Hópferð á leik ÍBV og Selfoss

ÍBV leikur sinn síðasta leik í 1. deildinni, að sinni a.m.k., næsta laugardag. Eftir leikinn verða sigurlaunin afhent. Hópferð er fyrirhuguð frá Eyjum á laugardaginn n.k. Rúta kemur í Herjólf að sækja mannskapinn og svo skutlað aftur í Herjólf eftir leik. (meira…)
Tuttugu þúsund tonn af mjöli frá verksmiðjum Ísfélagsins í Eyjum og á �?órshöfn

Flutningaskipið M/V Fonnland kom til Vestmannaeyja aðfararnótt mánudags til lestunar á 1300 tonnum af fiskimjöli frá bræðslu Ísfélagsins. Lestun skipsins gengur vel og verður væntanlega lokið fyrir miðnætti í dag. Frá Vestmannaeyjum heldur skipið til Þórshafnar þar sem það lestar önnur 1300 tonn af mjöli. (meira…)
Afritunarþjónusta hjá Tölvun
Undanfarið ár hefur Tölvun boðið fyrirtækjum og stofnunum upp á netafritun gagna. Fjölmörg fyrirtæki nýta sér þessa þjónustu sem felst í sjálfvirkri, daglegri afritun yfir internetið af öllum gögnum fyrirtækja. Fyllsta öryggis er gætt þar sem öll gögn eru dulkóðuð áður en þau eru send á milli staða. (meira…)
Eru að gera það gott á Álandseyjum

