�?akklátur fyrir stuðninginn

Óhugnanlegt atvik átti sér stað á æfingu knattspyrnuliðs ÍBV á dögunum þegar Ingi Rafn Ingibergsson, leikmaður liðsins féll meðvitundarlaus í grasið. Um tíma var óttast um líf Inga Rafns enda hætti hann að anda um stundarsakir og púlsinn var orðinn mjög veikur. Hins vegar komst hann aftur til meðvitundar og eftir ítarlegar rannsóknir undanfarna daga, […]
Vildi ekki fara út í óvissuna

„Þetta eru náttúrlega þvílík forréttindi að vinna við að mæta á æfingu, hlaupa eins og fífl og sparka í fótbolta. Ég held að þessi ánægja sem maður fær út úr því fari aldrei úr mönnum með gott keppnisskap,“ segir Hermann Hreiðarsson, knattspyrnumaður hjá Portsmouth í Englandi, sem skrifaði á dögunum undir nýjan eins árs samning […]
�?essi forréttindi verðum við að verja

Yfirlýstur tilgangur umsóknar að ESB hefur verið að kanna í eitt skipti fyrir öll hvað í boði sé þannig að enginn þurfi að velkjast í vafa. Það gildir ekki síst um sjávarútvegsmálin, því margir helstu ESB sinnarnir hafa reynt að segja okkur að ekkert sé að óttast. Nú hefur spænski Evrópumálaráðherrann Diego López Garrido sagt […]
Margir leituðu læknisaðstoðar

Mikið álag var á heilbrigðisstarfsfólki þjóðhátíðardagana enda hefur gestum hátíðarinnar fjölgað milli ára. Vel á annað hundrað leituðu í sjúkratjaldið í Dalnum og til heilsugæslunnar á Sjúkrahúsinu á sólarhring. Ágúst Gústafsson, læknir stóð vaktina í sólarhring eða frá 16.00 á laugardag til 16.00 á sunnudag. Hann vann síðast á þjóðhátíð 2002 og segir mikla breytingu […]
�?jóðhátíðarfjörinu lauk um kl. 10 á mánudagsmorgni

Hljómsveitirnar Dans á Rósum og Tríkót léku á gamla danspallinum á sunnudagskvöldinu í Þjóðhátíð. Þegar dansleiknum þar lauk undir morgun, var fjörinu haldið áfram í tjaldinu hjá Vinum Ketils bónda og síðan þegar plássið þraut þar, var haldið út að ræðusteinum. (meira…)
Ráðum við meira

Páll Scheving, nýr formaður þjóðhátíðarnefndar er sáttur við hvernig til tókst á þjóðhátíð. Hann telur að Vestmannaeyingar geti vel tekið á móti fleiri þjóðhátíðargestum en ráðast þurfi í enn frekari úrbætur í Dalnum og minnir á að allur ágóði af þjóðhátíð rennur til íþróttastarfs á vegum ÍBV. (meira…)
Kertafleyting við Skansinn í kvöld

Kertafleyting verður við Skansinn í kvöld klukkan 22.30 og verða flotkerti seld á staðnum. Fleytt er kertum í minningu fórnarlamba kjarnorkueldanna í japönsku borgunum Hírósíma og Nagasakí dagana 6. og 9. ágúst 1945. Fyrsta kertafleytingin var í ágúst 1985 þegar 40 ár voru liðin frá kjarnorkuárásunum. Þá sendu japanskir „hibakushar“, en svo eru eftirlifandi fórnarlömb […]
5349 bílar óku um Herjólfsdalsveg á sólarhring í kringum �?jóðhátíðina

Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar setti upp umferðargreini við veginn inn í Herjólfsdal um Þjóðhátíðina. Umferðargreinir taldi umferð að viðkomandi götu ásamt hraðamælingum. Umferðargreininum var komið fyrir mánudaginn 27.júlí kl. 11.40 og var tekinn niður miðvikudaginn 5.ágúst kl. 11.40. Á þessum 9 sólarhringum fóru 48.142 ökutæki um veginn inn í Herjólfsdal. Gerir það að meðaltali 5349 […]
Síldveiðiskip umkringd makríl um alla lögsögu

Makríll virðist vera helsta vandamál við síldveiðarnar sem nú eru hafnar á ný að lokinni verslunarmannahelgi. Börkur NK 122 landaði síld til vinnslu á Norðfirði á þriðjudag og var þar um 20% makríll á móti síldinni. Að sögn Sigurbergs Haukssonar, skipstjóra á Berki, er síldin sem fæst falleg en stefnan verður nú tekin norður til […]
Vaðandi makríll í höfninni

