Bergur og Vestmannaey landa fyrir austan
bergey_opf
Myndin er tekin um borð í Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Vestmannaeyjatogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir í Neskaupstað í vikunni, Bergur á miðvikudag og Vestmannaey í gær. Afli skipanna var blandaður, mest þorskur, ýsa og ufsi. Bæði skip fóru óvenju víða í veiðiferðinni og átti veðrið þar hlut að máli. Rætt er við skipstjórana á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, sagði að túrinn hefði hafist í brælu fyrir sunnan land en veðrið hefði verið mun skárra eftir að komið var austur fyrir landið.

„Við fórum frá Eyjum á laugardagskvöld og hófum veiðar á Pétursey og Vík en þar fékkst aðeins þorskur. Þá var haldið á Ingólfshöfðann þar sem var góð þorskveiði. Við fengum ufsa á Breiðamerkurdýpi og ýsu við Hvalbakinn. Túrnum lauk svo á Tangaflakinu þar sem fékkst ýsa og þorskur með. Við héldum á ný til veiða strax að löndun lokinni en hann spáir norðanskít um helgina. Það kemur í ljós hvernig veðrið verður,” sagði Jón.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að túrinn hefði bara gengið vel miðað við aðstæður.

„Við látum alls ekki illa af okkur þó veðrið hefði mátt vera betra. Það var víða farið í veiðiferðinni en veiðar hófust sunnan við Vestmannaeyjar og enduðu á Gerpisflakinu. Aflinn var mjög blandaður. Það er hægt að telja upp hvar veitt var í túrnum. Byrjað var við Eyjar og síðan var veitt í Meðallandsbugt, á Ingólfshöfða, í Breiðamerkurdýpi, Hornafjarðardýpi, Berufjarðarál, Hvalbakshalli, Litladýpi, á Skrúðsgrunni og í Reyðarfjarðardýpi og síðan endað á Gerpisflakinu. Haldið verður á ný til veiða fljótlega að löndun lokinni en sannast sagna líst mönnum ekkert alltof vel á veðurspána,” sagði Egill Guðni.

Nýjustu fréttir

Tjón á nýju vatnslögninni
Kristján myndaði einn í Hellisey í heila viku
Íbúum í Eyjum fjölgar á ný
Óska eftir vitnum að líkamsárás
Endurraðað í nefndir skömmu eftir sveitarstjórnarkosningar
Sjö sinnum orðið aldimmt um hábjartan dag í Eyjum
Mikilvæg verkefni og fjölbreytt starfsemi hjá HSU
Nei og aftur nei
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.