Fermingarfræðslan hefst á sunnudaginn
Ferming í Landakirkju. Fermingarfræðsla hefst nk. sunnudag.

Sunnudaginn 20. september má segja að formleg fermingarfærðsla hefjist í Landakirkju, en þá eru fermingarbörn og foreldrar þeirra boðin sérstaklega velkomin í messu kl. 13.00. Að messu lokinni verður fundur með fermingarbörnum og foreldrum þeirra í safnaðarheimilinu.

Skráningin í fermingarfræðsluna er rafræn inná vef Landakirkju, en tæknilegir örðugleikar hafa því miður sett smá strik í skráningar reikninginn, þannig að við biðjum fólk að sýna okkur þolinmæði í þessum efnum, og vonandi tekst að leysa úr þessum tæknimálum fljótt og vel.

 

Kærar kveðjur frá prestum Landakirkju.

Sr. Guðmundur Örn Jónsson og sr. Viðar Stefánsson

Nýjustu fréttir

Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.