Dýpið gott í Landeyjahöfn
Ekki er talin þörf á umfangsmikilli dýpkun í Landeyjahöfn á næstunni :: Nýr dýpkunarverktaki hefur hafið störf og er stefnt að viðhaldsdýpkun þegar aðstæður leyfa
User comments
Lóðsinn í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓT

Bæjarráð Vestmannaeyja fór yfir stöðuna í Landeyjahöfn á fundi sínum á miðvikudag. Fram kemur í bókun ráðsins að belgíska fyrirtækið Jan De Nul hafi hafið störf við höfnina. Áhöfn dæluskipisins Sebastiano Caboto vinnur nú að því að kynna sér aðstæður á svæðinu.

Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er dýpið í Landeyjahöfn gott um þessar mundir og því ekki talin þörf á umfangsmikilli dýpkun á næstunni.

Stefnt er að viðhaldsdýpkun við innsiglinguna og brimvarnargarða þegar aðstæður leyfa.


Þessu tengt: 

Nýtt dýpkunartímabil að hefjast í Landeyjahöfn

Dæluskipið Sebastiano Caboto liggur nú í Vestmannaeyjahöfn en það mun sinna viðhaldsdýpkun í Landeyjahöfn næstu árin. Samningur Vegagerðarinnar við belgíska dýpkunarfyrirtækið Jan De Nul tekur gildi 15. september. Halldór B. Halldórsson tók meðfylgjandi myndband af skipinu í Vestmannaeyjahöfn. Eyjafréttir greindu frá komu skipsins til Vestmannaeyja í gær. Sebastiano Caboto mun sinna reglubundinni viðhaldsdýpkun hafnarinnar samkvæmt […]

Nýjustu fréttir

Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.