Bestu tölur laugardagsins
Peninga
Rúmlega 336 milljóna króna EuroJackpot-vinningur kom til Íslands um síðustu helgi. Vinningshafarnir hafa ákveðið að deila gleðinni með börnum sínum og barnabörnum.

Margir voru eflaust ánægðir með tölurnar sem litu dagsins ljós síðastliðið laugardagskvöld en tveir miðaeigendur í Lottóinu voru þó alveg sérlega ánægðir þegar þeir sáu að tölurnar sem þeir höfðu á Lottómiðum sínum væru þær sömu og komið höfðu upp í útdrætti kvöldsins. Lottópotturinn, sem var þrefaldur og innihélt fyrsta vinning upp á rétt tæpar 35 milljónir og skilaði hvorum miðaeigendanum  rúmum 17,4 skattfrjálsum milljónum, segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Annar vinningshafinn er karlmaður sem keypti miðann sinn í Shellskálanum, Austurmörk í Hveragerði. Hann heimsótti höfuðstöðvar Íslenskrar getspár snemma á mánudagsmorgun til að skila inn vinningsmiðanum enda hafði sá heppni haft miklar áhyggjur af því hvar öruggast væri að geyma hann eftir að hann hafði áttað sig á stóra vinningnum. Í fyrstu sagði hann að draumurinn væri að geta nú loksins boðið börnunum sínum með sér í ferðalag í aðeins heitara loftslag. Að öðru leyti var allt óákveðið hjá honum enda hefði hann alltaf hugsaði mest um að styrkja við íþróttir í landinu með því að spila í Lottó.

Hinn vinningshafinn sem var með allar tölur réttar er kona sem keypti sinn miða í gegnum Lottóappið. Hún sagðist enn ekki vera farin að trúa þessu, sagðist einfaldlega vera bíða eftir því að vakna og komast að því að þetta væri bara draumur. Hún lýsti því hvernig hún hefði verið hoppandi kát og með öran hjartslátt langt fram eftir laugardagskvöldinu en hún sá það strax í appinu að hún hefði unnið þann stóra. Konan hafði nýverið fest kaup á íbúð og sagði það ólýsanlega tilfinningu að geta nú strax borgað vel inn á lánið sitt.

Við óskum báðum vinningshöfunum innilega til hamingju og þökkum um leið kærlega fyrir veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó, segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.