Bikaróður Eyjamaður - Draumaliðið
Óttar Þór, Gummi og Grétar Þór. Fleiri voru boðaðir en sváfu yfir sig.

Guðmundur Ásgeir Grétarsson, Bikaróður Eyjamaður á sér sitt draumalið í handboltanum og þar er bara pláss fyrir þá bestu. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem hann boðaði til á annan í hvítasunnu þar sem hann kynnti líka nýja stjórn hjá ÍBV-B.

Ísak Rafnsson er nýr þjálfari ÍBV-B og aðstoðarmaður hans er Þorkell Rúnar. Formaður er Kjartan Vídó, Óskar Bjarni verður varaþjálfari og Ómar Garðarsson upplýsingafulltrúi.

Róbert Agnar er nýr ritari, Pálmi Harðarson gjaldkeri og Grétar Þór verður til aðstoðar hvar sem þörf verður. Tryggvi Rafnsson verður grillstjóri og Stefán Róbertsson snýr aftur til ÍBV-B.

Leikmenn sem Gummi vill sjá í ÍBV-B eru Einar Baldvin frá Aftureldingu, Róbert Aron frá Val, Kári Kristján frá ÍBV, Halldór Kristinn frá Þór, Einar Örn frá FH, Dagur Arnars frá ÍBV, Nökkvi Snær og Aron Pálma og Alexasnder Petersen og Eyjamaðurinn Vignir Stefánsson frá Val.

Harðsnúið lið sem gaman væri að sjá á handboltavellinum og sýnir að okkar maður veit meira en margur um handbolta.

Nýjustu fréttir

Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.