Gáfu standlyftu og loftdýnur

Dætur, makar og afkomendur Guðnýjar Bjarnadóttur og Leifs Ársælssonar færðu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum höfðinglega gjöf nú á dögunum.  Gjöfin samanstendur af standlyftu og loftdýnum. Eimskip gaf flutninginn. Með gjöfinni vilja þær minnast foreldra sinna sem bæði hefðu orðið níræð á þessu ári og dvöldu á Hraunbúðum síðustu árin og um leið þakka fyrir einstaklega góða og hlýja umönnun sem foreldrar þeirra fengu meðan þau dvöldu þar.

Gjöfin kemur sér sannarlega vel og mun verða til þægindaauka fyrir alla.  Dætrum þeirra hjóna þeim Guðrúnu Birnu og Elínu Laufeyju ásamt fjölskyldum þeirra beggja eru færðar innilegar þakkir. Svona hugulsemi snertir djúpt segir í frétt á vef HSU.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið með 2,8 milljarða króna hagnað á fyrsta ársfjórðungi
Munum að njóta!
Leikmenn á förum frá ÍBV
Rúta lenti í vandræðum á nýja hrauninu
Ræsa lestrarvélarnar á laugardag
Leikfélagið með spunasýningu
Milena í eldlínunni með U16 ára landsliðinu
„Þetta hefur verið dans á rósum“ – hættir eftir 50 ára starf
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.