EM veislan hafin!
Arnar Ads IMG 0326
Arnar á hliðarlínunni í Austurríki. Ljósmynd/aðsend.

Evrópumót kvenna í handbolta hófst í gær en fyrsti leikur Íslands er síðdegis í dag þegar liðið mætir Hollandi. Mótið er haldið í Austurríki, Ungverjalandi og Sviss.

Sunna Jónsdóttir, leikmaður ÍBV er fyrirliði landsliðsins. Hún segir íslenska liðið klárt í leikinn gegn Hollandi. Í viðtali við RÚV segir hún að tilfinningarnar séu ótrúlega góðar. „Ég er þakklát og stolt af því að vera hérna. Ég er stolt af liðinu og það er mikil tilhlökkun og gleði. Við erum að mæta mjög sterku liði og það þarf mikið að ganga upp hjá okkur til að ná góðum leik í dag.“

Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari segir í samtali við handbolti.is að liðið þurfi að ná fram sínum besta leik á öllum sviðum. „Hollenska liðið hleypur mjög mikið og er ofboðslega grimmt í fyrstu og annarri bylgju. Við verðum að skila okkur heim í vörnina og standast þessar fyrstu árasir. Það skiptir gríðarlega miklu máli. Svo er það klassíska. Við þurfum að standa góða vörn og fá markvörslu auk þess að sýna hugrekki í öllum okkar aðgerðum ásamt því að vera skynsamar með boltann. Það er lykillinn að því ná toppleik gegn Hollendingum,“ segir Arnar.

Auk Sunnu eru Eyjakonurnar Díana Dögg Magnúsdóttir og Elísa Elíasdóttir í landsliðshópnum. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og verður sýndur beint á RÚV.

Sunna í leik með ÍBV. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Nýjustu fréttir

Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára
Selma rifjar upp árin með Gunnari á sjó og í landi 
Alls útskrifuðust 45 nemendur frá FÍV af sex brautum
Kraftmikil önn og árangur nemenda í forgrunni
Halli Geir Evrópumeistari í sjómanni  
Sjórinn var aldrei í plönunum, segir Sigurhanna
Sjómannadags fjör í Höllinni: myndasyrpa
Myndir frá sjómannafjöri á bryggjunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.