Abel Dhaira, leikmaður félagsins, hefur átt við erfið veikindi að stríða undanfarna mánuði.
Hann var skorinn upp í �?ganda fyrir áramót vegna krabbameins í kviðarholi sem nú hefur dreift sér í fleiri líffæri. Abel mun hefja læknismeðferð hér á landi í næstu viku.
Félagið og styrktaraðilar standa þétt við bak Abel og munu leitast við að tryggja honum bestu læknishjálp sem völ er á. Til að létta Abel þá fjárhagslegu byrði sem svo erfiður sjúkdómur orsakar hefur félagið í samstarfi við Vodafone ákveðið að standa fyrir fjársöfnun.
�?eir sem vilja taka þátt í þessari vegferð með okkur geta hringt í neðangreind númer eða lagt beint inn á söfnunarreikning 582-14-602628 kt. 680197-2029. Haraldur Bergvinsson er fjárhaldsmaður verkefninsins. �?llu söfnunarfé verður varið til að standa straum af kostnaði Abels vegna þessarra
veikinda
�?essi veikindi er Abel þungbær og við hvetjum alla sem tök hafa á til að sýna honum vinsemd og virðingu í þessari baráttu.
Knattspyrnuráð ÍBV íþróttafélags
9071010 �?? 1000kr
9071020 �?? 2000kr
9071030 �?? 3000kr