Talsvert virðist vera af makríl í Vestmannaeyjahöfn en makríltorfa hefur skemmt þeim sem eiga leið um Friðarhöfn í Vestmannaeyjum í dag. Makríllinn sækir reglulega upp á yfirborðið og buslar þar áður en hann fer niður aftur. Mikið hefur verið um makríl allt í kringum eyjarnar og hefur makríll m.a. veiðst á stöng í höfninni. (meira…)
Margrét Lára og Fanndís í EM hópi Íslands

Tvær Eyjastúlkur, þær Margrét Lára Viðarsdóttir og Fanndís Friðriksdóttir eru í lokahópi íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu sem tekur þátt í lokamóti Evrópumótsins í Finnlandi í þessum mánuði. 22 leikmenn eru í hópnum en sömu leikmenn leika gegn Serbíu í undankeppni EM á Laugardalsvelli 15. ágúst. (meira…)
Söfnuðu um 1,7 milljón um helgina

Það vakti verðskuldaða athygli hversu þrifalegur Herjólfsdalur var á Þjóðhátíðinni og eftir hana. Mikið rusl féll til á nóttunni en þegar fjölskyldur mættu á barnadagskránna um daginn var Dalurinn hreinn og fínn. Það kom í hlut foreldra og iðkenda í 3. flokki í knattspyrnu hjá ÍBV næsta sumar að þrífa Dalinn og gekk það afar […]
Minna drukkið nema í Eyjum

Sala áfengis í verslunum ÁTVR í síðustu viku var 3,9% minni í lítrum talið en í sömu viku fyrir ári. Undantekningin er þó Vínbúðin í Vestmannaeyjum, þar sem áfengissala fyrir helgina jókst um 20% í þessari 31. viku ársins. (meira…)
�??Trix�?? í vitlausum vítateig endaði með ósköpum

Landsliðsfyrirliðinn Hermann Hreiðarsson er í kapphlaupi við tímann að ná sér góðum af meiðslum áður en flautað verður til leiks í ensku úrvalsdeildinni um aðra helgi. „Það er smátognun í lærinu sem er að angra mig. Ég var að reyna einhver „trix“ í vitlausum vítateig og það endaði bara með ósköpum,“ sagði Hermann við Morgunblaðið […]
Lífið færist í eðlilegt horf í Eyjum

Rólegt var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt eftir annasama undanfarna daga. En þó drykkjulátum linni er ekki þar með sagt að lögreglumenn sitji auðum höndum. Fyrirspurnum rignir inn vegna týndra muna á Þjóðhátíð. Gestir sem m.a. hafa týnt farsímum, myndavélum og bakpokum reyna að vitja þeirra. Í einhverjum tilvikum tekst það, en fleiri sitja […]
Gátu snert makrílinn með berum höndum

Stjórnendur tveggja af öflugustu sjávarútvegsfyrirtækja landsins, þeir Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda og Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hugins, sigldu inn í makrílvöðu um verslunarmannahelgina. Ekki gátu þeir félagar þó veitt makrílinn enda veiðibann í gildi en vaðan var tilkomumikil. Hægt er að sjá myndbönd af vöðunni hér að neðan. (meira…)
Milli steins og mjólkurbrúsa

Hún er sérkennileg staðsetning bifreiðar sem lenti utan vegar við Höfðaból, suður á Heimaey en bíllinn endaði á milli steins, sem er við vegakantinn og mjólkurbrúsa, sem eru þar einnig til skrauts. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu, er ökumaður bifreiðarinnar grunaður um ölvun við akstur en talið er að hann hafi misst stjórn á […]
Um 25 fíkniefnamál í Eyjum

Alls komu um 25 fíkniefnamál upp á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þessa helgina. Í flestum tilfellum var lagt hald á amfetamín í þessum málum. Tíu líkamsárásir voru kærðar en lögreglan segir að engin hafi verið mjög alvarleg. Lögreglan segir að ekkert kynferðisbrot hafi verið kært til lögreglunnar í Vestmannaeyjum þessa hátíð. (meira…)
Löbbuðu yfir flugbrautirnar
Lögreglan á Hvolsvelli hefur átt í erfiðleikum vegna fólks sem hefur komið með gúmmíbátum frá Eyjum og komið á land í Bakkafjöru. Þar er nú lokað vinnusvæði og því óleyfilegt að keyra, fólkið hefur því orðið strandaglópar þegar í land er komið. (meira…)
Vaknaði með svart eitur í andlitinu

Maður leitaði ásjár lögreglunnar í Vestmannaeyjum eftir að hafa vaknað úr áfengisdái með svartleitt eitur framan í sér. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafði maðurinn sofnað í brekkunni og einhver óprúttinn makað efninu framan í hann, en lögregla gat ekki staðfest tildrög málsins. (meira…)