Berglind keypt til Frakkalands

Berglind Björg, knattspyrnukona sem spilaði stórt hlutverk með landsliðinu á EM í sumar, er á förum frá norska liðun Brann. Þetta kemur fram í norskum miðlum í morgun.

Franska liði Paris Saint-Germain hefur keypt Berglindi, þetta er staðfest á vef Brann þar sem einnig kemur fram að hún hafi staðist læknisskoðun og sé búin að skrifa undir samning.

Berglind Björg, sem er 30 ára sóknarmaður, kom til Brann frá Hammarby í janúar á þessu ári. Hún skoraði eitt deildarmark og eitt bikarmark fyrir Brann.

Hún er ekki alveg ókunn Frakklandi, en hún spilaði með liðinu Le Havre 2020-2021 áður en hún fór til Hammarby og síðar Brann, þaðan sem hún flytur núna.

Berglind sagði í viðtali við Eyjafréttir í sumar að hún væri ánægð hjá Brann, þar sem allt væri til fyrirmyndar hjá þeim.

Fótbolti.net hefur þetta eftir þjálfara Brann:
„PSG gerði tilboð sem við gátum ekki hafnað. Því miður þá gat Berglind ekki spilað eins mikið fyrir okkur og við vonuðumst eftir, vegna meiðsla. En við óskum henni góðs gengis í framtíðinni,” segir starfandi þjálfari Brann og íþróttastjórinn Olli Harder.

Berglind Björg spilaði með ÍBV til 20 ára aldurs og fór þá í atvinnumennsku, hún er dóttir Sólveigar Önnu Gunnarsdóttur og Þorvaldar Heiðarssonar. Hún hefur spilað 66 landsliðsleiki fyrir Ísland og skorað í þeim 12 mörk.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.