Handboltinn númer eitt – smíðin með í för 
Sigurmundur Gísli Unnarsson.
Omar Betri
Ómar
Garðarsson

Sigurmundur Gísli Unnarsson er aðeins 17 ára en hefur þegar látið að sér kveða í handboltanum með ÍBV og yngri landsliðum Íslands. Nú er hann jafnframt að stíga sín fyrstu skref í smíðanámi við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. Þar ætlar hann að láta hendur standa fram úr ermum – á milli handboltaæfinga og leikja.

„Ég heiti Sigurmundur Gísli Unnarsson, er sautján ára og á fyrsta ári í smíðinni. Námið er sex annir,“ segir Sigurmundur. Hann lauk tíunda bekk í fyrra en tók í kjölfarið tvær annir við FÍV, meðal annars í grunnteikningu og öðrum greinum sem nýtast honum áfram í náminu. 

Laginn og finnst gaman að smíða 

Þegar Sigurmundur er spurður hvers vegna smíðin varð fyrir valinu stendur ekki á svarinu.

„Ég er laginn og finnst gaman að vinna með höndunum. Ég stefni á að klára smíðina en núna er handboltinn númer eitt hjá mér,“ segir hann.

Og þar hefur nóg verið að gera. Sigurmundur er markvörður ÍBV og einn efnilegasti ungi handboltamaður félagsins. Hann varð Ólympíumeistari Evrópuæskunnar með U17 ára landsliði Íslands árið 2025 og átti stórleik í úrslitasigrinum gegn Þýskalandi.

Hann vann einnig silfur með U18 ára landsliðinu á Sparkassen Cup og var í sumar í landsliðshópnum á EM U18. Í vor var hann jafnframt valinn í úrvalslið alþjóðlegs móts í Lúxemborg eftir góða frammistöðu með ÍBV.

Nám og handbolti fara saman 

Framtíðin ræðst því ekki aðeins af því hvernig gengur við hefilbekkinn heldur einnig af því hversu langt Sigurmundur nær í handboltanum. Hann ætlar þó að halda báðum möguleikum opnum og klára smíðanámið samhliða handboltanum. 

„Verkefnið í vetur er að samræma nám og handbolta. Það verður nóg að gera en það er bara skemmtilegt,“ segir Sigurmundur Gísli að lokum, tilbúinn í veturinn – hvort sem verkefnið bíður hans í smíðastofunni eða fyrir framan mark ÍBV. 

Nýjustu fréttir

Fermetraverð í fjölbýli í Eyjum hækkað um 81%
Fjölbreytt októberblað með sérblaði um Kveikjum neistann
Lífshagsmunir gegn græðgishagsmunum
Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora
Kótilettur til góðs í Höllinni
Æfðu viðbrögð við eldsvoða í Kjarnanum
Aglow-konur hittast í kvöld
Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.