Siglingar munu hefjast 1. júlí

Framkvæmdir við Landeyjahöfn í Bakkafjöru eru langt á veg komnar enda voru á þriðjudag aðeins 100 dagar í að höfnin opni og ferjusiglingar hefjist. Um miðjan maí á þessu ári var fyrsta hlassinu sturtað niður í fjöruna fyrir brimvarnargarðana, sem nú eru svo til klárir. Framkvæmdir eru hafnar fyrir sjálft ferjulægið og farþegaaðstöðu í fjörunni […]
Gunnar Heiðar aftur af stað eftir meiðsli
Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék í fyrradag með varaliði enska knattspyrnuliðsins Reading eftir að hafa verið frá vegna nárameiðsla í tvær vikur. Gunnar fór vel af stað en hann skoraði mark, krækti í vítaspyrnu, sem og í aukaspyrnu sem skorað var úr, þegar Reading lagði Sailsbury að velli, 4:3. Gunnar hefur vegna meiðslanna misst af tækifæri […]
Farþegafjöldi lækkaður um 136
Farþegafjöldi með Herjólfi verður lækkaður um 136 farþega í hverri ferð í sumar. Þá verður skipið látið sigla með minni olíubirgðir en áður, til að rista ekki of djúpt við Landeyjahöfn. Fækkun farþeganna helgast af alþjóðlegum reglum, sem settar voru eftir að ferjan Estónía fórst á Eystra salti og mikið manntjón varð. Þær ná til […]
Með tárin í augunum, verk í maganum og bullsveittur af átökum

„Tjöldin voru dregin frá og fjörið byrjaði strax. Í fyrsta atriði var ég farinn að skellihlæja, og ég held ég geti fullyrt að það sama átti við um alla gesti kvöldsins. Og svoleiðis gekk það! Hláturrússíbani frá upphafi til enda, það öflugur að í lok sýningar var ég ennþá hlæjandi, með tárin í augunum, verki […]
Gosbjarminn sást greinilega í gærkvöldi

Óskar Pétur Friðriksson renndi austur á Heimaey um ellefuleytið í gærkvöldi til að fylgjast með eldsumbrotunum í Fimmvörðuhálsi. Gosbjarminn var mjög greinilegur og má sjá myndir frá Óskari hér að neðan. (meira…)
32 ferðir á viku í sumaráætlun í Landeyjahöfn
Nú er ljóst hvernig sumaráætlun Herjólfs verður en skipið mun sigla í Landeyjahöfn frá og með 1. júlí næstkomandi. Á tímabilinu 1. júlí til 31. ágúst verða farnar 32 ferðir á viku. Þannig verða farnar fjórar ferðir mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga, fyrsta ferð 7.30 frá Eyjum, svo 10.30, 17.00 og 20.00. Síðasta ferð frá Landeyjahöfn […]
Gosstrókurinn sést vel frá Eyjum

Gosstrókurinn frá eldgosinu í Fimmvörðuhálsi sést betur nú frá Eyjum en áður. Frá því að eldsumbrotin hófust um helgina hefur tíðin verið frekar óhagstæð, mikið rok og mistur yfir eyjunum. Nú síðdegis hefur hins vegar lægt talsvert, bæði í Eyjum og á gossvæðinu og þótt enn sé nokkuð mistur í loftinu, þá er útsýnið mun […]
�?vitar mega ekki ráða för

Bergur Kristinsson, formaður Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi, er mjög ánægður með viðbrögð Samtaka atvinnulífsins við skötuselsfrumvarpinu. Þar sé verið að bregðast við þeirri lögleysu sem frumvarpið er. Það sé líka fyrsta skrefið að því að fyrna aflaheimildir í botnfiski sem sé eindreginn vilji ríkisstjórnarinnar. (meira…)
Styrktarkvöld ÍBV á Spot

Knattspyrnudeild ÍBV blæs til stórveislu miðvikudaginn 31. mars næstkomandi á skemmtistaðnum Spot. Um er að ræða styrktarkvöld fyrir ÍBV en boðið verður upp á fimm rétta kvöldverð og stórgóða skemmtun þar sem Eyjastemmningin mun svífa yfir vötnum. Meðal þeirra sem koma fram eru Edda Andrésdóttir, Freyr Eyjólfsson, Ingó Idol, Buff, Hoffman, Gylfi Ægis, Bjartmar Guðlaugs […]
Fullkomið brúðkaup í kvöld og á morgun

Næstu sýningar á fullkomnu brúðkaupi verða í kvöld, miðvikudag klukkan 20.00 og á morgun, fimmtudag á sama tíma. Leikritið var frumsýnt fyrir fullu húsi á föstudaginn síðasta og mátti heyra hlátur leikhúsgesta langt út á götu, svo skemmtileg þótti uppsetningin. Ómar Garðarsson, ritstjóri Frétta skrifar um sýninguna í blaðinu en honum þótti ganga fullkomlega upp. […]
Eyjamenn komnir með þátttökuleyfi

Í dag var tekin fyrir leyfisumsókn knattspyrnuliðs ÍBV ásamt sjö öðrum félögum í tveimur efstu deildum Íslandsmóts karla. Leyfisráð KSÍ veitti ÍBV þátttökuleyfi án athugasemda en aðeins ÍBV og Breiðablik fengu slíka niðurstöðu á meðan gerð var athugasemd við umsóknir hinna félaganna sex. (meira…)
Til hamingju íslenska þjóð
Ég hef haft töluverðar áhyggjur af því í langan tíma að þessi nýja vinstri stjórn væri ekki alveg að standa sig (og hef þær enn). En þess vegna er það einmitt mikið ánægjuefni að þetta skötusels frumvarp sé loksins komið í gegn og alveg ljóst að eftir að svokölluð skötuselslína var felld út úr frumvarpinu, […]
Mikið að gera við að aðstoða ölvað fólk
Nokkur erill var hjá lögreglu um helgina og þó nokkuð um að aðstoða þyrfti fólk sökum ölvunarástands þess. M.a. þurfti að flytja fólk á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja vegna áverka eftir byltur. Þá var eitthvað um kvartanir vegna ónæðis, bæði vegna hávaða frá heimahúsum og hávaða utan dyra. (meira…)
Innan við hundrað dagar í Landeyjahöfn

Á vef Vestmannaeyjabæjar, www.vestmannaeyjar.is hefur síðasta árið eða svo verið teljari sem telur niður þangað til siglingar í Landeyjahöfn hefjast. Miðað er við að siglingar hefjist 1. júlí næstkomandi en í hádeginu í dag fór teljarinn niður fyrir 100 daga markið. Nú eru því innan við 100 dagar í að siglingar hefjist og hver dagur […]
Georg í miðstjórn Frjálslyndra
Landsþing Frjálslynda flokksins fór fram um helgina í Reykjavík en á þinginu var m.a. skipt um formann en Guðjón Arnar Kristjánsson vék til hliðar. Sigurjón Þórðarson, fyrrum þingmaður flokksins tekur við sem formaður en einn Eyjamaður er í miðstjórn flokksins. Georg Eiður Arnarson tekur sæti í miðstjórninni en Hanna Birna Jóhannsdóttir, sem hefur verið ritari […]
Vinur litlu barnanna

Ég horfi í augun á syni mínum og hugsa „þvílíkt kraftaverk að ég skuli eiga þessa litlu manneskju“, út frá því hugsa ég til 2008 þegar ég var send með sjúkraflugi í mars í s-20m/sek til þess eins að koma honum í þennan stóra heim sem beið hans. Það kom ekki til að ég hugsaði […]
Orkubóndinn í Eyjum
Áhugamenn um virkjun orku, hvort sem um er að ræða virkjun bæjarlækjar, hitareits, vindgnauðs, sólar eða jafnvel fjóshaugs, geta sótt námskeiðið Orkubóndinn sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir í Eyjum í dag, þriðjudaginn 23. mars. Á námskeiðinu hér í Eyjum verður sérstök áhersla lögð á virkjun með varmadælum, vindmyllum og einnig með öldum og sjávarföllum. (meira…)
Eldgosið jafnt og stöðugt

Eldgosið á Fimmvörðuhálsi hefur verið jafnt og stöðugt í nótt að sögn Gunnars B Guðmundssonar jarðeðlisfræðings á veðurstofu íslands. Krafturinn hefur ekki aukist eins hann gerði hægt og bítandi í gær, heldur staðið í heildina í stað í nótt. Sveiflur eru þó í gosinu. Slæmt veður er á Suðurlandi og veðurspáin er slæm. (meira…)
Búfjáreigendum bent á að fylgjast vel með öskufalli í Eyjum

Vestmannaeyjabær vill beina þeim tilmælum til búfjáreigenda að huga vel að mögulegu öskufalli vegna eldgoss í Eyjafjallajökli og gera tilheyrandi ráðstafanir. Búfjáreigendum á áhrifasvæði eldgosins er bent á að fylgjast grannt með mögulegu öskufalli, t.d. með því að leggja út hvítan disk. Verði vart við öskufall er mikilvægt að hýsa það búfé sem er við […]
Guðjón framlengir um tvö ár
Miðjumaðurinn knái, Guðjón Ólafsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við ÍBV. Guðjón sem er 21 árs hefur verið viðloðandi meistaraflokk félagsins undanfarin ár en varð fyrir því óláni nokkrum dögum fyrir fyrsta leik í fyrra að meiðast illa og missa af öllu tímabilinu. (meira…)