ÍBV hafði betur í sjö marka leik gegn bikarmeisturunum
ÍBV stelpurnar fagna einu af mörkum sínum í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV tók á móti nýkrýndum bikarmeisturum í Þrótti Reykjavík á Hásteinsvelli í 1. umferð efri hluta Bestu deildar kvenna í kvöld, þar sem heimakonur höfðu betur, 4 – 3. 

Fyrri hálfleikurinn byrjaði fremur rólega. Þróttur braut ísinn á 19. mínútu þegar Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir fékk boltann hægra megin á vellinum og sendi boltann fyrir markið. Þar var Katie Cousins mætt og stýrði boltanum í netið og kom Þrótti í 0 – 1.

Eyjakonur svöruðu með þremur mörkum. Ágústa María Valtýsdóttir jafnaði fyrir ÍBV eftir hálftíma leik. Hún vann þá boltann af varnarmanni Þróttar, lék fram hjá Ninnu Björk Þorsteinsdóttur í markinu og setti boltann í autt markið.

Olga Sevcova kom ÍBV yfir á 40. mínútu eftir frábæran undirbúning Fridrikku Marie Clementsen. Fridrikka skoraði síðan sjálf þriðja mark ÍBV rétt fyrir hálfleiksflautið, eftir undirbúning Olgu. Staðan því 3 – 1 í hálfleik.

Í síðari hálfleik minnkaði Þróttur muninn í 3 – 2 á 57. mínútu með marki frá Bríeti Fjólu Bjarnadóttur. Bríet Fjóla var svo nálægt því að jafna leikinn þrettán mínútum fyrir leikslok en skot hennar hafnaði í stönginni.

Það var svo markadrottningin Allison Grace Lowrey sem skoraði fjórða mark ÍBV á 80. mínútu eftir undirbúning Jessicu Jean Hinton. Björgey Njála Andreudóttir klóraði í bakkann fyrir Þrótt á lokamínútu leiksins þegar hún skoraði af stuttu færi. Niðurstaðan varð því 4 – 3 sigur ÍBV.

ÍBV er í þriðja sæti efri hluta deildarinnar með 30 stig, tíu stigum á eftir Breiðabliki og FH. Þróttur er í fimmta sæti með 23 stig.

Úrslit kvöldsins í Bestu deild kvenna:

  • FH 1 – 0 Stjarnan
  • ÍBV 4 – 3 Þróttur R.
  • Fram 2 – 2 Víkingur R.

Nýjustu fréttir

Kvörtun um stöðu ferjusamgangna fékk ekki frekari meðferð
Uppfært: Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Minni makrílútflutningur vegur þungt í samdrætti septembermánaðar
Subsea7 viðurkennir mistök við útlagningu vatnslagnar
Fermetraverð í fjölbýli í Eyjum hækkað um 81%
Fjölbreytt októberblað með sérblaði um Kveikjum neistann
Lífshagsmunir gegn græðgishagsmunum
Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.