Bandaríska knattspyrnukonan Avery Vander Ven hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild ÍBV og kemur til með að leika með liðinu í Lengjudeild kvenna í sumar. Hún er 22 ára og hefur leikið í bandaríska háskólaboltanum síðustu ár, bæði hjá Colorado State Rams og einnig hjá Texas Longhorns.
Í tilkynningu á heimasíðu ÍBV segir að Avery hafi leikið í frábærri vörn hjá Colorado State sem setti nokkur met, meðal annars hélt liðið hreinu 10 sinnum á tímabilinu 2023 sem er met hjá skólanum. Hún lék hverja einustu mínútu í öllum 22 leikjum liðsins árið 2023 og einnig í öllum 21 leikjum liðsins árið 2024, þar sem liðið hélt hreinu 9 sinnum.
Ljóst er að hún er traustur varnarmaður og hafði Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari liðsins, þetta um Avery að segja: „Hún er hávaxin og er líkamlega sterkur varnarmaður sem býr yfir góðri tækni og góðum taktískum skilningi. Gott auga fyrir samleik og getur leyst fleiri stöður á vellinum.“
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst