Bærinn niðurgreiðir heimsendan mat um 53%
Samanburður sýnir að niðurgreiðslan í Vestmannaeyjum er hærri en víða annars staðar :: Nýtt útboð framundan
Ráðhús Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur fengið til kynningar samanburð á niðurgreiðslu heimsends matar hjá sveitarfélögum landsins. Samkvæmt minnisblaði framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs er niðurgreiðsla Vestmannaeyjabæjar um 53%, sem er hærra hlutfall en hjá mörgum öðrum sveitarfélögum sem skoðuð voru.

Málið var tekið fyrir sem framhald af umræðu á fundi bæjarráðs í desember, þar sem óskað var eftir slíkum samanburði. Fyrir ráðinu lá minnisblað þar sem gjaldskrár og fyrirkomulag heimsends matar hjá fjölda sveitarfélaga eru rakin.

Mikill munur á niðurgreiðslum sveitarfélaga

Í minnisblaðinu kemur fram að flest sveitarfélög niðurgreiða heimsendan mat að einhverju marki, þó í mismiklum mæli. Til að mynda er niðurgreiðslan um 50% á Akureyri, 22% í Reykjanesbæ, 36% í Hveragerði og um 14,6% í Árborg. Í Fjarðabyggð er niðurgreiðslan almennt á bilinu 30–40%, en getur farið allt að 60% á minni stöðum. Sum sveitarfélög niðurgreiða sérstaklega akstur og í einstaka tilfellum er stuðningurinn tekjutengdur.

Víða endurskoðun í gangi

Í Vestmannaeyjum tók ný gjaldskrá gildi í byrjun janúar 2026. Samkvæmt henni greiðir sveitarfélagið rúmlega helming kostnaðar við heimsendan mat. Í minnisblaðinu er bent á að þessi niðurgreiðsla sé há í samanburði við mörg önnur sveitarfélög.

Jafnframt kemur fram að víða um land sé verið að endurskoða fyrirkomulag og gjaldskrár heimsends matar. Í samtölum við önnur sveitarfélög hafi komið fram að umræða sé í gangi um hækkun gjalda og endurmat á umfangi niðurgreiðslna.

Samningi sagt upp – nýtt útboð framundan

Þá er bent á að samningi Vestmannaeyjabæjar við S.B. Heilsu ehf., sem sér um þjónustuna, verði sagt upp nú í janúar og rennur hann út í lok júlí 2026. Stefnt er að nýju útboði á þjónustunni, sem gæti leitt til verðhækkana.

Færri þjónustuþegar en meiri stofnanakaup

Í minnisblaðinu er einnig fjallað um þróun þjónustunnar síðustu ár. Fjöldi þjónustuþega sem fá heimsendan mat hefur fækkað um 25% frá árinu 2022. Á sama tíma hefur fjöldi starfsmanna stofnana sveitarfélagsins sem kaupa mat í gegnum S.B. Heilsu ehf. tvöfaldast.

Í niðurstöðu sinni þakkar bæjarráð upplýsingarnar, en engar ákvarðanir voru teknar í málinu á fundinum.

Nýjustu fréttir

Sigur og tap hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Svíþjóð
Takmarkað dýpi hamlar siglingum um Landeyjahöfn
Einar Gunnarsson skólastjóri er Eyjamaður mánaðarins
Ný vísindagrein um Kveikjum neistann
Ný aðstaða eykur sveigjanleika hafnarinnar
Mikill áhugi á The Puffin Run – Um 1.300 keppendur þegar skráðir
Sala á jólasælgæti Kiwanis hefst um helgina
25 fjölmiðlar fá rekstrarstuðning
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.