Britney Cots hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild ÍBV. Frá þessu er greint í tilkynningu á facebook-síðu handknattleiksdeildar ÍBV. Britney hóf ferilinn með meistaraflokki aðeins 15 ára gömul í Frakklandi og var í æfingahópum yngri landsliða í Frakklandi en spilar nú með A-landsliði Senegal.
„Hún tók þátt í Afríkumeistaramótinu sem haldið var í Kamerún árið 2021 og svo aftur árið 2022 þegar mótið var haldið í Senegal og enduðu þær þar í 4 sæti. Britney var einnig valin í leikmannahóp Senegal árið 2024 en gaf ekki kost á sér vegna meiðsla. Senegal er búið að tryggja sér þátttökurétt á heimsmeistaramótinu sem fer fram nú í ár í Þýskalandi og Hollandi og vonumst við til að sjá hana í þeim hópi.
Britney kom til Íslands árið 2018 og spilaði fyrir FH og Stjörnuna áður en hún gekk til liðs við ÍBV árið 2023. Britney hefur spilað sem vinstri skytta og einnig verið mikilvægur hlekkur í varnarleik liðsins. Við erum mjög ánægð með að hafa tryggt okkur krafta hennar áfram næstu árin,” segir í tilkynningunni.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst