Í kvöld verður haldið Eyjakvöld á Kaffi Kró. Eyjakvöldin hafa verið haldin fyrst fimmtudag hvers mánaðar í allan vetur og óhætt að segja að kvöldin hafi slegið rækilega í gegn. Þannig hefur verið fullt út úr húsi síðustu kvöld en á Eyjakvöldunum eru Eyjalögin sígildu rifjuð upp, textunum er varpað upp á skjá þannig að allir geta tekið undir.