Birgir hættur sem formaður �?jóðhátíðarnefndar

Magnús Birgir Guðjónsson eða Biggi Gauja, formaður Þjóðhátíðarnefndar síðustu tólf ár, var heiðraður sérstaklega á sunnudegi Þjóðhátíðarinnar þegar hann fékk innrammaða mynd frá setningu hátíðarinnar í ár. Biggi sagði við það tækifæri að hann hefði ákveðið að stíga til hliðar sem formaður nefndarinnar, við kyndlinum tekur Páll Scheving en Biggi ætlar þó að halda áfram […]
Mikið um tjaldbrennur í Eyjum

Hefðbundin eftirköst þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum urðu í nótt, en frá því seint í gærkvöldi og fram á morgun kveiktu eftirlegukindur í tjöldum í Herjólfsdal með tilheyrandi ónæði fyrir aðra tjaldgesti og gæslumenn. Tæmt var úr á fimmta tug slökkvitækja á brennandi tjöld. Annars gekk nóttin vel. (meira…)
Vel heppnuð og risavaxin �?jóðhátíð

Það er mat flestra að Þjóðhátíðin 2009 sé ein sú stærsta, ef ekki sú stærsta frá upphafi. Talið er að allt að 14 þúsund manns hafi verið í Herjólfsdal þegar mest var en aldrei áður hefur jafn mikill fjöldi fólks verið samankomið í hinum árlega Brekkusöng Árna Johnsen. (meira…)
Svanur Páll og Katrín Sara unnu Söngvakeppni barna

Fastur liður í dagskrá Þjóðhátíðarinnar undanfarin ár hefur verið Söngvakeppni barna sem hljómsveitin Dans á Róstum hefur haft umsjón með. Fjölmörg börn tóku þátt í keppninni í ár og hafði dómnefndin úr vöndu að ráða enda voru margir bráðefnilegir söngvarar sem stigu á stokk á stóra sviðinu. Að lokum voru það þau Svanur Páll Vilhjálmsson […]
Yndislegri þjóðhátíð lokið….

…og fólk á faraldsfæti heim eftir fjörið.Vonandi gengur allt vel og að fólk sýni skynsemi undir stýri. Gærkvöldið var glæsilegt og ekki hægt að lýsa því með orðum að upplifa söng í brekkunni þar sem 15000 manna kór kyrjaði þjóðsönginn og Lífið er yndislegt. Johnsenin var bara nokkuð góður í gær þó hann gæti nú […]
Fólkið streymir frá Eyjum

Mikill straumur fólks liggur nú frá Vestmannaeyjum en um tíu þúsund manns tóku þátt í þjóðhátíð um Verslunarmannahelgina. Uppbókað er í Herjólf frá Eyjum fram á miðvikudag og fyrir bíla fram á laugardag. (meira…)
�?ar sem gleðin er við völd

Nú líður að síðustu kvöldstund stærstu Þjóðhátíðar frá upphafi eftir því sem næst verður komist en búist er við að á milli 13 til 15 þúsund manns muni vera viðstaddir brekkusöng Árna Johnsen. Hátíðin hefur að langmestu leyti farið vel fram enda hafa veðurguðirnir leikið við hátíðargesti í Herjólfsdal, ef undan er skilinn góður hitaskúr […]
Ein besta þjóðhátíð frá upphafi

Birgir Guðjónsson, formaður þjóðhátíðarnefndar, var nýkominn inn í Herjólfsdal þegar fréttastofa náði tali af honum. Þar var að hans sögn líkt og engin hátíð hafi verið haldin og búið að hreinsa svæðið algjörlega. „Veðrið er alveg dásamlegt og fólk er farið að týja sig í dalinn og hreinsa tjöldin eftir nóttina, segir Birgir og segist […]
Illa barinn á �?jóðhátíð

Lögreglunni í Vestmannaeyjum var tilkynnt um alvarlega líkamsárás á þjóðhátíðarsvæðinu um tíuleytið í morgun. Sá sem fyrir árásinni nefbrotnaði og úr honum var barin ein tönn og önnur brotinn. Þá skarst hann á nefi. (meira…)
Veist að lögreglu í Eyjum

Fangageymslur eru fullar hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum eftir nótttina. Veist var að lögreglumönnum sem höfðu afskipti af ölvuðu fólkið og var lögreglumaður sleginn. Sex fíkniefnamál komu upp í gær og í nótt og hafa því alls sextán fíkniefnamál komið upp um helgina. Lögregla segir nóttina í nótt hafa verið rólegri en þá á undan. (meira…)
Hár hvellur þegar brennan var tendruð

