Leggja til lækkun fasteignaskatts

default

Bæjarráð Vestmannaeyja ræddi ramma og forsendur fjárhagsáætlunar bæjarins fyrir árið 2027 á fundi sínum á miðvikudag. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að því á bæjarskrifstofunum að meta áhrif breytinga á álagningarhlutfalli fasteignaskatts á tekjur bæjarsjóðs. Bæjarstjóri kynnti þá vinnu og tillögu sem nú liggur fyrir. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði, […]

ÍBV hafði betur í sjö marka leik gegn bikarmeisturunum

ÍBV tók á móti nýkrýndum bikarmeisturum í Þrótti Reykjavík á Hásteinsvelli í 1. umferð efri hluta Bestu deildar kvenna í kvöld, þar sem heimakonur höfðu betur, 4 – 3.  Fyrri hálfleikurinn byrjaði fremur rólega. Þróttur braut ísinn á 19. mínútu þegar Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir fékk boltann hægra megin á vellinum og sendi boltann fyrir markið. […]

Nýir eigendur taka við Kránni

Anton Eggertsson og Róbert Agnarsson hafa keypt Krána ehf. af Kára Vigfússyni og Þórkötlu Ólafsdóttur. Nýir eigendur taka við rekstrinum um næstu mánaðamót. Anton og Róbert reka fyrir Vöruhúsið og Vörubakarí í Vestmannaeyjum ásamt fjölskyldum sínum. Samkvæmt tilkynningu verður rekstri Kráarinnar haldið áfram með sama hætti og áður, með sama starfsfólki og sama matseðli. Nýir […]

Undirbúa starfslok hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands

Heilbrigðisnefnd Suðurlands hefur ákveðið að hefja undirbúning vegna breytinga á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga um næstu áramót. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá nefndinni. Með lagabreytingum sem taka gildi 1. janúar 2027 verða verkefni sem Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur sinnt um árabil að verulegu leyti færð frá sveitarfélögunum til ríkisins. Í ljósi þess hefur heilbrigðisnefnd falið […]

Hvað ef internetið lokaði klukkan 18?

Ég hef starfað sem talmeinafræðingur í næstum 14 ár og síðustu misseri hef ég mikið verið að velta fyrir mér: Hvað er að gerast með málið okkar og orðaforða barnanna okkar? Í mínu starfi finnst mér ég sjá mikla breytingu í gegnum árin. Ég hitti börn á hverjum degi sem eiga erfitt með að skilja, […]

Dýpið gott í Landeyjahöfn

User comments

Bæjarráð Vestmannaeyja fór yfir stöðuna í Landeyjahöfn á fundi sínum á miðvikudag. Fram kemur í bókun ráðsins að belgíska fyrirtækið Jan De Nul hafi hafið störf við höfnina. Áhöfn dæluskipisins Sebastiano Caboto vinnur nú að því að kynna sér aðstæður á svæðinu. Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er dýpið í Landeyjahöfn gott um þessar mundir og því […]

Fermingarfræðslan hefst á sunnudaginn

Sunnudaginn 20. september má segja að formleg fermingarfærðsla hefjist í Landakirkju, en þá eru fermingarbörn og foreldrar þeirra boðin sérstaklega velkomin í messu kl. 13.00. Að messu lokinni verður fundur með fermingarbörnum og foreldrum þeirra í safnaðarheimilinu. Skráningin í fermingarfræðsluna er rafræn inná vef Landakirkju, en tæknilegir örðugleikar hafa því miður sett smá strik í […]

Þórarinn Björn ráðinn forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar

Vestmannaeyjabær hefur ráðið Þórarin Björn Steinsson í starf forstöðumanns Þjónustumiðstöðvar bæjarins. Frá þessu er greint á vef sveitarfélagsins í dag. Sjö umsóknir bárust um starfið en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. Þórarinn Björn var því einn sex umsækjenda sem eftir stóðu. Þórarinn Björn lauk skrifstofuskóla MSS og stundaði nám við viðskipta- og hagfræðideild […]

Handboltinn númer eitt – smíðin með í för 

Sigurmundur Gísli Unnarsson er aðeins 17 ára en hefur þegar látið að sér kveða í handboltanum með ÍBV og yngri landsliðum Íslands. Nú er hann jafnframt að stíga sín fyrstu skref í smíðanámi við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. Þar ætlar hann að láta hendur standa fram úr ermum – á milli handboltaæfinga og leikja. „Ég heiti […]

Ríkið hafnar beiðni bæjarins um niðurfellingu virðisaukaskatts

Bæjarráð segir óásættanlegt að íbúar Vestmannaeyja þurfi sjálfir að greiða stóran hluta kostnaðar við almannavarnalögnina NSL-4. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur hafnað beiðni bæjarins um endurgreiðslu eða niðurfellingu virðisaukaskatts vegna framkvæmdarinnar. Vestmannaeyjabær sendi fjármála- og efnahagsráðherra í júní 2025 ósk um breytingu á lögum um virðisaukaskatt. Markmiðið var að heimila endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna lagningar neysluvatnslagnar sveitarfélagsins. […]

Aðalfundur Farsæls haldinn 25. september

Aðalfundur Smábátafélagsins Farsæls í Vestmannaeyjum verður haldinn föstudaginn 25. september klukkan 17.00 á efri hæð Fiskmarkaðs Vestmannaeyja. Gestir fundarins verða Kjartan Páll Sveinsson, nýr formaður Landssambands smábátaeigenda, og Bryndís Ósk Björnsdóttir, nýráðin framkvæmdastjóri sambandsins. Félagar í Farsæli eru hvattir til að mæta enda séu miklar breytingar í farvatninu. Smábátasjómenn í Vestmannaeyjum sem ekki eru skráðir […]

Eyjakonur hefja lokasprettinn á heimavelli

Kvennalið ÍBV hefur leik í efri hluta Bestu deildarinnar í dag þegar Þróttur úr Reykjavík kemur í heimsókn á Hásteinsvöll. Flautað verður til leiks klukkan 17:15. ÍBV lauk hefðbundinni deildarkeppni í þriðja sæti með 27 stig eftir 18 leiki. Þróttur hafnaði í fimmta sæti með 23 stig og skilja því fjögur stig liðin að þegar […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.