Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, hefur lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að samgönguráðherra kanni hagkvæmni ferjusiglinga á milli Vestmannaeyja og Bretlandseyja. Meðflutningsmenn að tillögunni eru fjórir þingmenn Framsóknarflokksins.