Frændur en engir vinir
Eftir Einar Sigurðsson
DSC_6428_eis_cr
Einar Sigurðsson, stjórnarformaður Ísfélagsins. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Í milliríkjasamningum þar sem gætt er hagsmuna Íslands, skiptir öllu að vel sé haldið á málum frá upphafi því ef þeir bera það með sér að einn samningsaðilinn geti bætt sinn hlut á samningstímabilinu á kostnað annars er samningurinn vondur frá upphafi. Þannig hefur það verið með samninga við frændur okkar Færeyinga. Ísland er með samning við Færeyinga sem fjallar um gagnkvæman rétt landanna. Helstu ákvæðin eru:

  1. Gagnkvæmur aðgangur skipa ríkjanna til kolmunna-  og síldveiða (norsk-íslensk síld) í lögsögu hvors annars, alls 15 íslensk skip í einu við veiðar á kolmunna í færeyskri lögsögu.
  2. Bolfiskheimildir handa færeyskum línuskipum, alls 5.600 tonn, þar af 2.400 tonn af þorski og hámark 400 tonn af keilu.
  3. Loðnuheimildir til Færeyinga sem nema 5% af heildaraflamarki í loðnu sé heildaraflamarkið minna en 500 þúsund tonn, annars 30 þúsund tonn.

 

Í raun hafa Íslendingar aðeins nýtt sér aðgang til kolmunnaveiða í lögsögu Færeyja, en greitt dýru verði fyrir. Þegar Færeyingar fengu aðgang til síldveiða í íslenskri lögsögu, var hlutdeild þeirra í stofninum 5,16%, en fóru síðar í 22%. Þessari hlutdeild úthlutuðu þeir sér einhliða á kostnað annarra ríkja og veiddu í verulegum mæli í íslenskri lögsögu. . Með þessari veiði hafa þeir reyndar líka fengið íslenska sumargotssíld, sem þeir hafa ekki heimildir í, en það svindl er önnur saga.

Í krafti þessarar verulega auknu hlutdeildar í norsk-íslenskri síld, sömdu Færeyingar síðan við Norðmenn um að láta eftir hlutdeild í norsk-íslenskri síld og fengu Færeyingar í staðinn aðgengi til veiða á norsk-íslenskri síld í  lögsögu Noregs.

Það gefur auga leið að allar þjóðir vilja komast í íslenska lögsögu og spilin á hendi Íslands eru góð. Það var því óþarfi að láta Færeyinga fá þau spil. Þessi spil hefðu vafalaust nýst Íslandi betur í samningum við Norðmenn.

Það er ekkert nýtt að Norðmenn beiti sér gegn íslenskum hagsmunum þegar kemur að því að takast á um fiskveiðiheimildir. Hins vegar skýtur það mjög skökku við að sjá að Færeyingar, sem komust í sterka stöðu með samningum við Ísland, beita sér jafn blygðunarlaust gegn íslenskum hagsmunum eins og þeir gerðu þegar kom að því að semja um makrílstofninn í vikunni.

Þeir sem starfa í sjávarútvegi hafa fundið fyrir auknum stuðningi stjórnvalda við að rétta hlut Íslendinga í milliríkjasamningum tengdum fiskveiði. Það ætti að vera hægðarleikur að nýta nú tækifærið og endurskoða samninga, sérstaklega þar sem Færeyingar sýndu það í makrílsamningi að þeir beittu sér mjög gegn hagsmunum Íslands. Það skiptir öllu að samningar Íslands við önnur lönd séu ekki þannig úr garði gerðir að hægt sé að misnota þá stöðu síðar, eins og Færeyingar hafa gert.

Það verður þó ekki annað sagt en að Færeyingar hafi spilað vel úr sínum spilum, en á kostnað Íslendinga. Nú er mál að linni og rétt að stokka upp spilin.

 

Einar Sigurðsson

Höfundur er stjórnarformaður Ísfélagsins.

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.