Það brá mörgum í brún þegar kveikt var í brennunni á Þjóðhátíð í gær en talsverður hvellur varð þegar bálið var tendrað. Notast var við bensín þegar skvett var á brennuna og var búið að skvetta talsverðu magni áður en eldur var borinn að. Fróðir menn telja að bensíngufur hafi ollið því að hvellurinn hafi […]
Hermann gæti misst af byrjun tímabilsins með Portsmouth

Landsliðsfyrirliðinn Hermann Hreiðarsson er á sjúkralista hjá Portsmouth eftir að hafa tognað í læri í æfingarleik gegn Eastleigh á dögunum og fór því fyrir vikið ekki með liðsfélögum sínum í æfingarferð til Portúgal. (meira…)
Söngvarar skjóta bolum í Eyjum

Sérstakri bolabyssu eða bolavörpu verður í kvöld beitt í Vestmannaeyjum til að varpa bolum frá Karlahópi Feministafélags Íslands til áhorfenda á tónleikum Sálarinnar og Í svörtum fötum. Munu forsprakkar sveitanna, Stefán „Stebbi Hilmars“ Hilmarsson og Jón Jósep „Jónsi“ Snæbjörnsson sjá um bolavarpið. (meira…)
Til heiðurs gömlu Íslandsmeisturunum sem voru Eyjamenn

Klukkan þrjú á föstudag heldur UMF Óðinn keppni í stangarstökki á setningarathöfn þjóðhátíðar og er hugsunin sú að heiðra stangar-stökkvara í Vestmannaeyjum sem áttu íslandsmet í stangarstökki karla svo áratugum skipti á fyrri hluta síðustu aldar. Voru þeir í sérflokki. Það var því ekki af ástæðulausu að stangarstökkið var kallað þjóðaríþrótt Eyjamanna á 20. öldinni. […]
Rétt náðu í þjóðhátíðarsmakkið

Lundaveiði hefur verið lítil á veiðitímabilinu sem er óvenju stutt eða fimm dagar eða frá 25. til 29. júlí, í gær miðvikudag. Veður hefur verið óhagstætt og lítið að hafa þegar norðanátt er ríkjandi eins og verið hefur undanfarna daga. Lundaveiðimenn sjá miklu meira af lunda á sjónum en í fyrra bæði undanfarna viku og […]
Heimamenn búnir að koma sér fyrir í Herjólfsdal

Tjöldun hvítu Þjóðhátíðartjaldanna hófst venju samkvæmt í gær þegar heimamenn mörkuðu sér svæði fyrir sitt tjald. Stemmningin minnti óneitanlega á villta vestrið þegar fátækir bændur börðust um landskikann en samkvæmt reglum átti ekki að hleypa inn á svæðið fyrr en átta í kvöld. Hins vegar var ekki við neitt ráðið og hófst leikurinn um klukkan […]
Mæðgin efst í Eyjum

Elínborg Jónsdóttir greiðir hæst opinber gjöld einstaklinga í Vestmannaeyjum í ár, alls rúmar 33,7 milljónir króna. Næstir koma Eyjólfur Guðjónsson með 24 milljónir og Magnús Kristinsson með rúmar 16 milljónir. Þau Elínborg og Eyjólfur munu vera mæðgin og tengjast útgerðarfyrirtækinu Gullbergi sem var sameinað Vinnslustöðinni í fyrra. Allir efstu gjaldendur í Vestmannaeyjum tengjast útgerð og […]
Stefnir í svipaðan fjölda og í fyrra

Allt stefnir í að þjóðhátíð verði fjölmenn og þegar farþegafjöldinn til Eyja er tekinn saman áttu 8. 618 farþegar bókað far með Herjólfi og flugi fyrir hátíðina. Farþegafjöldinn hjá Herjólfi miðast við vikuna fyrir þjóðhátíð þ.e. frá mánudegi til sunnudags og með flugi dagana fyrir hátíðina. Stefnir í svipaðan fjölda og í fyrra þegar um […]
Gríðarlegir yfirburðir gegn Augnabliki

Það verður seint sagt að KFS hafi lent í vandræðum í leikjum sínum gegn Augnabliki í sumar. Fyrsti leikur liðanna endaði 6:0 fyrir KFS, útileikurinn endaði 1:5 fyrir KFS og í kvöld unnu Eyjamenn 13:0 hvorki meira né minna. Yfirburðir KFS í leiknum voru algjörir en staðan í hálfleik var 5:0. Sigur KFS hefði í […]
Tjöldum leyfð í Herjólfsdal kl. 20.00 á fimmtudagskvöld

Nú þegar styttist í Þjóðhátíðina er fólk farið að huga að tjöldum sínum. Og svo er stóra málið, hvar verður hægt að setja það niður. Er plássið frá síðustu Þjóðhátíð á lausu, – vissara að láta ekki taka það af sér. – Það voru því nokkrir áhugasamir mættir í Dalinn seinnipartinn í dag til að […]