�?ruggur sigur á FH

Kvennalið ÍBV átti ekki í teljandi vandræðum með FH þegar liðin mættust á Hásteinsvelli í kvöld. ÍBV hefur þegar tryggt sér sæti í úrslitum 1. deildar enda er liðið í efsta sæti B-riðils. FH er líka nokkuð öruggt með sæti í úrslitum en fjögur lið úr A- og B-riðli 1. deildar komast í úrslitin. ÍBV […]

Góð þátttaka og glæsilegir taktar

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu kom til Eyja á dögunum ásamt Gunnari Einarssyni, umsjónarmanni knattþrauta KSÍ, til að kynna verkefnið sem KSÍ stendur fyrir og hefur hlotið góða undirtektir. Krakkar úr 5. flokki hjá ÍBV, karla og kvenna tóku þátt í kynningunni en landsliðsþjálfarinn var mjög ánægður með þann efnivið sem er […]

Álsey VE dró Júpíter �?H til Akureyrar

Uppsjávarskipið Júpíter ÞH fékk í skrúfuna þegar skipið var á síldarveiðum norður af Melrakkasléttu. Óttast er að gírinn hafi brotnað en það gæti þýtt að skipið verði frá í talsverðan tíma. Júpíter og Álsey VE, annað skip Ísfélagsins voru saman á partrolli þegar óhappið varð en Álsey dró Júpíter til hafnar á Akureyri þar sem […]

Eru Eyjamenn svona grófir?

Ekkert lið í efstu deild hefur fengið jafn mörg rauð spjöld og ÍBV en Eyjamenn hafa fengið sjö rauð spjöld í fimmtán leikjum, eða rétt tæplega rautt spjald í öðrum hverjum leik. Þá er ÍBV með langflest refsistig, þar sem eitt stig er gefið fyrir gult spjald og fjögur fyrir rautt. ÍBV er með 57 […]

�?skilamunir eftir þjóðhátíð nema einni milljón króna

Dýrasti óskilamunurinn hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum eftir ´þjóðhátíðina var 120 þúsund kr. gemsi með snertiskjá. Alls áætlar lögreglan að verðmæti óskilamuna hafi þetta árið numið einni milljón króna. Meðal þess sem fannst voru um 30 gemsar, 50 greiðslukort, 20 myndavélar, 12 bakpokar, lyklar, töskur og veski. (meira…)

Albert og Andri í liði umferðarinnar

Tveir leikmenn ÍBV eru í liðið umferðarinnar á vefnum Fótbolti.net en það eru þeir Andri Ólafsson, fyrirliði ÍBV og Albert Sævarsson, markvörður liðsins. Andri lék frammi, á miðjunni og í öftustu varnarlínu í leiknum og lék afbragðsvel í öllum stöðunum. Albert sýndi snilldartakta í leiknum og verðskula þeir félagar að vera í liði umferðarinnar eftir […]

KFS ósigrandi í 3. deild

KFS heldur áfram að gera góða hluti í B-riðli 3. deildar en um helgina sótti liðið Þrótt Vogum heim. Lokatölur urðu 1:1 en KFS er enn sem fyrr í efsta sæti riðilsins og hefur þegar tryggt sér sæti í úrslitum 3. deildar þótt enn séu tvær umferðir eftir í riðlinum. (meira…)

Við getum þakkað Alberti fyrir þennan sigur

Andri Ólafsson, fyrirliði ÍBV var ánægður með öll þrjú stigin í kvöld eftir að hafa lent undir gegn baráttuglöðu liði Fjölnismanna. Hann tók sér einnig tíma í að hrósa manninum á milli stanganna. Sigurinn í kvöld var mjög góður sigur (meira…)

Gríðarlega mikilvægur sigur hjá ÍBV

Eyjamenn unnu gríðarlega mikilvægan sigur á Fjölni í kvöld í öðrum af tveimur fallbaráttuleikjum umferðarinnar. Lokatölur urðu 3:1 fyrir ÍBV en Fjölnismenn voru skiljanlega vonsviknir í leikslok enda voru þeir mun sterkari í síðari hálfleik. Í hinum fallslagnum vann Grindavík stórsigur á Þrótti á útivelli 1:5 og því sitja Fjölnir og Þróttur í fallsætunum, fimm […]

Allir á völlinn!

Karlalið ÍBV tekur í kvöld á móti Fjölni í fallslag Pepsídeildarinnar. Sigur í dag væri kærkominn enda fallbaráttan gríðarlega jöfn og hörð. Leikmenn og forráðamenn ÍBV hafa óskað eftir því að stuðningsmenn liðsins láti sitt ekki eftir liggja, styðji við lið sitt af krafti og leggja þannig sitt af mörkum. Þá eru stuðningsmenn liðsins hvattir […]

Golfklúbbur Vestmannaeyja áfram í 1. deild

GV hélt sæti sínu í 1. deild í sveitakeppni í golfi en Eyjamenn unnu síðari viðureign sína í gær gegn Golfklúbbi Akureyrar og sendu norðanmenn um leið niður í 2. deild. Sigurinn var hins vegar naumur, lokatölur urðu 3:2 og réðust úrslitin í síðustu viðureigninni á síðustu holunni. (meira…)

�??�?á tek ég við brekkusöngnum. Árni Johnsen verður bara að hætta,�??

