Eyjakonur hefja lokasprettinn á heimavelli
Úr leik ÍBV og Þróttar á Hásteinsvelli fyrr í sumar. Ljósmynd: Sigfús G. Guðmundsson

Kvennalið ÍBV hefur leik í efri hluta Bestu deildarinnar í dag þegar Þróttur úr Reykjavík kemur í heimsókn á Hásteinsvöll. Flautað verður til leiks klukkan 17:15.

ÍBV lauk hefðbundinni deildarkeppni í þriðja sæti með 27 stig eftir 18 leiki. Þróttur hafnaði í fimmta sæti með 23 stig og skilja því fjögur stig liðin að þegar úrslitahluti tímabilsins hefst.

Liðin mættust síðast á Hásteinsvelli 21. ágúst og þá vann Þróttur 2:1. Gestirnir komust í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik áður en Milena Mihaela Patru minnkaði muninn fyrir ÍBV undir lok leiksins.

Fram undan er því krefjandi verkefni fyrir Eyjakonur, sem freista þess að hefja keppni í efri hlutanum með sigri á heimavelli. Leikurinn hefst eins og áður segir klukkan 17:15 á Hásteinsvelli.

Nýjustu fréttir

Fermetraverð í fjölbýli í Eyjum hækkað um 81%
Fjölbreytt októberblað með sérblaði um Kveikjum neistann
Lífshagsmunir gegn græðgishagsmunum
Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora
Kótilettur til góðs í Höllinni
Æfðu viðbrögð við eldsvoða í Kjarnanum
Aglow-konur hittast í kvöld
Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.