Hoffell SU með Álsey VE í togi

Eins og greint var frá fyrr í dag varð uppsjávarskipið Álsey VE vélarvana í gær og var skipið á reki austur af Papey fram eftir degi. Ekki tókst að koma vélinni aftur í gang en Hoffell SU er nú með Álsey í togi og á leið til Vestmannaeyja. Áætlað er að skipin komi til hafnar […]

Jakob Ágúst Hjálmarsson og spjallar um engla

Í kvöld, þriðjudaginn 14. október kl. 20:00 kemur Jakob Ágúst Hjálmarsson og spjallar um engla. Englar leika stórt hlutverk í Jesú sögunni og léku mikið hlutverk í hugarheimi fyrri tíðar manna og við hugsum af og til til þeirra einnig. Tölum t.d. um verndarengla. Séra Jakob var Dómkirkjuprestur og lengi prestur á Ísafirði.Eftir erindi Jakobs […]

�?að stefnir í glæsilegt Verslunarmannaball í ár

Það stefnir allt í glæsilegt Verslunarmannaball en ballið verður haldið í Höllinni 1. nóvember næstkomandi. Eins og kemur fram í fréttatilkynningu hér að neðan má búast við frábærri skemmtun enda mun leikkonan Helga Braga sjá um veislustjórn. Þá mun Jóhannes eftirherman einnig mæta með vinum sínum. Fréttatilkynninguna má lesa hér að neðan. (meira…)

Bíða með leikmannasamninga

Eins og áður hefur komið fram voru nokkrir leikmenn karlaliðs ÍBV í knattspyrnu með lausa samninga fyrir næsta tímabil. Búið er að semja við úgönsku leikmennina Andrew Mwesigwa og Augustine Nsumba en enn er ósamið við Pétur Runólfsson, Bjarna Hólm Aðalsteinsson og fyrirliðann Matt Garner. Sigursveinn Þórðarson, formaður knattspyrnudeildar segir deildina halda að sér höndum […]

Álsey VE vélarvana við Papey

Vélin okkar fór ekki með okkur þá leið sem við höfðum ætlað okkur. Erum við því vélarvana hér austur af Papey á reki og höfum verið frá því um kaffileytið. Árangurslaus var sú tilraun hjá vélstjórum okkar að koma blessuninni í gang án þess að gera stöðuna verri en hún er nú þegar. Von á […]

�?trúlegt stjórnarsamstarf

Hvernig ætli það sé eiginlega að vera fjármálaráðherra í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Á sama tíma hrópa ráðherrar og framámenn Samfylkingingar, Ingibjörg, Össur og Ágúst Ólafur í sífellu, göngum IMF á hönd skilyrðislaust… (meira…)

Ísland til sölu á eBay

Breti nokkur hefur tekið sig til og boðið Ísland til sölu á uppboðsvefnum eBay. Tekið er sérstaklega fram, að hvorki Grænland né Björk fylgi með í kaupunum. (meira…)

Fundaherferð Landsambands kúabænda hófst í gærkvöldi

Haustfundir LK hófust í gærkvöldi en þá var fundað í Þingborg í Flóa. Sérstakur gestur fundarins var Einar Kristinn Guðfinnsson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra. Þórólfur Sveinsson, formaður LK hafði framsögu fyrir höndi sambandsins og eins og vænta mátti voru verðlagsmál og afkoma kúabænda aðalefni fundarins. (meira…)

Lögregla kölluð að Hótel �?rk

Aðfaranótt sunnudags var lögregla kölluð að Hótel Örk vegna ölvaðs manns sem hafði brotið upp hurð í kjallara hótelsins. Maðurinn var handtekinn og færður í fangageymslu. Við yfirheyrslu viðurkenndi maðurinn verknaðinn og var mjög miður sín yfir að hafa brotið hurðina. Hann fór að yfirheyrslu lokinni og ræddi við starfsmenn hótelsins og samdi um bætur. […]

Meint brot á siglingalögum rannsökuð

Meint brot á siglingalögum sem talið er að framið hafi verið er menn sem ekki höfðu til þess tilskilin leyfi eða búnað seldu almenningi far úr Vestmannaeyjum til lands um síðustu verslunarmannahelgi er nú komið til yfirlestrar hjá löglærðum fulltrúa sýslumannsins á Hvolsvelli. (meira…)