Hermann Hreiðarsson, knattspyrnukappi, er í viðtali við helgarblað DV þessa helgina. Og eins og hans er von og vísa er hann bráðskemmtilegur og frásagnarglaður. Eins og allir atvinnumenn í fótbolta þarf hann að færa ýmsar fórnir. Ein af þeim er að sleppa Þjóðhátíð um hverja Verslunarmannahelgi því hún fer fram þegar mjög skammt er þangað […]

Fyrsti sigurinn kom í dag

Eyjamenn unnu sína fyrstu viðureign sína í Sveitakeppninni í dag gegn Golfklúbbnum Leyni frá Akranesi en lokatölur urðu 3:2 fyrir GV. Þeir Karl Haraldsson og Gunnar Geir Gústafsson töpuðu í fjórmenningi 2/0 en þeir Örlygur Helgi Grímsson, Þorsteinn Hallgrímsson og hinn ungi Hallgrímur Júlíusson unnu allir sínar viðureignir, Örlygur 1/0 en frændurnir Þorsteinn og Hallgrímur […]

Hvet bæjarbúa til að fjölmenna á völlinn

Á sunnudaginn kl. 19.15 leikur mfl. karla ÍBV sinn mikilvægasta leik á þessu tímabili gegn Fjölni á Hásteinsvelli. ÍBV hefur náð að rétta vel sinn hlut í deildinni í undanförnum leikjum og liggur mikið við að liðið haldi áfram að leggja sig fram og bæta sinn leik. Því skiptir stuðningur við liðið okkar miklu máli […]

GV tapaði fyrir GR og GK

Í viðureigninni gegn GK töpuðu Eyjamenn í tvímenningi, Rúnar Þór Karlsson tapaði fyrir hinum reynda Björgvini Sigurbergssyni 6/5, sem þýðir að þegar fimm holur voru eftir hafði Björgvin sex holu vinning á Rúnar og því búinn að vinna. Júlíus Hallgrímsson tapaði fyrir Axel Bóasyni 3/1, Þorsteinn Hallgrímsson tapaði fyrir Hlyn G. Hjartarssyni 2/0 og Örlygur […]

Eldfell eitt af bestu eldfjöllum bókmenntanna

Snæfellsjökull og Eldfell í Vestmannaeyjum, sem myndaðist í eldgosinu í Heimaey 1973, eru í hópi 10 bestu eldfjalla heims, að því er fram kemur í úttekt blaðamanns breska dagblaðsins The Guardian. Eldfjöllin eru valin með hliðsjón af umfjöllun um þau í bókmenntaverkum en þessi náttúrufyrirbæri þykja jafnan magnað sögusvið bóka. (meira…)

Leiðrétting frá Björgvin og Margréti

Vegna upptalningar á launum í Fréttum í gær viljum við Margrét koma eftirfarandi leiðréttingu á framfæri á upplýsingum sem birtust þar. Ég er gefinn upp með 47.938 kr. en rétt er svona fyrir alla þá sem vilja vita og eru að fylgjast með því af miklum áhuga þá er ég með hvorki meira né minna […]

Flugeldasýningin á �?jóðhátíðinni séð með augum Eyfellinga

Á miðnætti á föstudeginum í Þjóðhátíð, var Eyjapeyinn Heiðar Egilsson staddur á bænum Steinum undir Eyjafjöllum, þar sem búa hjónin Kristján Guðmundsson ( frá Faxastíg 27 ) og kona hans Ólöf Bárðardóttir. – Það var Þjóðhátíðar stemmning þar, meira að segja hústjald í garðinum hjá þeim hjónum. (meira…)

�?lafur tekur við af �?lafi

Á síðasta fundi framkvæmda- og hafnarráðs bæjarins greindu formaður og varaformaður frá vinnu og tillögum um breytta verkaskiptingu við yfirstjórn hafnarinnar og gerð nýs skipurits fyrir Vestmannaeyja­höfn sem taka á gildi 1. janúar 2010. Kemur fram í fundargerð að umtals­verðar breytingar hafi orðið á starfsmannahaldi undanfarin misseri og að hafnarstjóri, Ólafur Kristinson, láti af störfum […]

Netpóstur Eyjasýnar úti

Vegna bilunar í póstkerfi Smartmedia berst enginn póstur til Eyjasýnar ehf. sem á og rekur m.a. vikublaðið Fréttir og vefmiðilinn Eyjafréttir.is. Unnið er að viðgerð en þeir sem vilja komast í samband við ritstjórnir Frétta og/eða Eyjafrétta.is er bent á að hringja í 481-1300 eða koma við á Strandvegi 47. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.