Vestmannaeyjabær hefur ráðið Þórarin Björn Steinsson í starf forstöðumanns Þjónustumiðstöðvar bæjarins. Frá þessu er greint á vef sveitarfélagsins í dag.
Sjö umsóknir bárust um starfið en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. Þórarinn Björn var því einn sex umsækjenda sem eftir stóðu.
Þórarinn Björn lauk skrifstofuskóla MSS og stundaði nám við viðskipta- og hagfræðideild Háskólabrúar Keilis. Þá hefur hann vinnuvélaréttindi og meirapróf.
Hann hefur stýrt útibúi Samskipa í Vestmannaeyjum frá árinu 2021. Þar áður starfaði hann sem yfirverkstjóri hjá Airport Associates á árunum 2016–2020 og verkstjóri hjá Aviator í Noregi frá 2014 til 2016.
Í tilkynningu Vestmannaeyjabæjar segir að Þórarinn Björn hafi farsæla reynslu af stjórnun og rekstri með starfsmannahaldi. Hann hafi jafnframt öðlast fjölbreytta reynslu af stjórnun verkefna og framkvæmda, skipulagi og áætlanagerð í rekstri.
Ekki kemur fram í tilkynningunni hvenær Þórarinn Björn tekur til starfa.