hvernig við förum að því að taka við auknum fjölda, þá er einkum horft til þjóðhátíðar sem hefur á undanförnum árum vaxið stöðugt og mun […]

Gamall draumur að verða að veruleika

Gamla skóbúðin, að Vestmanna­braut 23, fær brátt nýtt hlutverk því að þau hjón, Hólmgeir Austfjörð og Jóhanna Inga Jónsdóttir, sem rekið hafa pizzustaðinn Topppizzur að Heiðarvegi 10, hafa keypt húsnæðið og ætla að opna þar grillhús í sumar. „Við erum að vinna á fullu í að koma húsnæðinu í stand, fjórir smið­ir í vinnu eins […]

Ekki í vandræðum með Víkinga í bragðdaufum leik

Það leyndi sér ekki að það var lítið í húfi þegar ÍBV tók á móti Víkingum í síðustu umferð 1. deildar karla í gærkvöldi. Eyjamenn hvíldu nokkra lykilleikmenn og leikurinn var afar bragðdaufur. Meira að segja áhorfendur, sem fjölmenntu á leikinn, voru hinir rólegustu og rétt fögnuðu í lokin þegar sigurinn var í höfn. Eyjamenn […]

Stelpurnar töpuðu fyrir Víkingi í undanúrslitum

Kvennalið ÍBV á ekki lengur möguleika á Íslandsmeistaratitli í 2. deild eftir tap fyrir Víkingi í undanúrslitum deildarinnar. Leikurinn fór fram í gærkvöldi á Seltjarnanesi þar sem úrslitakeppnin fer fram og tapaði ÍBV með níu mörkum, 24:15 en staðan í hálfleik var 11:9. ÍBV leikur því gegn FH um þriðja sætið en FH tapaði í […]

Ferja milli Eyja og Skotlands

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Suð­ur­kjördæmi, hefur lagt fram þings­ályktunartillögu þess efnis að sam­gönguráðherra kanni hagkvæmni ferjusiglinga á milli Vestmannaeyja og Bretlandseyja. Meðflutnings­menn að tillögunni eru fjórir þingmenn Framsóknarflokksins. (meira…)

Tveir leikmenn frá S-Afríku til skoðunar

Karlalið ÍBV dvaldi á Spáni í vikutíma og æfði við bestu hugsanlegu aðstæður en liðið er nú á leið til Íslands. Í ferðinni voru tveir s-afrískir leikmenn til skoðunar en Heimir Hallgríms­son, þjálfari ÍBV, segir ekki víst hvort þeir verði hjá ÍBV í sumar. „Þessir strákar komu algjörlega á eigin vegum til okkar og við […]

Eyjamenn mæta Aftureldingu í umspilinu

Nú er ljóst að ÍBV mætir Aftureldingu í umspili um laust sæti í úrvalsdeild. Selfoss tryggði sér í gærkvöldi annað af tveimur lausum sætum í úrvalsdeild næsta vetur þegar liðið lagði einmitt Aftureldingu á Selfossi og náði um leið efsta sætinu af þeim í 1. deild. Afturelding endar þar með í öðru sæti og mætir […]

Bæjarfulltrúarnir fjórir skipa efstu fjögur sætin

Allir fjórir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sem nú sitja í bæjarstjórn, skipa fjögur efstu sætin á framboðslista flokksins fyrir sveitastjórnarkosningarnar 29. maí næstkomandi. Elliði Vignisson, bæjarstjóri skipar fyrsta sætið, Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs annað sætið, Páll Marvin Jónsson, bæjarfulltrúi skipar þriðja sætið og Gunnlaugur Grettisson, forseti bæjarstjórnar er í fjórða sætið. Listinn var samþykktur nú í kvöld […]

Ruglið nær nýjum hæðum

Málið þar sem skipstjóri í Vestmannaeyjum er dæmdur til að greiða 600 þúsund krónur í sekt fyrir að taka 243 kíló af slitnum humri og 20 kíló af slægðum skötusel framhjá vigt sýnir vel bilunina í þessu blessuðu fiskveiðistjórnunarkerfi. Vinnandi menn – hetjur hafsins og hermenn þjóðarinnar – sem eru vanir að taka með sér […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.