Diddú, �?skar og Gunnar


Á tónleikunum koma fram Skálholtskórinn, styrktur félögum úr nágrannasveitunum, og Barna- og kammerkór Biskupstungna, undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar, ásamt Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og �?skari Péturssyni frá Álftagerði. Kammersveit konsertmeistarans Hjörleifs Valssonar leikur undir.

Eins og undanfarin ár verður frumflutt jólalag og er það Elín Gunnlaugsdóttir, tónskáld og tónfræðakennari, sem semur jólalag Skálholts 2006, en hún er fædd og uppalin í Skálholtssókn.

Heiðursgestur tónleikanna er Gunnar �?órðarson, sem hefur samið sérstakt jólalag fyrir barnakórinn. Gunnar hefur verið í nánu samstarfi við kóra í Tungunum á þessu ári í gegnum flutning á verki hans �?Brynjólfsmessu�? í vor, í Keflavík, Skálholti og Grafarvogi, en verkið er nýkomið út á geisladiski, auk þess sem það verður flutt í sjónvarpi um jólin.

Forsala aðgöngumiða er sem áður í símum 865-4393 og 847-5057 og kostar miðinn 2.500 krónur. Einnig verða miðar til sölu í Kirkjuhúsinu í Reykjavík, Versluninni Írisi á Selfossi, Versluninni Borg Grímsnesi, Versluninni Árborg í Gnúpverjahreppi, útibúi Lyfju í Laugarási Bisk, Versluninni H-Sel á Laugarvatni, Galleríinu á Laugarvatni og á Flúðum hjá Helga í Garði, s: 898-0913.

Nýjustu fréttir

Stuðningsmaður KFS vinnur 700 þúsund
Vestmannaeyja-Þór ruddi brautina fyrir Landhelgisgæslu Íslands
Klara Káradóttir framlengir við ÍBV
Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa
Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu
Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.