Fótboltamótið Rey Cup fór fram í Laugardalnum dagana 22. – 26. júlí. Rey Cup er alþjóðlegt fótboltamót sem er haldið ár hvert fyrir 4. og 3. flokk karla og kvenna.
ÍBV sendi eitt lið í 4. flokki kvenna, alls 15 stelpur. Liðið fór sem A-lið og spilaði í efsta styrkleikaflokki. Í riðlakeppninni unnu þær lið frá Bandaríkjunum, 2-0, og töpuðu 6-4 fyrir Þór Akureyri, sem er besta lið landsins um þessar mundir í þessum aldursflokki.
Þær töpuðu 2-1 gegn Þrótti Reykjavík í hörkuleik. Þróttur endaði svo á að spila úrslitaleikinn á mótinu gegn Bayern Munchen. Stelpurnar unnu Selfoss 3-1 og spiluðu svo gegn KA um sæti þar sem þær unnu 8-2. Sigurinn í þeim leik tryggði þeim 5. sætið á mótinu.
Stelpurnar sýndu miklar framfarir og var mikil ánægja með mótið, bæði fótboltalega og félagslega. Það var virkilega vel að öllu staðið hjá Eyjamanninum, Bjarnólfi Lárussyni, og félögum í Þrótti, sem halda Rey Cup árlega.
Þess má til gamans geta að Kolfinna Lind Tryggvadóttir, leikmaður ÍBV, skoraði 15 mörk í sex leikjum sem gerir hana að einum markahæsta leikmanni mótsins.
Heilt yfir stóðu stelpurnar sig mjög vel og gáfu bestu liðunum lítið eftir. Trausti Hjaltason er þjálfari liðsins og er stoltur af liðinu og segir að þær hafi verið klúbbnum klárlega til sóma, innan sem utan vallar.