Menn verða að fara að hysja upp um sig buxurnar

Það var ös í höfninni í morgun. Suðurey með 170 kör lítil, Drangavík rúm 100 kör eftir brælutúr fyrir vestan, náði alla leið norður á Hornbanka, Vestmannaey með 150 kör mest ýsu af Ingólfshöfða……….. Svo landaði Brynjólfur krabba og fiski. Einnig landaði snuddarinn Sólborg RE, einum gám. Nú er ennþá komið í ljós að útgerðir […]

Landsölufólk hefur svo mikið að gefa Evrópusambandinu

Hún er mörg hörmungin sem steðjar að íslensku þjóðinni og þau ósköp sem koma undan teppinu á helsta stolti okkar, fjármálamarkaðnum, eru með slíkum end­emum að hverjum landsmanni hlýtur að ofbjóða. Eyjamenn hafa að mestu sloppið nema hvað kaupið okkar hefur lækkað eins og annarra og lánin hækkað. Og ekki er hún björt framtíðin og […]

Hermann ekki með gegn �??skyttunum�??

Hermann Hreiðarsson er enn á sjúkralistanum hjá Portsmouth og ljóst er að hann verður ekki með sínum mönnum á morgun þegar þeir sækja Arsenal heim á Emirates Stadium. Hermann tognaði í læri í æfingaleik með Portsmouth-liðinu nokkrum dögum áður en flautað var til leiks í ensku úrvalsdeildinni og hefur ekki náð að hrista meiðslin af […]

Baldur kemur í staðinn fyrir Herjólf

Stefnt er að því að Herjólfur fari í slipp þann 7. september nk. og gert ráð fyrir að hann verði í burtu í tvær vikur. Reiknað er með að Breiðafjarðarferjan Baldur leysi Herjólf af þennan tíma. Þær upplýsingar fengust hjá Kristínu Sigurbjörnsdóttur hjá Vegagerðinni að beðið væri eftir staðfestingu frá samgöngu­ráðuneyti um að Baldur fengi […]

Aftur málað í Skipalyftunni

Í sumar hefur verið starfandi máln­ingarteymi hjá Skipalyftunni en lítil sem engin málningarvinna hefur verið hjá fyrirtækinu síðan sjálf skipalyftan hrundi í október 2006. Sex eru í teyminu sem er hrein viðbót við þá 25 sem starfa í Skipa­lyftunni. Stefán Jónsson, yfirverkstjóri hjá Skipalyftunni segir að þeir hafi málað Bergey VE fyrr á þessu ári, […]

Á fljótabáti yfir Atlantshafið

Tveir bandarískir karlmenn, bræðurnir Ralph og Robert Brown komu við í Eyjum í morgun á leið sinni yfir Atlantshafið. Ferðin hófst við vesturströnd Flórídaskagans en bræðurnir hyggjast enda ferðina í Frankfurt í Þýskalandi. Fararskjótinn er harla óvenjulegur en bræðurnir sigla á fljótabáti með utanborðsmótor og enga yfirbyggingu. (meira…)

Tekjutap fyrir allt samfélagið

„Ef við lítum á samfélagið hér í Eyjum þá erum við með um þriðjung kvótans. Aflaverðmæti bátanna gæti verið yfir einn milljarð, laun sjómanna í Eyjum væru þá hátt í 300 milljónir á síldarvertíðinni. Í heildarskattgreiðslur færu um 130 milljónir og þar af um 40 milljónir í útsvar til bæjarins. Þetta eru gríðarleg verðmæti sem […]

Biblía á mörgum tungumálum ferðast um Ísland

Þessi Biblía sem er gefin út af Sjöunda dags aðventistum mun verða á Íslandi n.k. fimmtudag í tengslum við átakið “fylgjum Biblíunni.” Umrædd Biblía sem er stór í sniðum er á 66 tungumálum, hver bók hennar á sér tungumáli. Hún hóf ferð sína um heiminn á Filipseyjum í október 2008 og mun hún koma við […]

Sami fjöldi í FÍV

Framhaldskólinn verður settur næsta mánudag, 24 ágúst kl. 13. Um þrjú hundruð og tuttugu nemendur koma til með að stunda nám við skólann sem er svipaður fjöldi og í fyrrahaust. Baldvin Kristjánsson, aðstoð­ar­skólameistari FÍV, sagði námsframboð vera með hefðbundnu sniði, bóknámsbrautir til stúd­entsprófs og vélstjórnarbraut sem eru vel sóttar. (meira…)

