Blátindur VE 21 og örlög hans voru til umræðu á fundi framkvæmda og hafnarráðs í gær þar var lagt fram mat á varðveislugildi Blátinds VE sem unnið var að undirlagi Minjastofnunar. Matið vann Helgi Máni Sigurðsson, formaður Sambands íslenskra sjóminjasafna og sérfræðingur á Borgarsögusafni Reykjavíkur.
Í samantekt skýrslunar kemur fram:
Blátindur er friðaður vegna aldurs. Hann er síðasta eintak sinnar tegundar, þ.e. er eini þilfarsvélbáturinn sem eftir er af þeim sem smíðaðir voru / Vestmannaeyjum á 20. öld en þeir voru 78.
Blátindur tilheyrir þþriðju kynslóð fiskibáta á eftir opnum árabátum og opnum vélbátum. Hann telst vera með fremur gamaldags skrokklagi sem er orðið fágætt og eykur gildi hans
Báturinn var á sínum tíma meðal stærstu og glæsilegustu fiskiskipa Vestmannaeyjum Hann er dæmigerður fyrir þá vélbáta gerðir voru út frá Vestmannaeyjum um og upp úr miðri 20. öldinni á vetrarvertíð og fóru til síldveiða á sumrin meðan síldin gaf.
Hann er ómetanleg heimild um undirstöðuatvinnuveg Vestmannaeyja, stærstu verstöðvar landsins. Hann hefur einnig mikið gildi fyrir fiskveiðisögu landsins. Varðveislugildi bátsins er enn meira fyrir það að sléttsúðaðir eikarbátar týna nú hratt tölunni á Íslandi
Blátind ber því tvímælalaust að varðveita. Út frá varðveislusjónarmiði skiptir ekki meginmáli hvernig það er gert þrír möguleikar eru í stöðunni:
1. Að koma honum skjól, b.e. undir bak, í bví ástandi sem hann er
2. Að koma honum sýningarhæft ástand og hafa hann annað hvort innandyra eda utan
3. Að gera hann sjófæran og láta hann liggja við bryggju þegar hann er ekki í notkun
Best væri að gera Blátind sjófæran. En þad er dýrasti kosturinn og e.t.v. ekki raunhæfur
Skýrslan í heild sinni
Mat á varðveislugildi Blátinds ve 21.pdf
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst