Nýir eigendur taka við Kránni
Frá vinstri eru Róbert Agnarsson og Anton Eggertsson, nýir eigendur Kráarinnar, Kári Vigfússon, fráfarandi eigandi, og starfsmennirnir Magdalína og Arnar. Eyjafréttir/TMS

Anton Eggertsson og Róbert Agnarsson hafa keypt Krána ehf. af Kára Vigfússyni og Þórkötlu Ólafsdóttur. Nýir eigendur taka við rekstrinum um næstu mánaðamót.

Anton og Róbert reka fyrir Vöruhúsið og Vörubakarí í Vestmannaeyjum ásamt fjölskyldum sínum. Samkvæmt tilkynningu verður rekstri Kráarinnar haldið áfram með sama hætti og áður, með sama starfsfólki og sama matseðli.

Nýir eigendur segjast vonast til þess að eiga áfram farsæl viðskipti við viðskiptavini staðarins og byggja áfram á því starfi sem Kári hefur staðið fyrir undanfarin ár.

Kári og fjölskylda segjast skilja þakklát við reksturinn. Þau þakka Vestmannaeyingum og öðrum viðskiptavinum fyrir góð og farsæl viðskipti og óska nýjum eigendum velfarnaðar.

 

Nýjustu fréttir

Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.