Eitt svína­flensutilfelli

Svínaflensutilfellum fer fjölgandi á landinu en aðeins hefur eitt tilfelli verið greint í Vestmanna­eyjum. Hjalti Kristjánsson, læknir sagði að talsvert hefði verið tekið af sýnum til að taka af vafa um hvort um svínaflensu sé að ræða. Það er gert til að fylgja eftir faraldsfræðilegum athugunum. (meira…)

Alltaf að flýja þorskinn

Fiskifréttir hafa tekið saman afla­verðmæti íslenska fiskiskipaflotans á árinu 2008 og flokkað hann eftir útgerðartegundum. Vestmannaey VE var með mestu aflaverðmæti á árinu í flokki báta og kom í land með aflaverðmæti fyrir 624 millj­ónir króna. Vestmannaey var á veiðum og nýbúið að hífa þegar Fréttir náðu tali af Birgi Þór Sverrissyni, skipstjóra á þriðjudag. […]

Gunnar Heiðar á framtíð hjá Esbjerg

Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur átt erfitt uppdráttar hjá danska úrvalsdeildarliðinu Esbjerg síðan hann gekk til liðs við félagið síðasta sumar. Hann hefur ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliðinu og skoraði einungis eitt deildarmark á síðasta keppnistímabili. (meira…)

Leikurinn gegn �?rótti færður yfir á sunnudag

Vegna beinnar útsendingar Stöðvar 2 sport frá leik ÍBV og Þróttar í 18.umferð Pepsi-deildarinnar hefur leiktíma verið breytt. Leikurinn átti upphaflega að vera á laugardaginn kl. 16.00 en verður á sunnudaginn kl. 18.00. (meira…)

Íbúum fjölgar í Eyjunni grænu

Skv. mannfjöldaskýrslu Hagstofu Íslands, er fjöldi íbúa sem skráður er til heimilis í Vestmannaeyjum 1. júlí s.l. samtals 4.137 talsins. Þar af eru karlar 2173 en konur 1964. Frá áramótum hefur því fjölgað í Eyjum um 51 íbúa. (meira…)

Hermann enn frá vegna meiðsla

Landsliðsfyrirliðinn Hermann Hreiðarsson hefur enn ekki jafnað sig af meiðslum í læri og hann verður ekki með Portsmouth í kvöld þegar liðið mætir nýliðum Birmingham á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Hermann tognaði á læri í æfingaleik með Portsmouth rétt fyrir mót og er sárt saknað Portsmouth-liðinu. (meira…)

�?tgerð Magnúsar veðsett Íslandsbanka

Veðbandavottorð fyrir útgerð Magnúsar Kristinssonar sýnir fram á að Landsbankinn á 12. og 13. veðrétt í skipum hans og kvóta. Útgerðin er veðsett Íslandsbanka að mestu. Skilanefnd Landsbankans getur því ekki hirt til sín útgerðina til að eiga upp í tugmilljarða króna kröfur á hendur Magnúsi. (meira…)

Hvar er gagnsæið?

Reiðibylgja gengur nú islenskt samfélag eftir að DV flutti frétt þess efnis að enn á ný ætti að hugsanlega að afskrifa skuldir fjármálaspekúlanta, án nokkurrar umræðu eða gagnsæis. Fréttin hefur nú verið borin til baka en breytir ekki því að menn spyrja enn hvað er að gerast í bankakerfinu. Á vefnum hjá Agli Helgasyni hefur […]

Tugmilljarða skuldir Magnúsar afskrifaðar

Útgerðarmaðurinn Magnús Kristinsson hefur samið við Landsbankann um að stór hluti 50 milljarða króna skuldar hans við Landsbankann verði afskrifaður. Hann mun þurfa að greiða þrotabúi gamla Landsbankans það litla sem hann var persónulega ábyrgur fyrir. (meira…)

Eyjamenn lögðu Eyjamenn að velli

Úrvalsdeildarlið ÍBV og 3. deildarlið KFS mættust í æfingaleik í gær í slagnum um Heimaey. KFS undirbýr sig nú af krafti fyrir komandi úrslitakeppni í 3. deild en ÍBV sárvantar æfingaleiki þar sem búið er að fresta tveimur deildarleikjum liðsins. Leikurinn var því kærkominn fyrir bæði lið. Eftir jafnan leik framan af var það ÍBV […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.