Vatnið í lagi og Herjólfur siglir

Ekki virðast vera líkur á því að neysluvatnslindir Vestmannaeyinga sem eru undir Eyjafjöllum spillist af völdum eldgossins. Fylgst hefur verið grannt með þróun mála og gæði vatnsins mæld og virðist sem hvorki aska né önnur aðskotaefni hafi borist í lindirnar sem eru við bæinn Syðstu-Mörk undir Eyjafjöllum. (meira…)

Erum ekki að fara dreifa grímum og gleraugum eins og staðan er í núna

Eins og fram hefur komið hafa verið fluttar rykgrímur og hlífðargleraugu til Vestmannaeyja vegna hugsanlegs öskufalls á næstu dögum. Karl Gauti Hjaltason, formaður Almannavarnarnefndar Vestmannaeyja segir þó að ekki standi til að dreifa búnaðinum strax. „Við höldum ró okkar og munum taka stöðun hverju sinni. Ef til þess kemur, munum við dreifa búnaðinum en eins […]

Leiðbeiningar vegna gjóskufalls

Talsverð loftmengun fylgir öskufalli frá eldgosinu í Eyjafjallajökli. Umhverfisstofnun hefur tekið saman eftirfarandi leiðbeiningar fyrir almenning vegna gjóskufalls frá eldgosinu í Eyjafjallajökli. Fínasti hluti gjóskunnar flokkast sem svifryk. Öskusýni frá Mýrdalssandi sýna að um fjórðungur kornanna eru svifryk, það er minna en 10 míkron. Svifryk á greiða leið niður í lungu og getur haft óæskileg […]

Búfjáreigendur undirbúi töku búfjár í hús

Spáð er norðan og norðaustan átt síðdegis á morgun, föstudag og má þá búast við öskufalli í Vestmannaeyjum frá eldsumbrotunum í Eyjafjallajökli. Af þessu tilefni beinir Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja þeim tilmælum til búfjáreigenda í Vestmannaeyjum að undirbúa töku búfjár í hús og huga að búfénaður komist ekki í flúormengað vatn. (meira…)

Rykgrímur og hlífðargleraugu send til Vestmannaeyja

Í Vestmannaeyjum og á Höfn í Hornafirði búa menn sig nú undir mögulegt öskufall á morgun. Búist er við því að áframhaldandi vestanátt haldist fram eftir degi en annað kvöld snýst líklega í norðanátt og þá má búast við að öskufallið færist til Eyja og jafnvel yfir Hvolsvöll. Fram kom á stöðufundi Almannavarna nú kl. […]

Fólki ráðlagt að halda sig innandyra

Um þessar mundir berst mikil aska frá eldgosi í Eyjafjallajökli. Askan berst þessa stundina ekki til Vestmannaeyja enda hefur vindur blásið að mestu leyti úr vestri síðan gosið hófst og þannig beint gosmekkinum frá Eyjum. Samkvæmt veðurspánni mun vindáttin hins vegar snúast til norðurs um helgina og á laugardaginn gæti því fallið aska í Eyjum. […]

Náttúrufegurð Eyjanna fær að njóta sín í myndbandi þýskrar rokksveitar

Þýska rokksveitin Killerpilze tók á dögunum upp myndband í Vestmannaeyjum við lagið Am Meer. Myndbandið er nú klárt og má sjá afraksturinn hér að neðan en í myndbandinu fær náttúrugefurð Eyjanna að njóta sín. Sveitina skipa þrír ungir þjóðverjar, þeir Fabi sem er sautján ára , Max er tuttugu og eins og Jo er tvítugur […]

Kiwanisklúbburinn Helgafell gaf sjúkrarúm

Í gær fóru félagar úr Kiwanisklúbbnum Helgafelli upp á Hraunbúðir og gáfu heimilinu fullkomið sjúkrarúm af bestu gerð. Rúmið er eitt fjölmargra sem klúbburinn hefur gefið heimilinu en það var Magnús Jónasson, deildarstjóri sem veitti rúminu viðtöku. Einar Friðþjófsson, forseti Helgafells afhenti rúmið en Magnús þakkaði Kiwanismönnum fyrir þessa höfðinglegu gjöf og fyrir þann hlýhug […]

Fundi um golf og ferðaþjónustu frestað

Í kvöld, fimmtudaginn 15. apríl var áætlað að halda fund í Golfskálanum um golf og ferðaþjónustu og áhrif bættra samgangna á golf og ferðaþjónustu í Eyjum. En vegna eldsumbrotanna í Eyjafjallajökli, hefur fundinum verið frestað um óákveðinn tíma. Nýr fundartími verður auglýstur síðar. (meira…)

Flogið upp á Bakkaflugvöll en ekki til Reykjavíkur

Flugfélag Íslands hefur ekki getað flogið til Vestmannaeyja í morgun vegna eldgossins. Í frétt Ríkisútvarpsins kom fram að fimm hafi átt bókað far til Eyja en tíu ætluðu að fara frá Eyjum. Allt bendir til að síðdegisfluginu verði einnig frestað nema vindátt breytist. Flugfélag Vestmannaeyja hefur hins vegar flogið eina ferð í dag upp á […]

