Eyjarnar landa fyrir austan
Eyjarnar 20250826 081915
Landað úr Vestmannaey VE. Á bakvið hana er Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK hefur landað í tvígang á Grundarfirði síðustu dagana og Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE eru að landa í Neskaupstað í dag eftir stuttan túr, að því er segir í frétt á vefsíðu Síldarvinnslunnar í dag.

Þer er rætt við Einar Ólaf Ágústsson skipstjóra á Jóhönnu Gísladóttur og spurði um aflabrögð og hvar veitt hefði verið. „Við lönduðum um 35 tonnum sl. fimmtudag. Það var langmest karfi sem fékkst í Kolluálnum. Haldið var út að löndun lokinni og við lönduðum á ný í Grundarfirði á þriðjudaginn. Þá var um fullfermi að ræða og var aflinn mest þorskur. Í þessum seinni túr byrjuðum við veiðarnar á Kögurgrunni og síðan var haldið í Þverál, á Nýjagrunn og í Víkurálinn. Túrinn var loks kláraður út af Látrabjargi,” sagði Einar Ólafur.

Jóhanna Gísladóttir hélt til veiða á ný að lokinni löndun á þriðjudaginn. Veiðar voru hafnar út af Látrabjargi en síðan var haldið í Kolluálinn.

Vestmannaey og Bergey landa í Neskaupstað í dag eftir að hafa verið einungis um tvo sólarhringa að veiðum. Afli hvors skips er um 40 tonn. Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, sagði að aflinn í túrnum hefði að mestu verið þorskur og ýsa en dálítið af karfa og ufsa hefði fylgt með. „Við byrjuðum í Hvalbakshallinu en síðan var haldið í Litladýpið í leit að ýsu. Aftur var farið í Hvalbakshallið og síðan var túrinn kláraður á Gerpisflaki,” sagði Ragnar.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að veiðin hefði verið þokkaleg í þá rúmu tvo sórhringa sem verið var á miðunum. „Við lögðum áherslu á að veiða ýsu í túrnum og veiddum á Tangaflakinu og Gerpisflakinu. Ýsan gefur sig heldur illa á nóttunni en engu að síður gekk þetta þokkalega,” sagði Birgir Þór.

Bergey og Vestmannaey munu væntanlega halda til veiða á ný í kvöld eða nótt.

Nýjustu fréttir

Sigur og tap hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Svíþjóð
Takmarkað dýpi hamlar siglingum um Landeyjahöfn
Einar Gunnarsson skólastjóri er Eyjamaður mánaðarins
Ný vísindagrein um Kveikjum neistann
Ný aðstaða eykur sveigjanleika hafnarinnar
Mikill áhugi á The Puffin Run – Um 1.300 keppendur þegar skráðir
Sala á jólasælgæti Kiwanis hefst um helgina
25 fjölmiðlar fá rekstrarstuðning
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.