Dróttskátar keppa á Hellisheiði


�?essari keppni er ætlað að þjálfa dróttskáta og ungliða björgunarsveita í útivist og ferðamennsku um óbyggðir Íslands. Keppnin felur í sér 30 tíma ratleik sem hefst í skíðaskála Víkings klukkan 7:00 að laugardagsmorgni og endar við sundlaugina í Hveragerði klukkan 14:00 á sunnudegi.

Á föstudagskvöldi skipuleggja skátarnir leið sína um svæðið og ákveða hversu marga þrautapósta þeir ætla að koma við á. Við skipulagninguna reynir á góða kunnáttu í kortalestri og rötun.

Keppnin á laugardegi og sunnudegi fer fram á Hellisheiði og Hengilssvæðinu þar sem skátarnir leysa þrautir sem reyna á þekkingu og hæfni þeirra í útivist og ferðamennsku. �?rautirnar geta falið í sér að svara spurningum um hæstu fjöll jarðar, síga í klettum og æfa snjófljóðaleit svo fátt eitt sé nefnt.

Skátarnir gista á leiðinni við skátaskálann �?rym og geta valið hvort þeir gisti innandyra, í tjaldi, snjóhúsi eða undir berum himni en fyrir það eru gefin stig eftir því hvar þau sofa. Keppnin er mikil þrekraun fyrir ungmennin þar sem reynir á útsjónarsemi, þol og hugrekki þeirra

Á sunnudegi lýkur keppninni formlega við sundlaugina í Hveragerði með grillveislu og verðlaunaafhendingu ásamt hópmyndatöku. Keppendur skola síðan af sér ferðarykið í sundlauginni.

Veglegir vinningar eru í boði fyrir fyrstu 3 sætin og aðra sem hafa skarað fram úr á ákveðnum sviðum.

Stór hópur eldri skáta og björgunarsveitafólks kemur að skipulagningu keppninnar.

Nýjustu fréttir

Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.