Efling hafrannsókna og burðarþolsmats fjarðakerfa
Bjart framundan í loðnu en niðurskurður í þorski, ýsu og ufsa.

Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2024 gerir ráð fyrir auknu framlagi til hafrannsókna hjá Hafrannsóknastofnun (Hafró) sem nemur 180 milljónum króna. Markmið aukningarinnar er að skapa sjávarútvegi skilyrði til aukinnar verðmætasköpunar.

Utan þess að styrkja rekstrargrunn Hafró verður framlagið nýtt til að ráðast í heildræna skoðun á vistkerfum hafs og vatna og verndun þeirra. Hafin verður kerfisbundin kortlagning búsvæða auk verkefnis um líffræðilega fjölbreytni innan lykiltegunda. Einnig verður ráðist í verkefni vegna áhrifa loftslagsbreytinga og súrnunar sjávar ásamt því að bæta líkanagerð stofnunarinnar við stofnmat. Jafnframt verður ráðist í átak í greiningu á heildstæðum áhrifum manna á vistkerfið, tengsl við alþjóðasamninga um líffræðilega fjölbreytni aukin og áhersla aukin á stjórnsýsluverkefni stofnunarinnar, s.s. við gerð umsagna. Úthaldsdögum hafrannsóknaskipa verður enn fremur fjölgað og rekstur þeirra tryggður.

Samkvæmt fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að framlagið fari hækkandi á komandi árum og verði í kringum 630 milljónir króna frá og með árinu 2026. Það er hluti af aðgerðum stjórnvalda til að efla stjórnsýslulega umgjörð, sjávarútvegs og fiskeldis.

Að auki er gert ráð fyrir fjárheimild upp á 126 milljónir króna til að styrkja verkefni Hafró á sviði burðarþolsmats fjarðakerfa, þ.m.t. eldissvæðaskiptingu, mat á umhverfisáhrifum sjókvíaeldis, áhættumat erfðablöndunar og rannsóknir á dreifingu laxa- og fiskilúsar. Áætlað er að framlagið fari hækkandi á komandi árum og verði komið í kringum 226 milljónir króna frá og með árinu 2026.

„Stofnunin gegnir mikilvægu hlutverki í rannsóknum á vistkerfum sjávar sem og ráðgjafarhlutverki varðandi sjálfbæra nýtingu auðlinda hafs og vatna” sagði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. „Með því að styrkja þá starfsemi stofnunarinnar aukum við framtíðarmöguleika komandi kynslóða til velsældar”.

Nýjustu fréttir

Andrea, Sandra og Díana í landsliðshópi Arnars
Látum rannsóknirnar vísa okkur veginn
Við þurfum að halda vinnunni áfram og hafa trú á okkur
Alma Ingólfsdóttir frá Þjóðhátíðarnefnd 
Bæta á aðkomu og ásýnd við Sprönguna
ÍBV tapaði með níu marka mun gegn Haukum
Vestmannaeyjahlaupið fór fram í blíðskaparveðri
ÍBV missti niður tveggja marka forskot gegn Stjörnunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.