Fimm manna sveit Eyjapeyja er nú stödd á Álandseyjum, þar sem þeir taka þátt í Norðurlandamóti barnaskólasveita. Þeir gerðu jafntefli við Dani í 1. umferð, töpuðu fyrir Finnlandi II en unnu hinsvegar Finnland I og gerðu síðan jafntefli við Svía. (meira…)
Námskrá í íslensku fyrir útlendinga
Menntamálaráðuneytið hefur gefið út námskrá í íslensku fyrir útlendinga. Námskráin er ætluð fullorðnum einstaklingum af erlendum uppruna sem setjast að á Íslandi og þarfnast kennslu í grunnatriðum tungunnar. Náminu er ætlað að gera nemendur í stakk búna til þess að eiga samskipti við vinnufélaga og stjórnendur fyrirtækja, njóta góðs af þeirri samfélagsþjónustu sem í boði […]
Fyrirtæki í Hveragerði til fyrirmyndar í umgengni
Fjölmörg fyrirtæki hafa tekið þátt í umhverfisátaki sumarsins og má sjá stórkostlegar breytingar á sumum fyrirtækjalóðum víðsvegar um bæinn. Á sumum svæðum er umgengni þó verulega ábótavant og hefur þeim aðilum verið gert viðvart um aðgerðir. Mun bæjarfélagið sjá um að láta fjarlægja ýmislegt drasl á næstunni. (meira…)
Piltur skorinn í �?orlákshöfn
Piltur um tvítugt var skorinn illa á hálsi, höndum og eftir hluta líkamans í heimahúsi í Þorlákshöfn í fyrrinótt. Að sögn lögreglu þurfti tugi spora til að loka sárum hans en hann hefur nú verið útskrifaður af sjúkrahúsi. Fimm Pólverjar voru í haldi lögreglunnar á Selfossi vegna málsins; bæði karlar og konur, öll um tvítugt. […]
Söfnuðu fyrir vin sinn í Holti
Fyrir skömmu héldu nokkrir drengir frá Stokkseyri og Eyrarbakka söfnunartónleika á 800 BAR á Selfossi og rann ágóðinn til húsráðenda í Holti í fyrrum Stokkseyrarhreppi. Alls söfnuðust 240.000 kr. og gáfu strákarnir þeim gjöfina í 500 króna seðlum sem þeir settu í dráttarvélakerru í blómaskreytingu. „Það kviknaði í húsinu að Holti og við vildum sýna […]
Veiði yfir þúsund laxa!
Sá ótrúlegi árangur hefur náðst í Skógá að áin er komin yfir þúsund laxa og er það að sjálfsögðu metveiði þar á bæ og mörg hundruð löxum fram yfir það met sem fyrir var. Förum ekkert út í það því við munum ekki hvað það var. En yfir þúsund laxar á 4 stangir er ekkert […]
Fréttir úr sundlauginni
Aðsókn hefur verið mjög góð eftir að sundlaugin í Þorlákshöfn opnaði þann 1. ágúst síðastliðinn. Vatnalandið í innisundlauginni nýtur mikilla vinsælda yngri kynslóðarinnar og hafa u.þ.b. 13.600 gestir komið í laugina í ágústmánuði þar af um 7.000 um verslunarmannahelgina. Núna nýverið var einnig tekin í notkun ný rennibraut á útisvæði sem er mjög vinsæl. (meira…)
Styrkveitingar Menningarráðs Suðurlands haustið 2008
Næsta styrkúthlutun Menningarráðs Suðurlands verður í haust 2008. Umsóknarfrestur er til 20. september 2008. Menningarráð Suðurlands hefur ákveðið að við haustúthlutun 2008 verði litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur: (meira…)
Ríkið greiði 40% flutningskostnaðar
Starfshópur á vegum viðskiptaráðherra leggur til að ríkið greiði allt að 40% flutningskostnaðar framleiðslufyrirtækja á landsbyggðinni. Þá mælir starfshópurinn með því að flutningsjöfnunarsjóður olíuvara verði starfræktur áfram. Kostnaður við flutning á vörum til og frá fyrirtækjum sem starfa utan helstu þéttbýlissvæðis landsins háir mörgum framleiðslufyrirtækjum á landsbyggðinni. (meira…)
Prestsákæra alvarleg
Ekki er vitað til þess að prestur innan þjóðkirkjunnar hafi áður verið ákærður fyrir kynferðisbrot hér á landi. Ólafur Jóhannsson, formaður Prestafélagsins, segir alvarlegt að þessi staða sé komin upp. Ríkissaksóknari gaf í dag út ákæru á hendur séra Gunnari Björnssyni, sóknarpresti á Selfossi, fyrir kynferðisbrot. Fimm stúlkur kærðu Gunnar. Þrjú málanna voru felld niður, […]
27% munur á launum ríkis og markaðs
Trúnaðarmannaráð SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, krefst þess að launamunur milli starfsmanna ríkisins og starfsmanna á almennum markaði verði leiðréttur. Í nýrri launakönnun SFR komi fram að munurinn sé nú allt að 27% milli sambærilegra stétta og að meðaltali 20%. Þessi munur sé óásættanlegur. (meira…)
Nýir hrútar á sauðfjársæðingastöðvarnar 2008
Búið er að fá flesta þá hrúta sem koma nýir til nota á sæðingastöðvunum í desember í vetur. Ætlunin er að gefa örstutta kynningu á þessum hrútum á næstunni. Verður henni hagað þannig að á hverjum degi verður kynntur til leiks einn nýr hrútur. Hrútarnir verða kynntir í stafrófsröð. Það er Jón Viðar Jónmundsson, ráðunautur […]
Séra Gunnar Björnsson ákærður
Ríkissaksóknari hefur í dag gefið út ákæru á hendur Gunnari Björnssyni sóknarpresti á Selfossi. Alls bárust lögreglu og ákæruvaldi fimm kærur vegna meintra brota Gunnars en áður hefur verið fjallað um mál Gunnars í fjölmiðlum, samkvæmt tilkynningu frá ríkissaksóknaraembættinu. Ákært er vegna tveggja málanna en þrjú voru felld niður þar sem þau töldust ekki líkleg […]
Ekið á �?seyrarbrú
Kona sem grunuð er um ölvun ók bíl sínum á handrið Óseyrarbrúar í nótt, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi. Konan slapp ómeidd, en bíll hennar skemmdist talsvert og var óökufær eftir. Lítið tjón varð á handriðinu. Konan var handtekin og gistir fangageymslur á Selfossi. (meira…)
ÍBV leikur í �?rvalsdeildinni næsta sumar!!!

ÍBV er aftur komið í hóp þeirra bestu í íslensku knattspyrnunni. Í kvöld sigruðu þeir KS/Leiftur á Siglufirði 1-0 með marki Atla Heimissonar eftir um hálftíma leik. Og þar sem Selfoss tapaði kvöld fyrir Fjarðarbyggð, hefur ÍBV liðið þar að auki tryggt sér efsta sætið í 1. deild þótt það eigi eftir að leika tvo […]
ÍBV upp, Selfoss niður í 3. sæti og Stjarnan komin í 2. sætið
Heil umferð fór fram í 1. deild karla í kvöld. ÍBV hefur tryggt sér sæti í Landsbankadeild karla eftir 0-1 sigur á KS/Leiftri og með sigrinum tryggðu þeir sér einnig sigur í Landsbankadeildinni. Njarðvík féll með tapi gegn Leikni. Stjarnan komst í 2. sætið með sigri á KA á sama tíma og Selfoss tapaði á […]
Vel æfðir rassvöðvar

Það er með ólíkindum hvað fólki getur dottið í hug. Hér er myndband um japanska konu sem hefur greinilega sperrt rassinn nokkrum sinnum. Og nú er sú fimi hennar orðið sýningaratriði og vekur mikinn fögnuð eins og heyra má. (meira…)