Það leyndi sér ekki að það var lítið í húfi þegar ÍBV tók á móti Víkingum í síðustu umferð 1. deildar karla í gærkvöldi. Eyjamenn hvíldu nokkra lykilleikmenn og leikurinn var afar bragðdaufur. Meira að segja áhorfendur, sem fjölmenntu á leikinn, voru hinir rólegustu og rétt fögnuðu í lokin þegar sigurinn var í höfn. Eyjamenn unnu 33:32 eftir að staðan í hálfleik var 17:16. Gunnar Gunnarsson afhenti leikmönnum ÍBV svo bronsverðlaun í leikslok en Eyjamenn enduðu í þriðja sæti deildarinnar.