Eyþór Harðarson er nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum eftir prófkjör flokksins í dag, en Eyþór hlaut 597 atkvæða í 1. sæti eða 67,2% atkvæða. Í öðru sæti er Hildur Sólveig Sigurðardóttir með 475 atkvæði í 1. – 2. sæti eða 53,4% atkvæða. Í þriðja sæti er Gísli Stefánsson með 385 atkvæði í 1. – 3. sæti eða 43,3% atkvæða. Í fjórða sæti er Margrét Rós Ingólfsdóttir með 446 atkvæði í 1. – 4. sæti eða 50,2% atkvæða. Í fimmta sæti er Rut Haraldsdóttir með 693 atkvæði í 1. – 5. sæti eða 78% atkvæða.
Á kjörskrá voru 1.531 en 927 greiddu atkvæði í dag og var kjörsókn því 60,5%. Auðir og ógildir seðlar voru 38 og gild atkvæði því 889.
Röð efstu átta í prófkjörinu þegar lokatölur hafa verið birtar er eftirfarandi:
Nánari sundurliðun má finna hér.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.