Kvennalið ÍBV á ekki lengur möguleika á Íslandsmeistaratitli í 2. deild eftir tap fyrir Víkingi í undanúrslitum deildarinnar. Leikurinn fór fram í gærkvöldi á Seltjarnanesi þar sem úrslitakeppnin fer fram og tapaði ÍBV með níu mörkum, 24:15 en staðan í hálfleik var 11:9. ÍBV leikur því gegn FH um þriðja sætið en FH tapaði í gær fyrir Gróttu 27:23.