Eldaði þorskhaus og lúðusúpu fyrir Rick Stein
Einn þekktasti sjónvarpskokkur Breta, Rick Stein, er staddur hér á landi við upptökur á nýrri sjónvarpsþáttaröð. Stein hefur um árabil verið þekktasta andlit BBC á þessu sviði. Á meðal veitingastaða sem Stein hefur heimsótt eru Matur og Drykkur þar sem hann fékk þjóðlega rétti.
�??Við elduðum fyrir hann okkar útgáfu af lúðusúpu og líka þorskhaus,�?? segir Gísli Matthías Auðunsson matreiðslumaður og einn eiganda staðarins. Brasaður þorskhaus Gísla og félaga hefur vakið þó nokkra athygli.
Gísli segir að Stein muni heimsækja nokkra veitingastaði hér á landi auk þess að skoða annað tengt mat og drykk. �??Hann er að taka upp nýja seríu og fer til nokkurra stórborga.�?? Gísli segir aðspurður að um mikinn heiður sé að ræða fyrir þá hjá Mat og drykk. �??Hann er auðvitað algjör goðsögn í þessum bransa og búinn að vera fremsti kokkur BBC í áratugi. �?etta er góð kynning fyrir okkur og auðvitað Ísland.�??
Gísli, sem einnig á og rekur Slippinn í Vestmannaeyjum, segir að Stein stefni einnig að því að veiða fisk af bryggju á meðan hann er hér og jafnvel að ná sér í eina lopapeysu.
ruv.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.