Verið að leggja lokahönd á uppstillingu

Í síðasta blaði Frétta var listi Sjálfstæðismanna í Vest­mannaeyjum birtur og því ljóst hvaða frambjóðendur úr þeirra röðum gefa kost á sér fyrir bæjarstjórnarkosn­ingarnar sem fara fram 29. maí. Þegar leitað var frétta af öðrum framboðum kom fram að framsóknarmenn í Vestmanneyjum eru ákveðnir í að bjóða fram lista og sömuleiðis verður V-listi, Vest­manna­eyjalistans, með […]

Stóðu sig vel í Upplestrarkeppni Grunnskólanna

Á þriðjudaginn héldu nemendur 7. bekkjar til Þorlákshafnar til að taka þátt í upplestrarkeppni Grunnskóla. Undanfarin ár hefur Grunnskóli Vestmannaeyja att kappi við nemendur úr Grunnskóla Þorlákshafnar. Ýmist hafa þau komið hingað eða við skundað til Þorlákshafnar. Keppendur frá okkur voru átta en sex frá Grunnskóla Þorlákshafnar. Skemmst er frá að segja að við hirtum […]

Höfnin heil eftir hlaupið

Eins og gefur að skilja höfðu margir áhyggjur af Landeyjahöfn þegar í ljós kom að í vændum var mikið hlaup í Markarfljóti. Þær áhyggjur reyndust hins vegar óþarfar því eftir að starfsmenn Suðurverks höfðu skoðað framkvæmdasvæðið kom í ljós að engar skemmdir urðu á svæðinu, hvorki á hafnarmannvirkjunum né efnislagernum, sem er við bakka Markarfljóts. […]

Engin hætta á flóðbylgju í Eyjum

Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja fundaði nú fyrir stuttu vegna þeirra breytinga sem orðið hafa á eldgosinu í Eyjafjallajökli og hlaupi því sem það hefur þegar valdið. Fyrir lágu upplýsingar frá almannavarnarnefnd ríkisins um stöðuna og hugsanleg áhrif fyrir íbúa í Vestmannaeyum. Elliði Vignisson, varaformaður nefndarinnar og bæjarstjóri í Vestmannaeyjum segir helstu niðurstöðurnar vera þær að líkur á […]

Fylgst með vatninu

Ívar Atlason hjá Hitaveitu Suðurnesja sagði í samtli við Eyjafréttir að nú væri fylgst vel með vatninu sem berst til Eyja. Vatnsból Eyjamanna er aðeins í þrettán kílómetra fjarlægð frá gosinu í Eyjafjallajökli en Ívar segir að prufur sem teknar voru í morgun, hafi sýnt að vatnið væri í góðu lagi. „Við tókum sýni klukkan […]

Mikið sjónarspil – gufustrókar standa langt upp í loft

Nú virðist sem eldgosið undir Eyjafjallajökli sé að bæta í því gufustrókar standa mörg þúsund fet upp úr jöklinum. Gufustrókarnir sáust vel frá Vestmannaeyjum fyrir stuttu en nú hefur skýjahula dregið úr útsýninu. Óskar Pétur Friðriksson myndaði gufustrókinn eins og hann sást fyrir skömmu. (meira…)

Vorboðinn ljúfi sestur upp

Víðast hvar er lóan talinn vera vorboðinn ljúfi en því er öðruvísi háttað í Vestmannaeyjum. Hér bíða flestir spenntastir eftir því hvenær lundinn sest upp í fjöll en það gerðist einmitt í dag, 13. apríl. Þórarinn Sigurðsson, rafvirki og sérlegur áhugamaður um lundastofninn, sá lunda upp í fjalli síðdegis í dag. Georg Eiður Arnarson, útgerðarmaður […]

Lög afnámu ekki sjálfskuldarábyrgð

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt konu og karl til að greiða Sparisjóði Vestmannaeyja 1.024.686 krónur. Um var að ræða sjálfskuldaábyrgð en fólkið hélt því fram að ábyrgð þeirra væri ekki lengur fyrir hendi, s.s. vegna nýlegra breytinga á lögum um ábyrgðamenn. Dómurinn taldi lögin hins vegar ekki afturvirk. (meira…)

Ekið utanvega á friðuðu landi

Á sama tíma og margir landsmenn fylgdust með umfjöllun fréttamiðlanna um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis var fríður hópur fólks að leika sér á torfæruhjólum á nýja hrauninu á Heimaey. Svæðið sem það valdi sér nýtur hverfisverndar samkvæmt Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2002-2014, það er á náttúruminjaskrá auk þess sem það nýtur sérstakrar verndar samkvæmt 37. gr laga um […]

�??Látum okkur stórbrotna sögu Vestmannaeyja vera lærdóm, hvatningu og fyrirmynd�??

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og þingmaður Vinstri-Grænna fór mikinn í ræðustól Alþingis þegar umræða um skýrslu rannsóknarnefndarinnar var tekin fyrir í dag. Steingrímur vildi að landsmenn allir, tækju sögu Vestmannaeyja og baráttuanda Eyjamanna sér til fyrirmyndar. „Látum okkur stórbrotna sögu Vestmannaeyja vera lærdóm, hvatningu og fyrirmynd nú, góðir landsmenn,“ sagði Steingrímur eftir stutta upprifjun á […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.