Guðmundur VE landaði í Noregi

Síðastliðin fimmtudag landaði Guðmundur VE á Sortlandi í Noregi um 750 tonnum af frystum síldarafurðum. Áætluð aflaverðmæti veiðiferðarinnar eru um 100 milljónir, en erfitt er að segja með vissu hvert verðmætið er í íslenskum krónum við núverandi aðstæður á fjármálamörkuðum. (meira…)

Opnar 50. sýninguna föstudaginn 17. október kl. 20:00

Elfar Guðni Þórðarson, listmálari á Stokkseyri, opnar 50. málverkasýninguna föstudaginn 17. október kl. 20:00 í sýningarsal sínum Svarta-kletti í Menningarversatöðinni á Stokkseyri. Syningin er einnig í öðrum sölum hússins svo sem Menningarsalnum, Menningarkaffi og á göngum. Sýninguna nefnir Elfar Guðni Vinnustofumyndir” yfirlitssýning 1974 – 2008. “ (meira…)

Herjólfur á leið úr slipp

Farþegaferjan Herjólfur, sem hefur verið í slipp norður á Akureyrir í rúma viku, er á leið úr slippnum eftir reglubundna ástandsskoðnun og hefðbundið viðhald. Skipið hefur siglingar að nýju að morgni miðvikudagsins næstkomandi og verður siglt frá Eyjum samkvæmt áætlun klukkan 8:15. (meira…)

Kynning á nýjum skólalögum

Menntamálaráðherra mun á næstu vikum fara um landið og kynna nýja menntastefnu og ný lög um þrjú skólastig og menntun kennara. Fundaherferðin hófst með velheppnuðu Menntaþingi í Háskólabíói 12. september sem yfir 800 manns sóttu, hlýddu á kynningar á nýrri stefnu og tóku þátt í líflegum umræðum í málstofum. Næsti fundur verður haldinn á Selfossi […]

Sigurður Ari með eitt mark í Tyrklandi

Noregsmeistarar Elverum eru í góðum málum fyrir seinni viðureign sína gegn tyrkneska liðinu Izmir eftir sigur í Tyrklandi í gær, 30-28. Sigurður Ari Stefánsson skoraði eitt mark fyrir Elverum en síðari leikurinn fer fram í Noregi um næstu helgi. (meira…)

Lenti í sjálfheldu í Ingólfsfjalli

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út í dag vegna manns sem var í sjálfheldu í Ingólfsfjalli, fyrir ofan sumarbústað sem stendur í klettum suðaustan megin í fjallinu. Maðurinn, sem var á hefðbundinni leið upp fjallið, fór af henni og í klettabelti og þegar hann var kominn efst lenti hann í sjálfheldu og gat sig hvergi […]

Mikilvæg rannsókn í loftslagsmálum

Fjölmargar rannsóknir undir flaggi loftslagsfræðanna fara nú fram um um allan heim. Þær eru margvíslegar, snúa að sjálfu loftslaginu sem og afleiðingum á náttúru og samfélög. (meira…)

Sunnlendingum boðið upp á stuðning

Vegna stöðu efnahagsmála bjóða stofnanir sem vinna að velferðarþjónustu, undir forystu Fjölskyldumiðstöðvar Árborgar, þeim stuðningsviðtöl sem á því þurfa að halda. Um er að ræða samvinnuverkefni Fjölskyldumiðstöðvar Árborgar, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlands, Vinnumálastofnunar Suðurlandi, presta í Árnesprófastdæmi og Árnesingadeild Rauða krossins. (meira…)

Sigur í jöfnum og spennandi leik

Karlalið ÍBV í körfubolta byrjar tímabilið vel í A-riðli 2. deildar en í dag tóku Eyjamenn á móti HK. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann en leikmönnum ÍBV gekk illa að hrista hina leikreyndu leikmenn HK af sér. Staðan í hálfleik var 43:33 en fyrir síðasta leikhluta var staðan jöfn 60:60. Að lokum höfðu […]

Fagnar 90 ára afmæli við erfiðar aðstæður

Landsbankinn á Selfossi fagnar því þessa daga að 90 ár eru liðin frá því að bankinn opnaði útibú á Selfossi. Að því tilefni hefur verið opnuð sögusýning í Tryggvaskála Það var einmitt í Tryggvaskála sem bankinn hóf starfsemi á Selfossi 4. október 1918. Tryggvaskáli er kenndur við Tryggva Gunnarsson, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.