Heilbrigðisnefnd Suðurlands hefur ákveðið að hefja undirbúning vegna breytinga á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga um næstu áramót. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá nefndinni.
Með lagabreytingum sem taka gildi 1. janúar 2027 verða verkefni sem Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur sinnt um árabil að verulegu leyti færð frá sveitarfélögunum til ríkisins.
Í ljósi þess hefur heilbrigðisnefnd falið framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að hefja formlegt ferli vegna starfsloka starfsfólks og uppsagnar á leiguhúsnæði embættisins. Jafnframt hefur formanni nefndarinnar verið falið að segja framkvæmdastjóranum upp störfum.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands er byggðasamlag sveitarfélaganna á Suðurlandi og hefur um langt skeið sinnt verkefnum á sviði heilbrigðiseftirlits, hollustuhátta, mengunarvarna og matvælaeftirlits á starfssvæðinu.
Heilbrigðisnefndin leggur áherslu á að vel verði staðið að breytingunum og að hagsmunir starfsfólks verði hafðir að leiðarljósi. Starfsfólkið búi yfir mikilli reynslu og sérþekkingu sem mikilvægt sé að nýtist áfram við eftirlit og þjónustu á Suðurlandi.
Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, SASS, hefur fundað um málið og tekur undir áherslur heilbrigðisnefndar. Stjórnin leggur jafnframt áherslu á að ríkið nýti þann mannauð og þá staðarþekkingu sem þegar er til staðar á Suðurlandi við uppbyggingu nýs eftirlitskerfis.